Tæpur helmingur Íslendinga segist viss um öryggi MAX-vélanna

Um það bil einn af hverjum fimm Íslend­ingum telur óör­ugg­ara að fljúga með Boeing 737 MAX en öðrum far­þega­þotum. Það er svipað hlut­fall og sagð­ist í könnun í Banda­ríkj­unum árið 2019 ekki ætla að fljúga með þot­unum um leið og kyrr­setn­ingu yrði aflétt.

Boeing 737 MAX-vélarnar voru kyrrsettar um heim allan í nærri tvö ár.
Boeing 737 MAX-vél­arnar voru kyrr­settar um heim allan í nærri tvö ár. Mynd: EPA

Innan við helm­ingur Íslend­inga, eða 45 pró­sent, segj­ast telja það eins öruggt eða jafn­vel örugg­ara að ferð­ast með Boeing 737 MAX-þotum en öðrum far­þega­þotum. Rúmlega einn af hverjum fimm, eða 22 pró­sent, telja það hins vegar óör­ugg­ara.

Könnunin var fram­kvæmd frá 30. des­em­ber til 11. jan­úar, en nið­ur­stöður hennar birtar af hálfu MMR í gær.

Er nið­ur­stöð­urnar eru brotnar nánar niður sést að 10 pró­sent aðspurðra sögð­ust telja það mun örugg­ara að ferð­ast með Boeing MAX þot­unum heldur en öðrum far­þega­þotum, 12 pró­sent töldu það nokkuð örugg­ara, 23 pró­sent sögðu töldu það eins öruggt/óör­uggt, 11 pró­sent nokkuð óör­ugg­ara og 11 pró­sent mun óör­ugg­ara. 33 pró­sent sögð­ust svo ekki vera viss.

Karlar (54 pró­sent) sögð­ust oftar en konur (35 pró­sent) telja vél­arnar væru jafn öruggar eða örugg­ari en aðrar flug­vélar. Svipað hlut­fall karla og kvenna, eða rúm 20 pró­sent, sögð­ust telja MAX-vél­arnar óör­ugg­ari. Konur voru lík­legri til að segj­ast óvissar en karlar.

Icelandair hóf nýlega að fljúga MAX-vél­unum aftur, en flug­vélar af þess­ari teg­und voru kyrr­settar á heims­vísu snemma árs 2019 í kjöl­far þess að tvö mann­skæð flug­slys voru rakin til galla í hug­bún­aði þeirra.

Búið að fenna yfir vandræði Boeing hjá mörgum í Bandaríkjunum

Kjarn­anum lék for­vitni á að vita hvernig þessar vís­bend­ingar um traust Íslend­inga til MAX-vél­anna væru í alþjóð­legum sam­an­burði og leit­aði uppi nýlegar skoð­an­ana­kann­anir erlendis frá sem mæla traustið til MAX-vél­anna með svip­uðum hætti.

Í könnun frá Reuters og Ipsos á meðal neyt­enda í Banda­ríkj­unum sem gefin var út 28. des­em­ber 2020, degi áður en MAX-vél­arnar fengu greint ljós á að fljúga aftur í Banda­ríkj­unum, kom fram að ein­ungis 39 pró­sent svar­enda mundu eftir flug­slys­unum mann­skæðu og ástæð­unum fyrir því að MAX-vél­arnar voru kyrr­settar.

Er svar­endur voru minntir á örygg­is­brest­ina sem komu í ljós í stýr­is­bún­aði vél­anna og unnið hefur verið að því að bæta úr síð­ustu tvö árin eða svo sögð­ust heil 57 pró­sent ekki vera lík­leg til að fljúga með MAX-þot­unum. Allavega fyrsta kastið – en 37 pró­sent sögð­ust vera til í að fljúga með MAX-þotum þegar þær væru búnar að vera í notkun í sex mán­uði án óhappa.

[adspot]

Fleiri (43 pró­sent) en færri (22 pró­sent) Banda­ríkja­manna sögð­ust telja að flug­fé­lög, heilt yfir, tækju hagnað fram yfir öryggi, sam­kvæmt könn­un­inni frá Reuters/Ipsos. Mörg, ef ekki bara flest flug­fé­lög, bjóða far­þegum upp á að breyta flug­inu sínu ef þeir eru bók­aðir í flug sem á að fara á MAX-vél frá Boeing.

Lítið er um nýlegar skoð­ana­kann­anir á trausti til Boeing MAX-vél­anna, sam­kvæmt snar­pri leit Kjarnans. Þegar vand­ræði fyr­ir­tæk­is­ins voru í hámæli árið 2019 og vél­arnar nýlega kyrr­settar var þó fjöldi kann­anna fram­kvæmdur.

Bank of America fram­kvæmdi sína eigin könnun síðla árs 2019 og komst að því að ein­ungis einn af hverjum fimm aðspurðum Banda­ríkja­mönnum myndi fljúga með MAX-vél um leið og þær færu aftur í loftið. Nærri tveir þriðju aðspurðra sögðu að þeir myndu bíða alla­vega hálft ár með að fljúga með MAX-vél eftir að þær fengju leyfi til að fljúga – eða þá aldrei fljúga með þeim.

Það hefur því verið ljóst lengi að traust í garð þess­ara véla þyrfti að end­ur­heimta af hálfu Boeing og flug­fé­lag­anna sem hafa þær í flota sínum.

Þeir sem fljúga oftar segjast vissari um öryggi vélanna

Í könnun MMR kemur fram að þeir Íslend­ingar sem fljúga oft til útlanda eru lík­legri til þess að telja MAX-vél­arnar jafn öruggar eða jafn­vel örugg­ari en aðrar flug­vélar.

Samkvæmt nið­ur­stöð­unum hér á landi eru þeir sem fóru að jafn­aði fimm sinnum eða oftar til útlanda fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn lík­leg­astir til að treysta MAX-vél­unum, en 56 pró­sent þeirra sögð­ust telja vél­arnar jafn öruggar eða meira öruggar en aðrar far­þega­þotur.

Þeir sem aftur á móti sögð­ust ekki ferð­ast erlendis á hverju ári bera minnst traust til vél­anna, en ein­ungis 34 pró­sent í þeim hópi sögð­ust telja MAX-vél­arnar jafn­ör­uggar eða örugg­ari en aðrar far­þeg­ar­þotur.

Píratar ólíklegastir til að telja vélarnar öruggar

Áhuga­vert er að í könnun MMR mátti greina nokkurn mun á við­horfum til flug­vél­anna eftir stjórn­mála­skoð­unum.

Stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins (56 pró­sent), Sjálf­stæð­is­flokks­ins (53 pró­sent) og Fram­sóknar (52 pró­sent) reynd­ist lík­leg­ast til að segj­ast telja ferða­lög með Boeing 737 MAX flug­vélum eins örugg eða örugg­ari heldur en ferða­lög með öðrum far­þega­þotum en stuðn­ings­fólk Pírata (35 pró­sent), Sam­fylk­ing­ar­innar (41 pró­sent) og Flokks fólks­ins (44 pró­sent) ólík­leg­ast.

Er mæl­ing­unni er snúið við reynd­ist stuðn­ings­fólk Sam­fylk­ing­ar­innar (33 pró­sent), Sjálf­stæð­is­flokks­ins (29 pró­sent) og Fram­sóknar (25 pró­sent) lík­legra en stuðn­ings­fólk ann­arra flokka til að segj­ast telja ferða­lög með MAX vél­unum óör­ugg­ari en með öðrum far­þega­þotum en stuðn­ings­fólk Vinstri-grænna (12 pró­sent) og Við­reisnar (17 pró­sent) voru ólík­leg­ust til að vera á þeirri skoðun.

Stuðn­ings­fólk Pírata, Vinstri grænna og Við­reisnar virð­ist í mestri óvissu, á bil­inu 34-40 pró­sent þeirra sögð­ust ekki viss um hvort MAX-vél­arnar væru örugg­ari eða óör­ugg­ari en aðrar flug­vélar.

Könnun MMR var fram­kvæmd dag­ana 30. des­em­ber 2020 til 11. jan­úar 2021. Alls bár­ust 2.002 svör frá ein­stak­lingum 18 ára og eldri sem voru valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR, en um net­könnun var að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár