Píratar vilja sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla í Reykjavík og fá Borgarlínu fyrr

Píratar í Reykja­vík segj­ast vilja skapa hvata til styttri dag­vist­unar barna með því að hafa sex tíma leik­skóla gjald­frjálsan. Flokk­ur­inn vill líka flýta Borg­ar­línu, fækka bíla­stæðum og stækka gjald­skyldu­svæðin í borg­inni.

Dóra Björt Guðjónsdóttir er oddviti Pírata í Reykjavík.
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir er odd­viti Pírata í Reykja­vík. Mynd: Aðsend

Píratar í Reykja­vík kynntu stefnu­málin sem flokk­ur­inn hyggst setja á odd­inn fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á fundi sem hald­inn var á Kjar­vals­stöðum á Sum­ar­dag­inn fyrsta, en flokk­arnir sem bjóða fram í borg­inni hafa einn af öðrum verið að setja fram stefnu­mál sín að und­an­förnu.

Píratar eru í dag með tvo borg­ar­full­trúa eftir að hafa fengið 7,7 pró­senta fylgi í kosn­ing­unum árið 2018. Samkvæmt skoð­ana­könn­unum sem hafa birst að und­an­förnu er flokk­ur­inn lík­legur til að bæta við sig fylgi eftir fjög­urra ára setu í meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Viðreisn og Vinstri grænum, en í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar mæld­ist fylgi flokks­ins 12,8 pró­sent.

Stefnur Pírata í Reykja­vík eru fimm tals­ins, en flokk­ur­inn er með umhverfis-, skipu­lags- og sam­göngu­stefu, dýra­vel­ferð­ar­stefnu, mann­rétt­inda- og vel­ferð­ar­stefnu, lýð­ræðis-, menn­ingar- og nýsköp­un­ar­stefnu og barna­stefnu.

Kjarninn renndi yfir stefnur Pírata í Reykja­vík, sem settar eru fram á alls 24 blað­síðum, og tók saman helstu aðgerð­irnar sem flokk­ur­inn seg­ist vilja ráð­ast í.

Borgarlínu hraðar og færri bílastæði

Í sam­göngu­málum segj­ast Píratar vilja hraða upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og tryggja að „ekki verði farið í umferð­ar­auk­andi fram­kvæmdir“. Þá vilja Píratar að mis­læg gatna­mót verði „gerð víkj­andi“ og að kveðið verði á um end­ur­hönnun þeirra fyrir vist­væna ferða­máta.

Einnig seg­ist flokk­ur­inn vilja að við útfærslu stórra stofn­vega­fram­kvæmda, eins og Sunda­brautar, verði „brugð­ist við með mót­væg­is­að­gerðum til að koma í veg fyrir umferð­ar­aukn­ingu, í þágu lofts­lags­ins og mann­lífs­ins í borg­inni“ en einna efst á blaði í stefnu flokks­ins er að öll ákvarð­ana­taka eigi að taka mið af mark­miðum í umhverfis- og lofts­lags­málum.

Flokk­ur­inn vill að skipu­lag og hraða­tak­mark­anir á akandi umferð taki mið af því að fækka slysum og auka örygg­is­til­finn­ingu gang­andi og hjólandi. Í því skyni vill flokk­ur­inn að „Reykja­vík verði skil­greind sem 50 km hámarks­hraða­svæði“ og þróa „bíl­lausa byggð með frelsi frá bíla­eign“. Píratar stefna að því að fækka bíla­stæðum og koma á gjald­skyldu víðar.

[adspot]

Píratar vilja einnig koma næt­ur­strætó aftur á og bjóða upp á gjald­frjálsar almenn­ings­sam­göngur fyrir börn upp að 18 ára aldri, bæta í fjár­fest­ingu í innviðum fyrir hjól­reiðar og gera auknar kröfur um bæði fjölda og gæði hjóla­stæða.

Í stefnu flokks­ins segir einnig að draga skuli úr notkun nagla­dekkja, „svo sem með því að rukka fyrir notkun þeirra og með því að breyta ferða­venjum.“ Píratar vilja stefna að því að tak­marka bíla­um­ferð þegar slæm loft­gæði ógni heilsu fólks og bjóða ókeypis í almenn­ings­sam­göngur á svoköll­uðum gráum dögum.Flokk­ur­inn seg­ist vilja hraða upp­bygg­ingu hús­næðis í borg­inni og láta hús­næð­is­upp­bygg­ing­una hald­ast í hendur við upp­bygg­ingu Borg­ar­línu, í „þéttri lífs­gæða­byggð“. Í kosn­inga­bar­átt­unni tala nokkrir flokkar fyrir því að ráð­ast í skipu­lagn­ingu Keldna­lands, en í stefnu Pírata segir að ný byggð þar skuli rísa sam­hliða borg­ar­línu­teng­ingu, „ellegar verði bíl­laus“. Flokk­ur­inn vill einnig að Reykja­vík­ur­flug­völlur víki „sem allra fyrst“ svo hægt verði að und­ir­búa hús­næð­is­upp­bygg­ingu í Vatns­mýr­inni.

Píratar segj­ast vilja stuðla að upp­bygg­ingu heima­vistar fyrir nem­endur sem vilja koma til Reykja­víkur að stunda fram­halds­skóla­nám í sam­starfi við ríkið. Einnig vill flokk­ur­inn að félags­legum íbúðum verði fjölgað sem hlut­fall af heild­ar­upp­bygg­ingu og að unnið verði „í sam­ein­ingu að því að öll sveit­ar­fé­lög axli sinn hluta“.

Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og heimgreiðslur með 12-15 mánaða börnum

Í stefnu Pírata segir að flokk­ur­inn vilji upp­fylla þörf­ina fyrir fjölda leik­skóla­plássa frá fæð­ing­ar­or­lofi „í nærum­hverfi barns­ins“. Píratar segj­ast jafn­framt vilja tryggja „jafnt aðgengi að leik­skóla­vistun óháð efna­hag“ og skapa hvata til styttri dag­vist­unar „með 6 tíma gjald­frjálsum leik­skóla.“ Píratar segj­ast einnig vilja stuðla að „sveigj­an­leika í töku sum­ar­frís frá leik­skólum“.

Flokk­ur­inn vill einnig að „börn fólks í fátækt fái ókeypis skóla­mál­tíðir“ og tryggja aðgengi að tón­list­ar­námi óháð efna­hag í öllum hverfum borg­ar­innar. Píratar vilja styðja við aukna notkun Frí­stunda­korts­ins meðal hópa sem nýta sér það minna en aðrir og skoða að bjóða upp á frí­stunda­styrki fyrir yngri börn, en í dag geta börn á aldr­inum 6-18 ára nýtt sér frí­stunda­styrk­inn.

Píratar segj­ast einnig vilja gera til­raunir með „greiðslur til for­eldra/for­sjárað­ila 12-15 mán­aða barna sem ekki fá dag­vist­un­ar­pláss eða velja að öðrum kosti ekki að setja börnin í umönnun utan heim­ilis“ og safna gögnum um hvernig til tekst.[links]

Ekki kemur fram hversu háar greiðslur Píratar sjá fyrir sér, en hug­myndir í mál­efna­skrá Sjálf­stæð­is­flokks­ins um 100 þús­und króna mán­að­ar­legar greiðslur til for­eldra sem kjósa að vera heima með börn sín fram að tveggja ára aldri hafa vakið nokkuð umtal und­an­farna daga.

Eins og Píratar stilla því upp í stefnu sinni eiga til­raunir með þetta að nýt­ast inn í umræð­una um leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og tryggja skal að að for­eldrar sem í þessu taka fái við­eig­andi fræðslu og end­ur­gjöf.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja bjóða gjald­frjálsa móð­ur­máls­kennslu barna sem ekki hafa íslensku að móð­ur­máli og bjóða fram jafn­réttis-, kyn-, hinsegin- og kynja­fræðslu á öllum skóla­stigum.

Lausagöngusvæði hunda í öllum hverfum

Píratar segj­ast vilja að Geirsnef í Elliða­ár­vogi „geti áfram virkað sem hunda­svæði“ eftir borg­ar­línu­breyt­ingar, en fyrsti áfangi Borg­ar­línu á að liggja yfir Geirsnefið úr Voga­byggð­inni og upp á Ártúns­höfða. Píratar vilja bjóða upp á lausa­göngu­svæði fyrir hunda í öllum hverfum og að lögð sé „áhersla á fjölgun slíkra svæða í hverfum áður en breyt­ingar verða á Geirsnefi.“

Í dýra­vel­ferð­ar­stefnu flokks­ins segir einnig að þróa eigi Dýra­þjón­ustu Reykja­víkur áfram og upp­lýsa borg­ar­búa um til­vist hennar, til­gang og þjón­ustu. Einnig segir að styðja skuli við við gras­rót­ar­sam­tök í dýra­vel­ferð og stuðla að sam­starfi sveit­ar­fé­laga á milli um dýra­þjón­ustu.

Gagnsæi, lýðræði og stafræn stjórnsýsla

Í stefnu Pírata er einnig rætt um að efla gagn­sæi í rekstri borg­ar­innar, meðal ann­ars með áfram­hald­andi þróun og inn­leið­ingu á Gagnsjá Reykja­víkur og nýrri „styrkja­gátt“ sem verði með yfir­liti yfir veitta styrki frá borg­inni og for­sendur styrk­veit­inga.

Píratar segj­ast svo vilja inn­leiða lýð­ræð­is­stefnu í Reykja­vík og nýta staf­ræna stjórn­sýslu í auknum mæli. Flokk­ur­inn talar meðal ann­ars fyrir því að skapa staf­rænt inn­rit­un­ar­ferli í leik­skóla og ein­falda þjón­ustu í skipu­lags- og upp­bygg­ing­ar­málum.

Kjarn­inn mun fara yfir fram­lagðar kosn­inga­á­herslur allra helstu fram­boða í Reykja­vík í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár