Samdráttur í flugi meginástæða þess að losun íslenska hagkerfisins minnkar hratt

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá íslenska hag­kerf­inu dróst veru­lega saman í fyrra. Það var annað árið í röð sem það ger­ist. Stærst ástæðan: sam­dráttur í umfangi flugs á vegum íslenskra flug­fé­laga.

Losun hit­un­ar­gilda, svo­kall­aðra CO2-ígilda, frá íslenska hag­kerf­inu dróg­ust saman um 16,3 pró­sent milli áranna 2019 og 2020. Frá því að árs­losun Íslands náði hámarki, 2018, hefur los­unin dreg­ist saman um tæp 28 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýjum bráða­birgða­tölum um losun gróð­ur­húsa­lofts frá hag­kerfi Íslands sem Hagstofa Íslands heldur utan um.

Tölurnar eru byggðar á ofts­lags­bók­haldi hag­kerf­is­ins (AEA bók­haldi) sem Hag­stofan gefur út árlega í sam­ræmi við reglur Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins. AEA bók­haldið byggir meðal ann­ars á lofts­lags­skýrslu Íslands (NIR), sem Umhverf­is­stofnun skilar til lofts­lags­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, og orku­bók­haldi Íslands sem Orku­stofnun skilar til Alþjóða orku­ráðs­ins (IEA).

Minna flug lykilbreyta

Stærsta ástæðan fyrir minni losun er að slík vegna flug­rekstrar hefur dreg­ist gríð­ar­lega saman á skömmum tíma. Losun hér tekur ein­göngu til­lit til rekst­urs íslenskra félaga, en ekki los­unar vegna flug­ferða erlendra flug­fé­laga sem hafa við­komu á Íslandi.

Einn fylgi­fiskur þess mikla vaxtar sem var í ferða­þjón­ustu á árunum 2011 og fram á árið 2019, var mikil aukn­ing los­unar á gróð­ur­húsa­loft­teg­und­um, vegna vaxtar í flugi. [adspot]Ferða­mönnum fjölg­aði úr um 450 þús­und á ári árið 2010 í 2,3 millj­ónir árið 2018.

Losun vegna flug­rekstrar náði hámarki á því ár, 2018, þegar þrjú íslensk flug­fé­lög buðu upp á milli­landa­flug milli Íslands og ann­arra landa: Icelandair, WOW air og Primera Air.

Primera Air varð hins vegar gjald­þrota seint á árinu 2019 og WOW air for í þrot snemma árs 2019. Auk þess dróst flug Icelandair saman á árinu 2019 vegna kyrr­setn­ingar á 737 MAX vélum félags­ins frá Boeing-fram­leið­and­anum. Milli áranna 2018 og 2019 dróst losun vegna flugs enda saman um 44 pró­sent.

Losun vegna flugs og heimilisbíla mældist minni

Sú þróun hélt áfram á síð­asta ári, en nú var helsti áhrifa­vald­ur­inn kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn sem lam­aði flug­sam­göngur út um allan heim og leiddi af sér stór­tækar ferða­tak­mark­anir. Þar er nán­ast ein­vörð­ungu um sam­drátt á flugi á vegum Icelandair að ræða. Alls fækk­aði ferða­mönnum sem heim­sóttu Ísland úr tæpum tveimur millj­ónum árið 2019 í 479 þús­und í fyrra, eða um 76 pró­sent.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar var losun á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs 25,5 pró­sent minni en á sama árs­fjórð­ungi árið áður.

Losun vegna akst­urs heim­il­is­bíla mæld­ist sjö pró­sent minni og losun vegna flug­rekstrar var 36,3 pró­sent minni á fjórða árs­fjórð­ungi en hún var á sama árs­fjórð­ungi árið 2019. losun frá iðn­aði jókst hins vegar um 6,8 pró­sent milli ára þegar horft er á síð­ustu þrjá mán­uði hvers árs ein­vörð­ungu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár