Félag flugmanna telur hugmyndir Miðflokks um varaflugvöll í Skagafirði óraunhæfar

Það er „með öllu óraun­hæft“ að byggja upp Alex­and­ers­flug­völl í Skaga­firði eins og þing­flokkur Mið­flokks­ins telur vert að kanna, að mati Félags íslenskra atvinnu­flug­manna. Bent er á að aðrir flug­vellir, sem séu í reglu­legri notkun, þurfi við­hald.

Sigurður Páll Jónsson þingmaður Miðflokksins er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Sigurður Páll Jónsson þing­maður Mið­flokks­ins er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Miðflokkurinn

„Þær hug­myndir sem fram hafa komið á und­an­förnum árum, um að byggja Alex­and­ers­flug­völl upp sem vara­flug­völl fyrir Kefla­víkur-, Reykja­víkur-, Akur­eyrar- og Egils­staða­flug­velli, eru með öllu óraun­hæfar,“ að mati Félags íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA), sem hefur skilað inn umsögn um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Mið­flokks­ins um málið.

Mið­flokk­ur­inn leggur til, og ekki í fyrsta sinn, að sam­göngu­mála­ráð­herra láti kanna kosti þess að byggja upp Alex­and­ers­flug­völlur við Sauð­ár­krók sem vara­flug­völl fyrir Kefla­vík­ur­flug­völl, Reykja­vík­ur­flug­völl, Akur­eyr­ar­flug­völl og Egils­staða­flug­völl.

Tillaga í þessa átt­ina var fyrst lögð fram af Gunnari Braga Sveins­syni og fleiri þing­mönnum ýmissa flokka árið 2013 og árið 2015 lagði Ásmundur Einar Daðason sam­bæri­lega til­lögu fram, með stuðn­ingi fleiri þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þetta mál klofn­aði frá Fram­sókn­ar­flokknum er Mið­flokk­ur­inn var stofn­aður. Síðan þá hafa þing­menn flokks­ins haldið mál­inu á lofti og lagt það fram á þingi haustið 2017, vet­ur­inn 2018, haustið 2018, haustið 2019 og á ný síð­asta haust.

Vert er að taka fram að Jón Þór Þor­valds­son, for­maður FÍA og vara­þing­maður Mið­flokks­ins, er ekki skrif­aður fyrir umsögn FÍA um málið heldur er það Ingvar Tryggva­son for­maður örygg­is­nefndar FÍA.

Ekki grundvöllur fyrir reglulegu flugi

Félag íslenskra atvinnu­flug­manna segir það rétt sem fram komi í grein­ar­gerð þing­flokks­ins, að Skaga­fjörður sé breiður, aðflugið gott og völl­ur­inn vel stað­settur veð­ur­fars­lega. Hið sama megi þó segja um marga aðra flug­velli.

„Vandinn felst í því að ekki er grund­völlur fyrir reglu­bundnu áætl­un­ar­flugi stórra véla til vall­ar­ins, þannig að þeir inn­viðir og tækja­bún­aður sem þyrfti til að sinna ætl­uðu hlut­verki stæðu ónot­aðir frá degi til dags,“ segir í umsögn FÍA.

[adspot]

Þar er vísað til þess að árið 2018 sendi lög­fræð­ingur Isavia inn umsögn til þings­ins þar sem fram kom að fram­kvæmd­irnar myndu kalla á 4-5 millj­arða króna fjár­fest­ingu. Slíkt telur FÍA ekki raun­hæft, á meðan að mikil fjár­fest­ing­ar­þörf sé á öðrum flug­völlum lands­ins.

Flug­manna­fé­lagið vísar til nýlegrar skýrslu Samtaka iðn­að­ar­ins og Félags ráð­gjaf­ar­verk­fræð­inga um inn­viði á Íslandi, sem kynnt var 17. febr­úar. Í þeirri skýrslu kom fram að bæði á Reykja­vík­ur­flug­velli og Egils­staða­flug­velli væri komið að end­ur­nýjun mal­biks á flug­brautum, auk þess sem setja þyrfti upp aðflugs­ljós á Akureyri, Egils­stöðum og í Reykja­vík til þess að upp­fylla Evr­ópu­reglu­gerðir.

„Það er sann­ar­lega fagn­að­ar­efni er þing­menn láta sig flug- og flug­valla­mál varða. ÖFÍA vill góð­fús­lega benda þing­heimi á að sá alvar­legi vandi sem steðjar að okkur kemur skil­merki­lega fram í minn­is­blaði sem Isavia sendi Alþingi í tengslum við sam­göngu­á­ætlun haustið 2018.

Þannig hefur upp­söfnuð van­fjár­fest­ing í flug­valla­kerf­inu verið áætluð um 2 millj­arðar og mörg brýn verk­efni á borð­inu sem þola vart bið á þeim flug­völlum sem eru í reglu­bund­inni notkun.

Að öllu sam­an­lögðu, mælum við með því að upp­bygg­ingu Alex­and­ers­flug­vallar verði frestað þangað til raun­hæft til­efni skapst og stjórn­völd hafa náð utan um þann alvar­lega vanda sem er til staðar á þeim flug­völlum sem eru nú þegar í reglu­bund­inni notkun,“ segir í umsögn FÍA.

Sveitarfélagið styður málið og telur áhrifin á ferðaþjónustu jákvæð

Rétt eins og und­an­farin ár hefur Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður skilað inn jákvæðri umsögn um málið. „Byggð­ar­ráð styður málið og vill árétta að Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður hefur á und­an­förnum árum lagt mikla áherslu á upp­bygg­ingu Alex­and­ers­flug­vallar sem vara­flug­vallar vegna góðra lend­ing­ar­skil­yrða og land­fræði­legrar legu flug­vall­ar­ins,“ segir í bókun byggða­ráðs frá 21. febr­úar sem send var til Alþingis sem umsögn.

Segir í bók­un­inni að óum­deilt sé að lend­ing­ar­skil­yrði á Alex­and­ers­flug­velli séu með því besta sem ger­ist á land­inu og að þeir dagar þar sem völl­ur­inn lokar vegna veð­ur­skil­yrða séu fátíðir. Slíkt myndi heyra til und­an­tek­inga með bættum vall­ar­bún­aði. „Jafn­framt er Ijóst að upp­bygg­ing vall­ar­ins myndi hafa veru­leg jákvæð áhrif á ferða­þjón­ustu á Norð­ur­landi öllu,“ segir byggða­ráðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár