Boða þéttingu byggðar í jaðri byggðar og styrki fyrir að hafa ung börn heima

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðar þétt­ingu byggðar í Stað­ar­hverfi, Úlf­arsár­dal og Kjal­ar­nesi og seg­ist vilja tryggja 100 þús­und króna styrki á mán­uði til reyk­vískra for­eldra sem „vilja dvelja heima með börnin sín eftir fæð­ing­ar­or­lof“.

Hildur Björnsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björns­dóttir leiðir lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Flokk­arnir sem bjóða fram til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga eru byrj­aðir að kynna áherslur sínar fyrir kom­andi kosn­ingar og þá fram­tíð­ar­sýn sem þeir bjóða kjós­endum í höf­uð­borg­inni, nú þegar ein­ungis þrjár vikur eru til kosn­inga.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn reið á vaðið og hélt blaða­manna­fund í Perlunni á mið­viku­dag, þar sem fram­bjóð­endur flokks­ins fóru yfir mál­efna­á­herslur flokks­ins, undir slag­orð­inu „Reykja­vík sem virkar“.

Flokk­ur­inn var sá stærsti í borg­inni í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 með 30,8 pró­sent atkvæða og hefur verið með 8 borg­ar­full­trúa, en náði þrátt fyrir það ekki saman við aðra flokka um meiri­hluta­sam­starf í upp­hafi kjör­tíma­bils.

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar frá 13. apríl mælist flokk­ur­inn enn stærstur, með 25 pró­sent fylgi í Reykja­vík. Kjarninn leit yfir helstu áhersl­urnar sem flokk­ur­inn setti fram í vik­unni.

Ný hverfi að Keldum og Örfirisey og þétting í úthverfum

Í skipu­lags­málum seg­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilja „hefja kröft­uga hús­næð­is­upp­bygg­ingu um alla borg í lif­andi borg­ar­hverfum“ og að flokk­ur­inn ætli sér að tryggja skipu­lag nýrra hverfa að Keldum og í Örfirisey. Einnig boðar flokk­ur­inn „þétt­ingu byggðar innan hverfa sem hafa til þess svig­rúm“ og svo eru nefnd þrjú úthverfi borg­ar­innar; Stað­ar­hverfi, Úlf­ars­árs­dalur og Kjal­ar­nes.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja fleiri 15 mín­útna hverfi, þar sem verslun og þjón­usta sé nærri íbúum og öfl­ugri versl­un­ar­kjarna innan hverfa. Í því skyni seg­ist flokk­ur­inn vilja tryggja stofn­styrki til þeirra sem vilji hefja rekstur í auðum rýmum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur það einnig á sinni mál­efna­skrá að tryggja „ein­fald­ara kerfi, raf­ræna stjórn­sýslu og 30 daga afgreiðslu­fresti“ í málum sem snerta upp­bygg­ingu hús­næðis.

Foreldrastyrkir og hærri frístundastyrkur

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn seg­ist ætla að tryggja leik­skóla­pláss fyrir öll börn er þau ná 12 mán­aða aldri, en hið sama hefur verið á stefnu­skrá borg­ar­yf­ir­valda allt kjör­tíma­bilið. Í upp­hafi kjör­tíma­bils var stefnt að því að öll 12 mán­aða börn kæmust inn á leik­skóla fyrir lok árs 2023, en nýlega var áætlun borg­ar­innar um leik­skóla­mál, sem ber nafnið Brúum bilið, upp­færð og nú segir borgin að byrjað verði að „taka á móti 12 mán­aða börnum í leik­skóla borg­ar­innar í haust“.

Einnig boðar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að hann ætli sér að tryggja hækkun frí­stunda­styrks borg­ar­innar, úr 50 þús­und krónum upp í 70 þús­und krónur. Í dag er Frí­stunda­kortið svo­nefnda í boði fyrir börn á aldr­inum 6-18 ára, en flokk­ur­inn vill að það gildi fyrir börn frá 5 ára aldri.

Í mál­efna­skrá flokks­ins segir einnig að flokk­ur­inn vilji tryggja svo­kall­aða for­eldra­styrki, en það væri 100 þús­und króna greiðsla á mán­uði „fyrir for­eldra sem vilja dvelja heima með börnin sín eftir fæð­ing­ar­or­lof, til tveggja ára ald­urs.“

[adspot]

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðar einnig að hann vilji auka stuðn­ing við einka­rekna skóla, þannig að þeir þurfi ekki að inn­heimta skóla­gjöld. Sjálf­stætt starf­andi grunn­skólar eiga rétt á því að fá fram­lög til sveit­ar­fé­lögum sem nemur 75 pró­sent af með­al­kostn­aði við hvern grunn­skóla­nema í land­inu, en ekk­ert hámark er sett á hversu mikið sveit­ar­fé­lög mega greiða með nem­endum sjálf­stætt starf­andi skóla.

Borgarlína ekki nefnd á nafn í samgönguáherslum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn seg­ist vilja tryggja „frelsi og val um fjöl­breyttar sam­göngur“ og notar í mál­efna­skrá sinni það orða­lag að einn far­ar­máti eigi ekki að úti­loka annan. Athygli vekur að Borg­ar­lína er ekki nefnd á nafn í mál­efna­skrá flokks­ins, en þar segir þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji tryggja „öfl­ugar og nútíma­legar almenn­ings­sam­göngur“.[links]

Flokk­ur­inn vill tryggja að upp­bygg­ing Sunda­brautar verði hafin á kjör­tíma­bil­inu, að hjól­reiða­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar verði fram­fylgt af metn­aði og að upp­hit­uðum stígum verði fjölgað í borg­inni. Einnig seg­ist flokk­ur­inn vilja tryggja snjallar ljósa­stýr­ingar um alla borg og að orku­skiptum verði hraðað með bættu aðgengi að hleðslu­stöðvum fyrir raf­bíla í borg­ar­land­inu, í sam­starfi við aðila á mark­aði.

Endurskipulagning rekstrar og fækkun borgarfulltrúa

Í mál­efna­skrá flokks­ins segir að stjórn­kerfi borg­ar­innar hafi „orðið að bákni“ og minnka þurfi yfir­bygg­ingu, stöðva skulda­söfnun og sýna ráð­deild er sýslað er með fjár­muni borg­ar­búa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn seg­ist telja mik­il­vægt að rekstur borg­ar­kerf­is­ins verði end­ur­skipu­lagður og ætlar sér að tryggja hag­ræð­ingu í opin­berum rekstri og minni umsvif borg­ar­innar í sam­keppn­is­rekstri.

Auk þess er flokk­ur­inn með það inni í mál­efna­skrá sinni að tryggja þrýst­ing á að borg­ar­full­trúum verði fækkað úr 23 niður í 15. Sá þrýst­ingur mun þá bein­ast að rík­is­stjórn­inni og Alþingi, en borg­ar­full­trúum var fjölgað úr 15 úr 23 eftir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í takti við gild­andi sveit­ar­stjórn­ar­lög frá 2011.

Samkvæmt þeim lögum eiga aðal­menn í sveit­ar­stjórnum sveit­ar­fé­laga þar sem íbúar hafa verið 100 þús­und eða fleiri fjögur ár í röð að vera 23-31 tals­ins.

Lægri fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn seg­ist ætla sér að tryggja lækkun fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði og aukið fram­boð atvinnu­lóða í Reykja­vík. Einnig vill flokk­ur­inn að „nýsköp­un­ar­þorp“ verði til í Örfirisey fyrir hug­vits­drifna starf­semi.

Flokk­ur­inn vill einnig tryggja að fast­eigna­skattar af íbúð­ar­hús­næði þeirra sem eru 67 ára eða verði lækk­aðir. Tekið er fram í mál­efna­skránni að flokk­ur­inn vilji tryggja að tekju­mörk vegna afslátta verði hækkuð sem nemur 1,8 milljón kr. af árs­tekjum.

Í umhverfis- og lofts­lags­málum segir flokk­ur­inn að hann vilji tryggja kolefn­is­bind­ingu, „með lausnum á borð við Carbfix, skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis“, auk þess sem flokk­ur­inn vill tryggja að „staðið verði vörð um græn svæði og þau byggð upp til úti­vistar“.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig ætla að tryggja að sorp­hirða verði öfl­ugri og end­ur­vinnsla sam­ræmd, auk þess sem betur verði staðið að snjó­ruðn­ingi að vetri og götu­sópun að vori.

Kjarninn mun fara yfir fram­lagðar kosn­inga­á­herslur allra helstu fram­boða í Reykja­vík á næstu dögum, en flokk­arnir eru sem áður segir að leggja stefnu­mál sín fram, einn af öðrum, þessa dag­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár