Innflytjendum mun fjölga um 12 til 30 þúsund hið minnsta innan fimm ára

Mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir því að mun fleiri muni flytja til lands­ins en frá því frá byrjun þessa árs og til loka árs 2022. Sú aukn­ing er fyrst og fremst vegna þess að erlendir rík­is­borg­arar flytja hingað.

Mikill vöxtur í ferðaþjónustu og byggingaiðnaði hefur skapað mikla eftirspurn eftir vinnuafli á Íslandi. Þeirri eftirspurn mætir erlent vinnuafl sem flyst hingað til lands.
Mikill vöxtur í ferða­þjón­ustu og bygg­inga­iðn­aði hefur skapað mikla eft­ir­spurn eftir vinnu­afli á Íslandi. Þeirri eft­ir­spurn mætir erlent vinnu­afl sem flyst hingað til lands. Mynd: Bára Huld Beck

Búist má við því að þeim sem flytja til Íslands umfram þá sem flytja á brott verði 20.883 tals­ins frá byrjun árs 2018 og til loka árs 2022, sam­kvæmt mið­spá Hagstofu Íslands um þróun mann­fjöld­ans á Íslandi næstu árin. Láspá stofn­un­ar­innar gerir ráð fyrir að aðfluttum fjölgi um 12.252 en háspáin 29.323 á þessu fimm ára tíma­bili.

[links]Hinir aðfluttu verða fyrst og fremst erlendir inn­flytj­endur sam­kvæmt spánni og fleiri íslenskir rík­is­borg­arar munu áfram flytja frá land­inu en til þess. Í byrjun árs 2018 voru erlendir rík­is­borg­arar sem bjuggu hér­lendis 37.950 tals­ins. Láspáin gerir ráð fyrir að þeim fjölgi um 32,3 pró­sent, mið­spáin gerir ráð fyrir að þeim fjölgi um 64,5 pró­sent fram til loka árs 2022 og háspáin gerir ráð fyrir því að þeim fjölgað um 77,2 pró­sent.

Því má búast við að í lok árs 2022 verði erlendir inn­flytj­endur hér­lendis 58.833 til 67.273 tals­ins hið minnsta ef annað hvort mið- eða háspá Hag­stof­unnar verða að veru­leika. Það myndi þýða að erlendir rík­is­borg­arar yrðu 15,6 til 17,4 pró­sent allra íbúa lands­ins. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 10,9 pró­sent þeirra.

Spáin gerir ráð fyrir tímabundnum viðsnúningi eftir 2022

Mann­fjölda­spáin gerir þó ráð fyrir því að eftir árið 2022 muni þró­unin snú­ast við og fleiri muni flytja burt en til lands­ins. Í segir: „Til að ná...jafn­væg­is­á­standi þarf þó að gera ráð fyrir að hinn mikli fjöldi aðfluttra hverfi aftur til baka eftir skamm­tíma­spána eins og reyndin hefur verið und­an­farna ára­tugi. Þetta er gert með því að hafa fimm ára tíma­bil milli skamm­tíma- og lang­tíma­spár­innar þar sem brott­flutn­ingur þeirra sem spáð er að komi til lands­ins á næstu fimm árum er áætl­aður út frá með­al­lengd dvalar útlend­inga á Íslandi und­an­farin 20 ár.“

[adspot]Miðspáin gerir því ráð fyrir að frá byrjun árs 2023 og til loka árs 2027 verði brott­fluttir umfram aðflutta alls 13.455 tals­ins, og lág­spáin gerir ráð fyrir að þeir verði 15.515. Samhliða muni íbúum lands­ins fækka á umræddu fimm ára tíma­bili.

Þróun á fjölda erlendra rík­is­borg­ara sem hingað flytja, og þeirra sem ákveða að dvelja áfram, er bundin við gang efna­hags­mála. Ef vöxtur er í íslensku sam­fé­lagi, og sér­stak­lega mann­afls­frekum geirum á borð við ferða­þjón­ustu og bygg­inga­iðnað, þá mun fjöldi þeirra sem flytja hingað lík­ast til ekki drag­ast saman á tíma­bil­inu líkt og spáin gerir ráð fyrir, heldur halda áfram að aukast. Að sama skapi gæti aðfluttum erlendum rík­is­borg­urum fækkað hratt á kom­andi árum ef hörð lend­ing verður í efna­hags­málum.

Mikil fjölgun á skömmum tíma

Öll fjölgun lands­manna á fyrri hluta árs­ins 2018, og vel rúm­lega það, má rekja til þess að erlendir rík­is­borg­ara fluttu hingað til lands. Mann­fjölda­spáin fyrir árið 2018 tekur mið af þeirri miklu aukn­ingu.

Í lok júní síð­ast­lið­ins voru erlendir rík­is­borg­arar sem hér búa orðnir 41.280 tals­ins og hafði fjölgað um 3.328 frá ára­mót­um, eða um 8,7 pró­sent.

Alls fjölg­aði íbúum á Íslandi um 2.360 á tíma­bil­inu og því ljóst að lands­mönnum hefði fækkað ef ekki hefði verið fyrir aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nes­bæ. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár