Líkur á samdrætti aukast

Líklegt er að íslenska hag­kerfið finni fyrir nokkrum sam­drætti seinna á þessu ári sam­kvæmt töl­fræði­grein­ingu ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Analytica.

Debetkortavelta og komur ferðamanna hafa farið minnkandi undanfarið.
Debet­korta­velta og komur ferða­manna hafa farið minnk­andi und­an­farið. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Leiðandi hag­vísir Analytica fyrir íslenska efna­hags­kerfið lækk­aði í síð­asta mán­uði og gefur til kynna að sam­dráttur gæti verið á næsta leiti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Analytica sem birt­ist fyrr í dag.

Hag­vísir­inn, sem byggir á sex und­ir­þáttum efna­hags­lífs­ins, hefur verið birtur frá í apríl 2013 af ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Analytica. Samkvæmt Yngva Harð­ar­syni, fram­kvæmda­stjóra Analytica er hlut­verk vísi­töl­unnar að vara tím­an­lega við við­snún­ingi í efna­hags­málum með því að gefa vís­bend­ingu um stöðu hag­kerf­is­ins að sex mán­uðum liðnum.

Vísirinn er reikn­aður á grund­velli sömu aðferð­ar­fræði og aðrar sam­bæri­legar leið­andi vísi­tölur, sér í lagi leið­andi vísi­tölu OECD. Hann byggir á sex und­ir­þáttum sem hver um sig leiðir almenn efna­hags­um­svif í tíma á afmörk­uðu sviði hag­kerf­is­ins. Þeir eru eft­ir­far­andi:

  1. Vænt­inga­vísi­tala Gallup
  2. Vöru­inn­flutn­ingur
  3. Vísitala afla­verð­mæta
  4. Heims­vísi­tala hluta­bréfa
  5. Debet­korta­velta 
  6. Komur ferða­manna Íslands í gegnum Leifs­stöð

Allar vísi­tölur og fjár­hæðir eru á föstu verð­lagi auk þess sem þær eru leið­réttar með til­liti til árs­tíða­sveiflna.

Samkvæmt til­kynn­ingu Analytica lækk­uðu allir und­ir­þættir vísi­töl­unnar sem sneru að Íslandi milli júní og maí, en heims­vísi­tala hluta­bréfa var eini þátt­ur­inn sem hækk­aði. Stærstu áhættu­þættir í lík­an­inu eru vegna ytri aðstæðna, en til­kynn­ingin nefnir þar sér­stak­lega þró­un­ina í alþjóða­stjórn­málum.

Vísi­talan hefur farið lækk­andi milli mán­aða nú fimmta mán­uð­inn í röð og er það stærsta sam­fellda lækkun vísi­töl­unnar frá fjár­mála­hrun­inu árið 2008. Miklu munar þó á sveifl­unum tveimur, en vísi­talan lækk­aði um 13% í hrun­inu, til sam­an­burðar við tveggja pró­sentu lækkun hennar í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár