Boða þéttingu og fjárfestingu í núverandi hverfum og lægri gjöld fyrir tekjulága

Sam­fylk­ingin vill að tekju­lágar fjöl­skyldur í Reykja­vík greiði minna fyrir leik­skóla- og frí­stund, skoða hvort jarð­göng væru fýsi­legri en Miklu­braut­ar­stokkur og leggur áherslu á upp­bygg­ingu á svæðum eins og Ártúns­höfða, Skeifu, Múla­hverfi og Mjódd.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er oddviti Samfylkingarinnar.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Baldur Kristjánsson

Sam­fylk­ingin setti kosn­inga­bar­áttu sína í Reykja­vík af stað með fundi í Gamla bíó á Sum­ar­dag­inn fyrsta. Flokk­ur­inn hefur verið í meiri­hluta í borg­ar­stjórn óslitið frá 2010 og hefur odd­vit­inn Dagur B. Egg­erts­son verið borg­ar­stjóri frá 2014.

Flokk­ur­inn var sá næst stærsti í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018, fékk 25,9 pró­sent atkvæða og sjö borg­ar­full­trúa kjörna. Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, sem birt var í morgun, mæld­ist Sam­fylk­ingin stærst fram­boða með 23,5 pró­senta fylgi í Reykja­vík.

Kosn­inga­á­herslur Sam­fylk­ing­ar­innar voru sam­þykktar á Reykja­vík­ur­þingi flokks­ins undir lok mars. Þær eru sagðar afrakstur sam­ráðs við borg­ar­búa í aðdrag­anda kosn­inga og hug­mynda­vinnu mál­efna­hópa flokks­ins í borg­inni.

Áhersl­urnar eru allít­ar­legar og settar fram á fjöru­tíu og einni blað­síðu undir slag­orð­inu „Reykja­vík á réttri leið“. Kjarninn leit yfir stefnu flokks­ins í borg­inni og tók saman helstu áherslu­at­riðin og aðgerð­irnar sem flokk­ur­inn boðar.

Margt í stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar er, ef til vill eðli­lega, end­ur­ómur þeirrar stefnu sem borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn hefur staðið fyrir á kjör­tíma­bil­inu og sett eru fram fyr­ir­heit um að halda áfram á sömu braut.

Borgin úthluti fleiri lóðum og gerður verði „húsnæðissáttmáli“

Í umfjöllun um stefnu flokks­ins í hús­næð­is­málum segir þannig að síð­ustu ár hafi verið metár í hús­næð­is­upp­bygg­ingu í borg­inni og að Reykja­vík eigi að mæta þeirri miklu eft­ir­spurn sem nú er eftir fast­eignum með auk­inni úthlutun lóða og sam­þykki skipu­lags- og bygg­ing­ar­verk­efna, með sér­stakri áherslu á stað­setn­ingu við þró­unarása Borg­ar­línu.

Flokk­ur­inn vill einnig tryggja að nóg bygg­ist af félags­legum leigu­í­búðum og er Sam­fylk­ing með það í sínum kosn­inga­á­herslum að það ger­ist ekki ein­ungis í Reykja­vík, heldur verði gerður svo­kall­aður „hús­næð­is­sátt­máli“ fyrir allt höf­uð­borg­ar­svæðið þar sem meðal ann­ars verði kveðið á um hlut­fall félags­legra leigu­í­búða og hlut­fall óhagn­að­ar­drif­innar upp­bygg­ingar í öllum sveit­ar­fé­lögum, en sjálf er borgin með það mark­mið að fjórð­ungur allrar upp­bygg­ingar sé á vegum óhagn­að­ar­drif­inna félaga.

[adspot]

Sam­fylk­ingin leggur áherslu á þétt­ingu byggðar og segir dreif­ingu byggð­ar­innar dýra og tíma­freka, auka umferð, veikja almenn­ings­sam­göngur, auka tafa­tíma í umferð­inni og gegn árangri í lofts­lags­málum. Flokk­ur­inn segir að sam­göngusátt­máli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins feli í sér „mikil tæki­færi til góðrar borg­ar­þró­unar og upp­bygg­ingar íbúða­hús­næðis“ og að þar séu þétt­ing­ar­reitir með­fram Borg­ar­línu „í fremstu röð“.

Áhersla Sam­fylk­ing­ar­innar er á að „end­ur­nýjun og upp­bygg­ing hefj­ist innan svæða sem liggja nærri Borg­ar­línu og þeim innviðum sem henni munu fylgja, svo sem í Skeifu, Múla­hverfi og Mjódd.“

Lægri leikskóla- og frístundagjöld fyrir tekjulága

Sam­fylk­ingin seg­ist vilja „lækka gjöld í leik­skólum og frí­stund hjá fjöl­skyldum með lágar tekjur og auka sam­ræmi í gjald­töku milli leik­skóla og frí­stundar“. Flokk­ur­inn vill að hjón og sam­búð­ar­fólk með lágar tekjur njóti afsláttar af leik­skóla­gjöldum til jafns við ein­stæða for­eldra, öryrkja og náms­menn.

Í leik­skóla­málum segir flokk­ur­inn stefnt að því að byrja að taka á móti 12 mán­aða börnum í leik­skóla strax á kom­andi hausti, eins og borgin til­kynnti í frétta­til­kynn­ingu í byrjun mars, og að stefnt skuli að því að „með­al­aldur barna við inn­töku lækki úr 19 mán­uðum í 13-14 mán­uði“.

Sam­fylk­ingin var einnig með það á stefnu­skrá sinni fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar að koma 12-18 mán­aða börnum inn á leik­skóla. „Á næsta kjör­tíma­bili viljum við klára upp­bygg­ingu leik­skól­anna í eitt skipti fyrir öll með því að bjóða 12 til 18 mán­aða börnum leik­skóla­pláss í fyrsta skipti,“ sagði í stefnu flokks­ins frá vor­inu 2018, eins og hún var sett fram á vef­síð­unni Ég kýs.[links]

Í útdrætti um stefnu­mál á heima­síðu Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík segir reyndar að Sam­fylk­ingin hafi sagt fyrir síð­ustu kosn­ingar að brúa ætti bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla „á innan við sex árum“ og því sé Reykja­vík­ur­borg nú „á undan áætlun“ í þessum efnum.

Sam­fylk­ingin vill hækka frí­stunda­styrk barna upp í 75 þús­und krónur á ári og upp í 100 þús­und krónur á ári fyrir börn sem koma af heim­ilum með lágar tekjur. Einnig vill flokk­ur­inn að ónýtt fjár­magn frí­stunda­styrks innan hverfa renni í frí­stunda­sjóð, sem borg­ar­mið­stöð við­kom­andi hverfis geti varið til að styðja tekju­lágar fjöl­skyldur við að mæta kostn­aði við frí­stundir barna.

Vilja klára Borgarlínu og umferðarstokka

Borg­ar­lína og umferð­ar­stokkar á Miklu­braut og Sæbraut voru áber­andi í kosn­inga­bar­áttu Sam­fylk­ing­ar­innar 2018 og þessi mál eru öll hluti af sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem und­ir­rit­aður var á kjör­tíma­bil­inu.

Um Borg­ar­línu segir Sam­fylk­ingin að það eigi að „klára dæmið“ og að styðja þurfi við verk­efnið á öllum stigum á næstu árum, auk þess sem flokk­ur­inn vill að tíma­á­ætl­anir Borg­ar­línu verði end­ur­skoð­aðar með áherslu á að teng­ingar Efra-Breið­holts og Keldna­lands.

Stokk­arnir eru svo sagðir „lyk­il­verk­efni“ í að bæta umferð og vinna gegn nei­kvæðum áhrifum hennar á nálæga byggð. Sam­fylk­ingin vill að skoðað verði „hvort áhuga­vert geti verið að í stað þess að Mikla­braut fari í stokk að Kringlu­svæð­inu þá verði gerð jarð­göng sem endi við Grens­ás­veg“. Öll fram­tíð­ar­þróun í sam­göngu­málum segir Sam­fylk­ingin að ætti að „miða að því að auka frelsi í sam­göngum og draga úr ofurá­herslu á einka­bíl­inn“.

Fjárfestingar innan hverfa sem þegar eru til

Sam­fylk­ingin leggur sem áður segir áherslu á þétt­ingu byggðar. Flokk­ur­inn seg­ist vilja halda áfram að vinna eftir fjár­fest­ing­ar­á­ætl­un­inni Græna plani borg­ar­innar og „fjár­festa fyrir tugi millj­arða í þeim hverfum sem við búum í nú þegar“ og segir hug­myndir um „stór­aukna útþenslu og dreif­ingu byggðar“ ganga gegn þeirri áætlun. „Það er nefni­lega ekki hægt að gera bæði, setja tug­millj­arða í gróin hverfi og leggja tug­millj­arða í ný hverfi frá grunni,“ segir á kosn­inga­vef Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um fram­lögð stefnu­mál fram­boða í Reykja­vík­ur­borg á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár