Hvað vissi ráðherrann?

Danskir þing­menn vilja fá að vita hvort sam­göngu­ráð­herra lands­ins hafi haustið 2019 sagt þing­inu allt sem hann vissi um örygg­is­mál á Kastrup flug­velli. Málið snýst um biluð flug­braut­ar­ljós sem hefðu getað valdið stór­slysi.

Þotuhreyflar sem keyrðir eru á fullu afli í flugtaki mynda mikinn sogkraft og geta sogað að sér hluti sem liggja á brautinni. Og flugbrautarljósin sjálf, ef ekki er tryggilega gengið frá þeim.
Þotu­hreyflar sem keyrðir eru á fullu afli í flug­taki mynda mik­inn sog­kraft og geta sogað að sér hluti sem liggja á braut­inni. Og flug­braut­ar­ljósin sjálf, ef ekki er tryggi­lega gengið frá þeim. Mynd: Pexels

Í nóv­em­ber árið 2019 komst dag­blaðið Politi­ken á snoðir um drög að skýrslu um fjögur svo­nefnd „óör­ugg til­vik“ (usikre for­hold) á Kastrup-flug­velli. Mikil leynd hvíldi yfir skýrslu­drög­unum en blaða­menn Politi­ken, sem ekki sáu gögnin, vissu að málið snérist um ljósin á flug­brautum vall­ar­ins. Í drög­unum var talað um braut­ar­ljós og í fyrstu töldu blaða­menn að málið varð­aði svo­nefndar ljósastikur. Síðar kom í ljós að um var að ræða ljós sem felld eru niður í flug­braut­ina sjálfa, bæði miðju hennar og út við jaðrana. Afmarka þannig braut­ina. Ljósin, sem eru 30 senti­metrar í þver­mál, og vega um það bil 8 kíló, eru fest með boltum við stál­rör, sem grafin eru niður í braut­ina. Á Kastrup flug­velli eru um 9 þús­und slík ljós.

Það sem hafði gerst, hin svo­nefndu „óör­uggu til­vik“, lýsti sér í stuttu máli þannig að í nokkur skipti höfðu braut­ar­ljósin losnað úr fest­ing­unum, ýmist að hluta eða alveg. Ljósin og hlutar úr þeim fund­ust síðar, á flug­braut­unum. Í einu hinna alvar­legu til­vika ók flug­vél sem var á leið í stæði á „eitt­hvað“ sem lá á braut­inni. Þetta „eitt­hvað“ reynd­ist vera braut­ar­ljós sem hafði losnað. Ekkert tjón hlaust af enda vélin á lít­illi ferð.

Alvarlegar afleiðingar

Auka­hlutir á flug­brautum geta haft mjög alvar­legar afleið­ingar eins og dæmin sanna. 25. júlí árið 2000 fórst Concorde þota í flug­taki frá Charles de Gaulle-flug­vell­inum við París, 109 voru um borð og fór­ust allir. Við rann­sókn slyss­ins kom í ljós að vélin hafði ekið á hlut sem lá á braut­inni og hafði losnað af annarri vél skömmu áður. Þegar Concorde vélin ók á hlut­inn sprakk og rifn­aði dekk og hluti þess reif gat á annan væng­inn og leki kom að elds­neyt­is­geymi. Þá braust eldur út og vélin hrap­aði til jarðar úr lít­ill hæð.

[adspot]

6. maí árið 2014 lenti Boeing 747, oft kölluð Jumbo, á flug­vell­inum í Tókýó eftir 12 tíma flug frá JFK flug­vell­inum í New York. Ekkert bar til tíð­inda á leið­inni en eftir lend­ingu upp­götv­að­ist gat neðan á búk vél­ar­innar. Gatið var eftir braut­ar­ljós sem hafði losnað, og lenti á vél­inni þegar hún tók á loft. Ljósið var sams­konar og notuð eru á flug­völlum víða um heim, þar á meðal á Kastrup. Í ljós kom að eft­ir­liti með braut­ar­ljós­unum á flug­vell­inum í New York hafði verið veru­lega ábóta­vant og flug­vall­ar­stjór­inn var lát­inn taka pok­ann sinn.

Rangur frágangur skapar hættu

Eins og áður var nefnt eru nið­ur­felldu braut­ar­ljósin boltuð við und­ir­stöð­una sem grafin er niður í braut­ina. Þótt það virð­ist kannski ekki flókið að herða tvo eða fjóra bolta þannig að þeir losni ekki þarf eigi að síður að gera það með réttum hætti. Og þar hefur iðu­lega orðið mis­brestur. Og þannig var það einmitt á flug­vell­inum í Kaup­manna­höfn, rétt eins og á JFK flug­vell­inum í New York, frá­gangur ljósanna var ekki með réttum hætti.

Þotu­hreyflar sem keyrðir eru á fullu afli í flug­taki mynda mik­inn sog­kraft og geta sogað að sér hluti sem liggja á braut­inni. Kraft­ur­inn er svo mik­ill að hlutir eins og til dæmis flug­braut­ar­ljósin takast hrein­lega á loft og geta lent í hreyfl­inum sjálfum og stór­skemmt hann eða lent á flug­véla­búknum eins og raunin varð með Jumbo þot­una á JFK flug­vell­inum. Hola eftir ljós sem hefur losnað getur líka valdið tjóni, eða slysi ef flug­vél­ar­hjól fer yfir hol­una. Dæmi eru um slíkt. Eftir því sem hjólin á flug­vél­inni eru minni því meiri er hættan.

Leyndu ástandinu

Eftir að Politi­ken greindi frá skýrslu­drög­unum haustið 2019 kröfð­ust þing­menn þess að fá nán­ari vit­neskju um málið. Benny Engelbrecht sam­göngu­ráð­herra vildi bíða eftir skýrsl­unni. Þegar skýrslan var til­búin, skömmu fyrir árs­lok 2019 mætti yfir­stjórn flug­vall­ar­ins á fund sam­göngu­nefndar þings­ins. Þar var farið yfir skýrsl­una sem nefnd á vegum yfir­stjórnar flug­vall­ar­ins hafði unnið en sam­göngu­nefnd þings­ins fékk ekki skýrsl­una sjálfa. Fram kom að við­haldi ljósa­bún­aðar vall­ar­ins væri mjög ábóta­vant og sama gilti um eft­ir­lit með ljós­unum.

Yfir­stjórn flug­vall­ar­ins ákvað að ekki væri ástæða til að loka flug­vell­inum, ástandið væri ekki svo alvar­legt. Á fund­inum með sam­göngu­nefnd þings­ins nefndi flug­vall­ar­stjórnin ekki eitt mjög mik­il­vægt atriði: þrír sér­fræð­ingar í örygg­is­málum, starfs­menn flug­vall­ar­ins, töldu að loka ætti flug­vell­inum í fimm til sjö daga meðan ljósa­bún­að­ur­inn yrði yfir­far­inn. Sögðu ekki for­svar­an­legt að leyfa flug­um­ferð eins og ástandið væri.

Á þessu fimm til sjö daga tíma­bili sem um ræðir fóru um 560 þús­und manns um flug­völl­inn. Í stað þess að loka flug­vell­inum brá yfir­stjórnin á það ráð að loka brautum vall­ar­ins til skiptis meðan ljósa­bún­að­ur­inn var yfir­far­inn, sú ákvörðun stríðir gegn reglum. Samkvæmt þeim má ekki halda flug­braut, þar sem örygg­is­mál eru ekki í lagi, opinni. Þess má geta að sér­fræð­ing­arnir tveir, sem nefndir voru hér að framan, voru í hópi þeirra fjöl­mörgu starf­manna flug­vall­ar­ins sem misstu vinn­una í kjöl­far kór­óna­veirunnar.

Sagði pabba að fljúga ekki

Síð­ast­lið­inn sunnu­dag, 14. febr­úar, birti dag­blaðið Politi­ken (sem fyrst sagði frá mál­inu 2019) langa umfjöllun um braut­ar­ljósin á Kastrup-flug­velli. Blaðið hafði rætt við tvo þeirra örygg­is­sér­fræð­inga sem töldu að skil­yrð­is­laust hefði átt að loka flug­vell­inum í um viku­tíma í sept­em­ber 2019.

Sér­fræð­ing­arnir tveir eru ekki lengur starfs­menn flug­vall­ar­ins. Í við­tal­inu við Politi­ken kom fram að þeir hefðu, meðan þeir voru við störf verið bundnir þagn­ar­skyldu. Annar þeirra sagð­ist hafa rofið þagn­ar­skyld­una og í sept­em­ber 2019 sagt föður sínum, sem ferð­ast mikið með flugi, að hann skyldi halda kyrru fyrir, í til­tek­inn daga­fjölda. Án þess að til­greina nákvæm­lega ástæður.

Hvað vissi ráðherrann?

Umfjöllun Politi­ken og við­tölin við sér­fræð­ing­ana vöktu athygli þing­manna. Þeir vilja nú fá að vita hvað ráð­herr­ann vissi þegar sagt var frá skýrsl­unni um braut­ar­ljósin haustið 2019. ,,Hafi ráð­herr­ann vitað að örygg­is­sér­fræð­ingar vildu loka flug­vell­inum, en brást ekki við er það mjög alvar­legt“ sagði einn þing­maður í við­tali vegna máls­ins.

Annar sagði það alvar­legt ef Sam­göngu­stofa (Trafik­styrel­sen) hafi ekki verið upp­lýst um allt inni­hald skýrsl­unnar á sínum tíma. Benny Engelbrecht sam­göngu­ráð­herra sagði að hann hefði þegar skrifað Sam­göngu­stofu og beðið um skýr svör við því hvaða upp­lýs­ingar menn þar á bæ hefðu fengið frá yfir­stjórn flug­vall­ar­ins. „Og ef Sam­göngu­stofa hefur vitað allt um málið vil ég fá að vita af hverju ekki var brugð­ist við,“ sagði ráð­herr­ann.

Nokkrir þing­menn hafa kraf­ist þess að sam­göngu­ráð­herr­ann geri hreint fyrir sínum dyrum, segi afdrátt­ar­laust hvort hann vissi frá upp­hafi allt um inni­hald skýrsl­unnar. Málið sé grafal­var­legt „eini ljósi punkt­ur­inn er sá að ekki varð slys“ sagði þing­maður Venstre í við­tali vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár