Helmingur starfsfólks leikskóla ófaglært

Leik­skóla­börnum á Íslandi fækk­aði á milli áranna 2014 og 2015. Yfir helm­ingur starfs­manna leik­skóla eru ófag­lærðir og mennt­uðum leiks­skóla­kenn­urum hefur fækkað um 202 á tveimur árum. Útlenskum börnum hefur hins vegar fjölgað mikið.

Leik­skólum, leik­skóla­börnum og starfs­fólki sem starfar á leik­skólum fækkar á milli ára á Íslandi. Í des­em­ber síð­ast­liðnum sóttu alls 19.362 börn leik­skóla, eða 576 færri en á sama tíma árið áður. Fækkunin stafar af fámenn­ari árgöngum. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Hagstofu Íslands.

Leik­skólum fækk­aði um fjóra á milli ára og voru 251 í lok síð­asta árs. Flestir voru þeir 282 árið 2009 og hefur því fækkað um 31 síðan þá. Sveita­fé­lög reka 86 pró­sent allra leik­skóla á land­inu.

Yfir helmingur starfsfólks ómenntaður

Mennt­uðum leik­skóla­kenn­urum sem starfa á leik­skólum hefur fækkað nokkuð hratt á und­an­förnum árum, eða um 202 frá árinu 2013. Í des­em­ber í fyrra voru þeir 1.758 tals­ins eða um þriðj­ungur starfs­manna leik­skóla. Starf­andi leik­skóla­kenn­urum hefur fækkað um 202 frá árinu 2013 þegar þeir voru flestir. Starfs­mönnum sem lokið hafa annarri upp­eld­is­menntun hefur einnig fækkað mikið, eða um 97 frá árinu 2014.

Ófag­lærðum starfs­mönnum hefur á hinn bóg­inn fjölgað mikið og þewir eru nú rúm­lega helm­ingur (52,2 pró­sent) allra starfs­manna leiks­skóla lands­ins. Þeim hefur fjölgað árlega frá árinu 2011. Körlum sem starfa á leik­skólum fækk­aði á síð­asta ári um 34 og voru 350 tals­ins í des­em­ber 2015. Þá voru þeir 5,9 pró­sent allra starfs­manna leik­skóla lands­ins.

Börnum sem njóta sér­staks stuðn­ings fjölg­aði á milli áranna 2014 og 2015 og eru drengir sem fyrr fleiri í þeim hópi en stúlkur.

Viðvera barna á leik­skólum hefur hægt og bít­andi verið að lengj­ast und­an­farin ár. Í des­em­ber 2015 voru um 87 pró­sent barna lengur en átta tíma á dag á leik­skóla. Árið 1998 var það hlut­fall 40,3 pró­sent. Börnum sem dvelja ein­ungis hálfan dag­inn á leik­skóla hefur fækkað mikið.

Þúsund fleiri börn með erlent ríkisfang en 2001

Fjöl­menn­ingin skilar sér einnig inn á leik­skól­anna. Árið 2001 var eitt pró­sent leik­skóla­barna með erlent rík­is­fang en í des­em­ber síð­ast­liðnum voru sex pró­sent þeirra með slíkt. Fjöldi barna með erlent rík­is­fang óx úr 159 árið 2001 í 1.165 í fyrra. Þeim fækk­aði þó á síð­asta ári um 69 og er það í fyrsta sinn sem börnum með erlent rík­is­fang fækkar á milli ára frá því að Hag­stofan hóf að taka saman upp­lýs­ingar um þau skömmu eftir síð­ustu ald­ar­mót.

Börnum með erlent móð­ur­mál hefur fjölgað úr 755 árið 2001 og eru nú 2.435 tals­ins, eða 12,6 pró­sent allra leik­skóla­barna. Þeim fjölg­aði um 238 í fyrra. Í frétt Hag­stof­unnar segir að pólska sé algeng­asta erlenda tungu­mál leik­skóla­barna og að 935 börn hafi haft pólsku að móð­ur­máli í des­em­ber í fyrra. Næst flest börn eiga ensku að móð­ur­máli og því næst fil­ippseysk mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár