Kaupandinn að vélum Icelandair íslenskt félag fyrir hönd bandarísks fjárfestingasjóðs

Íslenskt félag sem sér­hæfir sig í að kaupa, selja og leigja út flug­vélar hefur sam­þykkt að kaupa þrjár Boeing 757 vélar, fram­leiddar 1994 og 2000, af flug­fé­lag­inu. Vélarnar voru veð­settar kröfu­hafa Icelandair.

Boeing 757-200 vél frá Icelandair.
Boeing 757-200 vél frá Icelandair. Mynd: Icelandair

Icelandair Group til­kynnti í gær­kvöldi að félagið hefði náð sam­komu­lagi um sölu á þremur Boeing 757-200 flug­vélum í eigu þess fyrir sam­an­lagt 21 milljón dala, um 2,9 millj­arða króna. Í til­kynn­ingu vegna þessa kom fram að þetta væri um tveimur til þremur millj­ónum dala yfir bók­færðu gengi vél­anna.

Tvær vél­anna voru fram­leiddar 1994, og því 26 ára gamlar. Sú þriðja var fram­leidd árið 2000 og fagnar því tví­tugs­af­mæli í ár. Til stendur að breyta vél­unum úr far­þega­flug­vélum í frag­t­vélar.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir Icelandair að eftir sölu­ferli hafa verið gengið til samn­inga við Icelease ehf. fyrir hönd fjár­fest­ing­ar­sjóðs á sviði flug­véla­við­skipta í Delaware í Banda­ríkj­unum. Sá sjóður sé í meiri­hluta­eigu Corrum Capital Mana­gement. Icelandair Group var hér áður fyrr eig­andi að fjórð­ungs­hlut í Icelease ehf. en er ekki lengur í eig­enda­hópi félags­ins, sem er nú í eigu stjórn­enda þess. Þar á meðal eru fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá Icelandair.

[adspot]Vélarnar voru allar veð­settar kröfu­hafa Icelandair. Í svari félags­ins segir er tekið fram að sá kröfu­hafi sé ekki Lands­bank­inn, en hann lán­aði Icelandair 80 millj­ónir dala í fyrra og tók veð í ein­hverjum vélum félags­ins. Ekki er þó til­greint hver hafi átt veð í vél­unum. Þar sem láns­fjár­hæðin á móti vél­unum þremur hafi verið lægri en sölu­verð vél­anna þá segir Icelandair að salan hafi jákvæð áhrif á lausa­fjár­stöðu félags­ins og styrkir hana enn frekar.

Icelandair vildi ekki veita upp­lýs­ingar um það verð sem greitt var fyrir hverja vel fyrir sig og sagði þær upp­lýs­ingar vera trún­að­ar­mál milli aðila.

Sömdu við Boeing

Icelandair Group hefur haft uppi áform um að fækka Boeing 757 vélum í flug­flota félags­ins, sem eru komnar vel til ára sinna,á næstu árum og sam­hliða taka í notkun nýjar vélar.

Vegna þessa pant­aði Icelandair 16 737-MAX vélar af fyr­ir­tæk­inu árið 2013 og hafði fengið sex þeirra afhentar áður en að vél­arnar voru kyrr­settar í mars í fyrra. Kyrr­setn­ingin á vél­unum kom til eftir flug­slys í Eþíópíu, 13. mars 2019, þegar 157 lét­ust skömmu eftir flug­tak Max vélar Ethi­opian Airlines. Það var þá annað slysið á skömmum tíma þar sem Max vél hrap­aði með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust. Fyrra slysið var 29. októ­ber 2018, þegar vél Lion Air í Indónesíu hrap­aði skömmu eftir flug­tak. Þá lét­ust 189, allir um borð.

Félagið greindi frá því í ágúst að félagið hefði náð sam­komu­lagi við Boeing flug­véla­fram­leið­and­ann sem myndi spara því umtals­verð útgjöld sem búið var a stofna ti á næstu árum, en Icelandair glímir við gríð­ar­legt tekju­fall vegna COVID-19 og flug­rekstur félags­ins er í lág­marki. Í sam­komu­lag­inu við Boeing fólst að vélum sem Icelandair var skuld­bundið til að kaupa til við­bótar, á grund­velli samn­ings­ins frá 2013, var fækkað úr tíu í sex. Auk þess var afhend­ingu þeirra frestað. Nú munu þrjár verða afhentar á kom­andi vetri og síð­ustu þrjár næsta vetur eftir.

Icelandair býst við því að kyrr­setn­ingu á MAX-vél­unum verði aflétt á síð­asta árs­fjórð­ungi þessa árs.

Skuld­bind­ingar Icelandair lækka 260 millj­ónir dala, um 36 millj­arðar króna, sam­kvæmt sam­komu­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár