Öll 12 mánaða gömul börn eiga að fá tryggt leikskólapláss fyrir lok 2023

Reykja­vík­ur­borg ætlar að ráð­ast í 5,2 millj­arða króna fjár­fest­ingu á næstu fimm árum til að fjölga leik­skóla­plássum um 700-750. Nýir leik­skólar verða meðal ann­ars byggðir. Fram­kvæmd­irnar eiga að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla­vistar.

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fjölga á leik­skóla­rýmum um 700-750 á næstu fjórum til fimm árum. Þetta verður gert með því að inn­leiða alls sjö til­lögur á tíma­bil­inu. Kostn­að­ar­mat stýri­hóps sem vann til­lög­urnar gerir ráð fyrir að inn­leið­ing þeirra kalli á 5,2 millj­arða króna fjár­fest­ingu á næstu fimm árum auk þess sem árlegur við­bótar rekstr­ar­kostn­aður vegna fjölg­unar leik­skóla­rýma verði allt að 1,4 millj­arðar króna á ári.

[adspot]Til­lög­urnar voru sam­þykktar á fundi borg­ar­ráðs í síð­ustu viku og verða form­lega kynntar á blaða­manna­fundi í Ráðhúsi Reykja­víkur klukkan 15 í dag. Yfir­skrift þess fundar er að til­lög­urnar eigi að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla svo bjóða megi öllum börnum 12 mán­aða og eldri leik­skóla­vist í Reykja­vík fyrir lok árs 2023.

Borg­ar­ráð sam­þykkti sömu­leiðis að til­lögu um stofnun stýri­hóps sem hafi eft­ir­lit með inn­leið­ingu til­lagn­anna og þeim fram­kvæmdum sem þær kveða á um.

Tekið inn tvisvar á ári

Í til­lög­unum felst meðal ann­ars að byggja fimm nýja leik­skóla, reisa við­bygg­ingar við að minnsta kosti fimm leik­skóla borg­ar­innar og ljúka við að setja á fót sér­út­búnar ung­barna­deildir við alla borg­ar­rekna leik­skóla sem hafa fjórar deildir eða fleiri á næstu fimm árum.

[adspot]Þá verða einnig nýjar leik­skóla­deildir opn­aðar í fær­an­legu hús­næði við fjóra leik­skóla strax á næsta ári. Formleg inn­taka í leik­skóla verður tvisvar á ári, ann­ars vegar í ágúst/sept­em­ber eins og verið hefur en líka í jan­úar/febr­úar á hverju ári. Eftir sem áður verði heim­ilt að taka inn börn á öðrum tímum ef leik­skóla­rými losnar.

Að end­ingu verður stefnt að því að fjölga börnum hjá sjálf­stætt reknum leik­skólum og dag­for­eldrum í sam­starfi við við­kom­andi rekstr­ar­að­ila.

Nýir leikskólar byggðir

Nýju leik­skól­arnir sem eiga að rísa verða stað­settir í Úlf­arsár­dal, við Kirkju­sand, Njáls­götu, Voga­byggð og Skerja­fjörð. Við­bygg­ing­arnar sem byggja á verða við leik­skól­ana Seljakot, Kvista­borg, Reyn­is­holt og Hof auk leik­skóla í Graf­ar­vogi.

Þá kemur fram í til­lögum stýri­hóps­ins að á árunum 2018-2023 sé stefnt að því að börnum í sjálf­stætt reknum leik­skólum fjölgi um allt að 166 til við­bótar þeirri fjölgun sem þegar er orðin á haust­mán­uðum 2018.

Stýri­hóp­inn skip­uðu: Skúli Helgason for­maður, Ilmur Krist­jáns­dóttir og svo í hennar stað Guðrún Alda Harð­ar­dóttir frá 24. nóv­em­ber 2016, Líf Magneu­dóttir, Jóna Björg Sætran, James Maddison, og Kjartan Magn­ús­son en Örn Þórð­ar­son tók sæti þess síð­ast­nefnda í hópnum í sept­em­ber 2016. Starfs­maður hóps­ins var í byrjun Hildur Skarp­héð­ins­dóttir en Ingi­björg M. Gunn­laugs­dóttir tók við af henni í sept­em­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leikskóli

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár