Þótt lífeyrissjóðir eigi tæpan helming alls hlutafjár í Icelandair Group, og raunar stóran hluta eiginfjár í íslensku atvinnulífi, er ýmislegt sem mæli á móti því að þeir leggi meira fé í rekstur félagsins. Stór hluti í einu flugfélagi sé til að mynda varasamur út frá sjónarmiðum um áhættudreifingu. Þá átti fyrri fjárfesting hluta sjóðanna í Icelandair Group, þegar félagið var fjárhagslega endurskipulagt eftir bankahrunið, sér stað þegar til staðar voru fjármagnshöft sem gerðu lífeyrissjóðum ekki kleift að fjárfesta í útlöndum. Fjárfestingin var því ekki til komin vegna þess að Icelandair Group hefði verið besti fjárfestingakostur sem til væri.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í grein Sigurðar Jóhannessonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands, sem birtist í síðasta tölublaði Vísbendingar sem barst áskrifendum í lok síðustu viku.
[links]Sigurður segir þar að nú sé þrýst á lífeyrissjóði að taka þátt í endurfjármögnun Icelandair Group með þjóðarhag í huga. „Hagsmunir Icelandair fara vissulega saman við hagsmuni margra félaga í íslenskum lífeyrissjóðum, en einu hagsmunirnir sem sameina alla sjóðsfélaga eru að sjóðirnir ávaxtist vel og geti borgað góðan lífeyri. Besta leiðin til þess að draga úr óvissu um lífeyrisgreiðslur á komandi árum er sennilega að sjóðirnir beini hlutabréfakaupum sínum til útlanda. Aðrir fjárfestar hér á landi ráða líklega ekki yfir jafnmiklu fé og lífeyrissjóðir, en um þá gilda sömu rök: Líkast til er ekki skynsamlegt að þeir leggi mikið undir í íslensku flugfélagi.“
Ættu að sækja nýtt hlutafé til útlanda
Að mati Sigurðar liggur beinast við að sækja nýtt hlutafé í Icelandair til útlanda. „Vissulega getur brugðið til beggja vona um gengi hlutabréfa í félaginu, en þau þurfa ekki að vera slæm fjárfesting fyrir fjárfestingarsjóði sem eiga eignir víða. Enginn vafi er á að áfram verður flogið til Íslands. Icelandair er í betri stöðu en önnur félög í Íslandsflugi vegna þekkingar innan félagsins á markaðinum og velvildar sem félagið nýtur.“
[adspot]Ríkisábyrgð vegna lána Icelandair myndi bætast við aðrar björgunaraðgerðir ríkisins við íslenskt atvinnulíf, en um miðjan maí var talið að þær næmu samtals 350 milljörðum króna. Sigurður segir að almenn samstaða virðist vera um þær ef marka megi umræður í fjölmiðlum og umsagnir um frumvörp stjórnarinnar. Alltaf veki til dæmis athygli þegar Viðskiptaráð fagni miklum fjárútlátum úr ríkissjóði og biður um meira. „Á mörgum má skilja að við þessar aðstæður sé allur stuðningur ríkissjóðs við fyrirtæki góður. Þær ákvarðanir reynast ekki alltaf vel, sem teknar eru í slíku andrúmslofti. Hollt er að staldra við og spyrja hvað landsmenn hafa upp úr því að styðja meira við félagið en orðið er. Ýmislegt tapast ef Icelandair verður gjaldþrota. Endurreist félag með nýja kennitölu mundi til dæmis greiða hærra áhættuálag á vexti en Icelandair. Á móti má spyrja hvort kostnaður flugfélaga eigi ekki að endurspegla raunverulegan kostnað við áhættu í rekstrinum. Í þessu sambandi má nefna að flugvélabensín hefur verið undanþegið kolefnisgjaldi.“
Umhverfisverndarsamtök séuá meðal fárra sem mótmæli nú ríkisstuðningi við flugfélög. En einnig megi benda á að endurskipulagning á flugmarkaði taki tíma. „Brotthvarf Icelandair tefur fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á næstu misserum. Rök af þessu tagi verður að vega á móti kostnaði sem stuðningur við félagið leggur á skattgreiðendur.“
Hvað gerist ef Icelandair á ekki fyrir skuldum?
Sigurður segir í greininni að ekki sé víst að Icelandair hætti rekstri þó að það fari í þrot. Forræði félagsins færist þá um sinn til lánardrottna og framtíð þess yrði í höndum þeirra. „Þeir verða að svara spurningum eins og: Fáum við meira upp í skuldirnar með því að selja eignir eða halda rekstrinum áfram? Er rekstrinum kannski betur borgið í höndum nýrra stjórnenda? Flugvélar eru ekki í háu verði þessa dagana. Vandræði félagsins verða ekki heldur rakin til mistaka í rekstrinum. Ekki kæmi á óvart að lánardrottnar semji við fyrri stjórnendur um að halda rekstrinum áfram, þó að engir ríkisstyrkir komi til.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir