Icelandair búið að semja við suma kröfuhafa og segir viðræður vel á veg komnar við aðra

Icelandair segir í til­kynn­ingu að félagið hafi und­ir­ritað samn­inga við flesta kröfu­hafa sína og náð sam­komu­lagi í meg­in­at­riðum við aðra. Samn­ing­arnir eru háðir því að Icelandair nái að afla nýs hluta­fjár og geri samn­ing um lána­línu með rík­is­á­byrgð.

Icelandair Group segir að samn­inga­við­ræður við þá hag­að­ila sem félagið á eftir að semja við séu vel á veg komnar og að félagið hafi und­ir­ritað samn­inga við flesta kröfu­hafa og náð sam­komu­lagi í meg­in­at­riðum við þá sem eftir eru. „Félagið gerir ráð fyrir að þeir samn­ingar verði und­ir­rit­aðir í næstu viku. Samn­ing­arnir eru háðir því að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár og geri samn­ing um lána­línu með rík­is­á­byrgð. Samn­inga­við­ræður við kröfu­hafa hafa miðað að því að laga afborg­anir að væntu sjóðs­streymi frá rekstri. Þessir samn­ingar tryggja nauð­syn­legan sveigj­an­leika til að geta byggt starf­semi félags­ins upp hratt og örugg­lega á ný þegar mark­aðir opn­ast og eft­ir­spurn fer að aukast.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem send var út seint á föstu­dags­kvöld. Ekki er til­greint við hvaða kröfu­hafa Icelandair hefur und­ir­ritað samn­inga við.

Ætla að sækja á þriðja tug milljarða í hlutafé í ágúst

Samn­ingar við kröfu­hafa Icelandair eru for­senda þess að félagið getið ráð­ist í hluta­fjár­út­boð sem á að safna 200 millj­ónum dala, um 27 millj­örðum króna á núvirði í nýtt hlutafé. Upp­haf­lega átti hluta­fjár­út­boðið að fara fram í júní­mán­uði en samn­ingar við kröfu­hafa náð­ust ekki fyrir þann tíma. Því var útboð­inu frestað fram í ágúst og sagt að samn­ingar við kröfu­hafa þyrftu að nást fyrir þann tíma. Aðallega er horft til líf­eyr­is­sjóða, sem er í dag stærstu hlut­hafar Icelandair, sem þátt­tak­enda í væntu hluta­fjár­út­boði.

[adspot]Stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group er Líf­eyr­is­­­­sjóður verzlunarmanna með 11,8 pró­­­­sent hlut. Þar á eftir kemur banda­ríski fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­sjóð­­­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement, hefur und­an­farið minnkað hlut sinn í félag­inu úr 13,7 pró­­sent í 10,99 pró­­sent. Þar á eftir koma líf­eyr­is­­­­sjóð­irnir Gildi (7,24 pró­­­­sent) og Birta (7,1 pró­­­­sent). Alls eiga íslenskir líf­eyr­is­­­­sjóðir að minnsta kosti 43,6 pró­­­­sent í Icelandair Group með beinum hætti, en mög­u­­­­lega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóði sem eiga einnig stóran hlut í félag­in­u.

Núver­andi eign hlut­hafa mun fara niður í 15,3 pró­sent við vænta hluta­fjár­aukn­ingu, tak­ist að selja hana alla.

Ekki búið að semja við Boeing

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í gær­kvöldi segir enn fremur að unnið hafið verið að útfærslu á láni með rík­is­á­byrgð með íslenskum stjórn­völdum, Íslands­banka og Lands­bank­anum og að við­ræður séu langt komnar. „Eins og fram hefur komið, verður lána­fyr­ir­greiðsla stjórn­valda meðal ann­ars háð því að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár. Þá eru samn­inga­við­ræður við Boeing vel á veg komnar en við­ræð­urnar snú­ast um frek­ari bætur vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna og að breyt­ingar verði gerðar á áætlun um fram­tíð­ar­af­hend­ingu MAX flug­véla.“

Þegar allir samn­ingar liggja fyrir ætlar Icelandair að birta fjár­festa­kynn­ingu með ítar­legum upp­lýs­ingum fyrir fjár­festa og þátt­tak­endur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði. „Í kjöl­farið verður skrán­ing­ar­lýs­ing birt en gert er ráð fyrir að hluta­fjár­út­boði muni ljúka í ágúst. Upp­lýs­ingar um fjölda útgef­inna hluta og gengi verða birtar um leið og ákvörðun stjórnar félags­ins um þau atriði liggur fyrir.“

Félagið hefur nú þegar und­ir­ritað nýja lang­tíma­samn­inga við stétt­ar­fé­lög flug­manna, flug­freyja og flug­þjóna og flug­virkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár