Vilja gjaldfrjálsa leikskóla, borgarlandverði, „Reykjavíkurbústaði“ og meira íbúalýðræði

Vinstri græn í Reykja­vík vilja að borgin stofni sitt eigið leigu­fé­lag fyrir almennan leigu­markað, flýta Borg­ar­línu og nýta íbúa­kosn­ingar í auknum mæli. Þá vill flokk­ur­inn sam­starf við ríkið, háskóla og einka­að­ila um svo­kall­aða „Vís­inda­ver­öld“.

Efstu þrír frambjóðendur Vinstri grænna í Reykjavík. Líf Magneudóttir, fyrir miðju, leiðir listann.
Efstu þrír fram­bjóð­endur Vinstri grænna í Reykja­vík. Líf Magneu­dóttir, fyrir miðju, leiðir list­ann. Mynd: Vinstri græn í Reykjavík

Vinstri græn setja fram kosn­inga­á­herslur sínar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í undir slag­orð­inu „Göngum lengra í Reykja­vík“.

Flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­inni árið 2017 og einn borg­ar­full­trúa kjör­inn, Líf Magneu­dóttur, sem áfram leiðir list­ann nú. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar verða Vinstri græn áfram með einn borg­ar­full­trúa, en þó nærri því að ná inn öðrum manni, með 6,7 pró­senta fylgi.

Vinstri græn setja fram kosn­inga­á­herslur á vef sínum sam­eig­in­lega fyrir öll sveit­ar­fé­lög þar sem flokk­ur­inn býður fram, en eru svo einnig með sér­stakar kosn­inga­á­herslur í Reykja­vík. Kjarninn skoð­aði áherslu­mál flokks­ins í borg­inni og tók saman það helsta.

Borgin standi að byggingu almennra leiguíbúða

Í hús­næð­is­málum seg­ist flokk­ur­inn ætla sér að byggja árlega á bil­inu 500-1.000 „Reykja­vík­ur­bú­staði“, sem yrðu almennar leigu­í­búðir í eigu borg­ar­innar. Þetta segir flokk­ur­inn að eigi að verða hrein við­bót við aðra upp­bygg­ingu íbúða sem er fyr­ir­huguð sam­kvæmt hús­næð­is­á­ætlun borg­ar­innar.

Vinstri græn vilja einnig fjölga leigu­í­búðum Félags­bú­staða um og íbúðum fyrir fatlað fólk um sam­tals 700 á kjör­tíma­bil­inu. Þá seg­ist flokk­ur­inn ætla að „tryggja heim­il­is­lausu fólki hús­næði á þeirra for­sendum“ og „byggja upp kröftug og lif­andi hverfi um alla borg með því að þétta byggð og full­byggja skipu­lögð hverfi“.

Vinstri græn segj­ast vilja ráð­ast í breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­vikur, „þannig að í öllu skipu­lagi sé meira pláss lagt undir mann­líf, gróður og vist­vænar sam­göngur og að minni­hluti pláss fari undir bíla og bíla­stæði,“ og einnig vill flokk­ur­inn „grænni götur“ og „vinda ofan af mal­biki með borg­ar­hönn­un­ar­stefnu.“

Flokk­ur­inn seg­ist vilja end­ur­heimta almanna­rýmið frá bílum og að bíla­stæði eigi „betur heima í bíla­kjall­ara eða bíla­stæða­húsi en ofanjarðar“. Þá segir í kosn­inga­á­hersl­unum að mis­læg gatna­mót ættu að „verða víkj­andi í skipu­lagi borg­ar­innar“ þar sem það sé „betra fyrir lífs­gæðin að nýta borg­ar­landið undir hús­næði og græn úti­vist­ar­svæði“.

Gjaldfrjáls leikskóli og skólamatur

Vinstri græn hafa það á stefnu­skrá sinni að menntun barna verði gjald­frjáls bæði í leik- og grunn­skólum og að mál­tíðir í skól­unum verði einnig end­ur­gjalds­lausar.

Hvað skóla­mál varðar seg­ist flokk­ur­inn einnig vilja búa betur að kenn­urum, nýta tækni meira í skóla­starfi og auka stuðn­ing við börn með annað móð­ur­mál en íslensku.

[adspot]

Vinstri græn vilja einnig svo­kall­aða „Vís­inda­ver­öld“ í borg­ina, en það yrði safn eða mið­stöð þar sem hægt yrði að fræð­ast um heim­inn og nátt­úr­una. Stefán Pálsson, sem situr í 2. sæti á lista flokks­ins, útskýrði þetta stefnu­mál betur í blaða­grein og sagði verk­efnið þurfa að vinn­ast í sam­starfi borgar, ríkis og háskól­anna. Hann sagði VG horfa sér­stak­lega til þess að Vís­inda­ver­öld yrði fund­inn staður í Keldna­holts­land­inu.

Í kosn­inga­á­herslum Vinstri grænna er einnig lagt til að sum­ar­frí­stunda­kort verði tekin upp, svo öll börn geti notið frí­stunda­starfs allt árið um kring. Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja færa menn­ing­ar­starf, list­nám og tón­list­ar­iðkun „nær börnum“, fjölga plássum í skóla­hljóm­sveitum Reykja­víkur og bæta aðstöðu þeirra.

Vilja flýta Borgarlínu og endurvekja næturstrætó

Vinstri græn segj­ast ætla að flýta Borg­ar­línu fram­kvæmdum við hjóla­stíga og tryggja að vist­vænir ferða­mátar verði „sjálf­sagður val­kostur borg­ar­búa“.

Flokk­ur­inn segir Strætó vera grunn­þjón­ustu og að lyk­il­leiðir eigi að „ganga lengi og vera tíðar“, auk þess sem end­ur­vekja skuli næt­ur­strætó, en næt­ur­strætó hætti að ganga eftir að næt­ur­líf mið­borg­ar­innar logn­að­ist af í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og hefur ekki verið end­ur­vak­inn.

Vinstri græn segj­ast einnig ætla sér að „end­ur­skoða fyr­ir­komu­lag vetrar- og vor­þjón­ustu svo við fáum ekki óyf­ir­stíg­an­lega skafla og sand­fok“.

Fleiri ákvarðanir með íbúakosningum

Vinstri græn segj­ast ætla að tryggja aðkomu íbúa að skipu­lags­málum frá fyrstu stigum verk­efna, og seg­ist flokk­ur­inn vilja að íbúar taki fleiri ákvarð­anir, „m.a. með íbúa­kosn­ingum um til­tekin mál og íbúa­þingum.“

Þá vill flokk­ur­inn að borgin nýti sér „fjöl­breytt lýð­ræð­is­tæki eins og skoð­ana­kann­anir og rök­ræðukann­anir við upp­bygg­ingu í hverf­unum“ og sjá slembivalda full­trúa setj­ast í íbúa­ráð borg­ar­innar, til að „tryggja fjöl­breytt­ari raddir íbúa við stefnu­mótun og ákvarð­ana­töku“.

Vinstri græn segj­ast einnig ætla að vanda betur alla áætl­ana­gerð í borg­inni og rýna áætl­anir með „mæli­kvörðum vel­sældar og kynja­sjón­ar­miða og umhverf­is­á­hrifa“. Þá vill flokk­ur­inn að lofts­lags­á­hrif fjár­fest­inga verði metin og þær kolefn­is­jafn­aðar, ef til­efni sé til.

Flokk­ur­inn seg­ist ætla að sýna ráð­deild í rekstri og for­gangr­aða fjár­munum til verk­efna sem auki lífs­gæði fólks. Þar verði umhverf­is­væn og félags­leg upp­bygg­ing og fjár­fest­ingar í innviðum í for­grunni. Vinstri græn segj­ast líka vilja vinna með rík­inu og Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga „að útfærslu á styrk­ari tekju­stofnum til höf­uð­borg­ar­innar“.

Borgarlandverðir og meira fyrir hestamenn

Það kennir ýmissa grasa í stefnu­skrá Vinstri grænna í borg­inni. Flokk­ur­inn seg­ist vilja ráða borg­ar­land­verði, sem eiga að hafa það hlut­verk að sinna fræðslu og eft­ir­liti með borg­ar­land­inu. Þá vill flokk­ur­inn stór­auka fræðslu til Reyk­vík­inga um umhverf­is­mál, lofts­lags­mál og hringrás­ar­hag­kerfið, auk þess að standa vörð um strand­lengj­una og end­ur­heimta röskuð svæði.

Mörg stefnu­mála VG eru fremur almenn, en sum afar sér­tæk. Eitt af þeim sér­tæk­ari er að flokk­ur­inn seg­ist styðja hug­myndir hesta­manna­fé­lags­ins Fáks um að stækka félags­svæðið og „gera hesta­í­þrótt­ina aðgengi­legri fyrir okkur öll.“

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um fram­lagðar stefnu­skrár flokka í Reykja­vík á næstu dögum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár