Ekki æskilegt að einblína á fjölgun starfa í ferðaþjónustu í hálaunalandi eins og Íslandi

Pró­fessor í hag­fræði segir að ferða­þjón­usta sé grein sem þrí­fist best í löndum þar sem vinnu­afl er ódýrt. End­ur­reisn ferða­þjón­ustu í sömu mynd og áður sé því varla æski­leg, enda hafi hún að uppi­stöðu verið mönnum með inn­fluttu vinnu­afli.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði. Mynd: Skjáskot/RÚV

„COVID-19 kreppan hefur komið illa við vinnu­mark­að­inn með því að þurrka út þús­undir starfa í ferða­þjón­ustu. En hún hefur einnig afhjúpað veik­leika sem voru fyrir hendi áður og fel­ast í því að lág­launa­grein í hálauna­landi búi til störf fyrir inn­flytj­endur á meðan margir Íslend­ingar flytja búferlum til ann­arra landa og aðrir fá ekki störf við sitt hæfi innan lands.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein í nýj­ustu Vís­bend­ingu sem kom út í lok síð­ustu viku þar sem hann fjallar um þá efna­hag­skreppu sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur leitt af sér.

Gylfi segir að eftir mis­heppn­aða einka­væð­ingu banka í byrjun ald­ar­innar og mik­inn vöxt ferða­þjón­ustu eftir banka­hrunið sé nú lag að skipu­leggja fram í tím­ann hvaða greinum eigi að hlúa að til þess að skapa vel launuð störf í fram­tíð­inni. „End­ur­reisn ferða­þjón­ustu í sömu mynd og hún hafði fyrir daga far­sótt­ar­innar er varla æski­leg.“

Ósjálfbær vöxtur

Í grein­inni bendir Gylfi á að mik­ill vöxtur ferða­þjón­ustu síð­ustu árin hafi fært þjóð­ar­bú­inu miklar gjald­eyr­is­tekjur sem unnt var að nota til þess að byggja upp gjald­eyr­is­forða, greiða niður erlendar skuldir og fjár­festa erlendis. En að öðru leyti hafi þessi mikli vöxtur ekki góður að öllu leyti.

[adspot]Ferða­þjón­usta sé grein sem þrí­fist best í löndum þar sem vinnu­afl er ódýrt. „Mikill vöxtur lág­launa­greinar í hálauna­landi var orð­inn ósjálf­bær, launa­kostn­aður sem hlut­fall af rekstr­ar­tekjum var sá hæsti sem mælst hafði frá því að mæl­ingar hófust skv. Hag­stof­unni og mun hærri en í öðrum ferða­þjón­ustu­löndum. Kjara­samn­ing­arnir í mars 2019 kipptu rekstr­ar­grund­velli undan fjölda fyr­ir­tækja, t.d. veit­inga­staða. Gjald­þrot fyr­ir­tækja í grein­inni blasti við löngu áður en nokkur frétti af COVID-19. Fall WOW air má að minnsta kosti að ein­hverju leyti rekja til launa­kostn­aðar.“

Árið 2019 hafi fjár­fest­ing í land­inu farið lækk­andi og atvinnu­leysi vax­andi. Vöxtur atvinnu­vega­fjár­fest­ingar náði hámarki árið 2015, var enn mik­ill árið 2016 en lækk­aði og varð nei­kvæður árin 2018 og 2019. Sam­drátt­ur­inn var þannig haf­inn áður en far­sóttin barst til lands­ins þótt hag­vöxtur hafi enn mælst jákvæður árið 2019.

Fleiri fóru en komu

Gylfi segir að ein afleið­ing vaxtar ferða­þjón­ustu hafi verið sú að fleiri Íslend­ingar fluttu til útlanda heldur en þeir sem fluttu aftur til Íslands þrátt fyrir mik­inn hag­vöxt og góð­æri og á móti kom aðflutt, ódýrt vinnu­afl til þess að fylla störf í grein­inni. „Stefnan, eða öllu heldur stefnu­leysið, í atvinnu­málum á Íslandi hafði í för með sér að fjöldi lág­launa­starfa varð til og sam­setn­ing þjóð­ar­innar breytt­ist smám saman. En launa­hækk­anir sem samið var um árið 2019 og komu ofan á aðrar hækk­anir áranna 2015-2017 urðu til þess að kippa grund­vell­inum undan rekstri veit­inga­staða og margra gisti­staða. Greinin glímdi við of háan kostnað áður en COVID-19 barst til lands­ins og atvinnu­leysi fór vax­andi.“

Hann segir að það sé á vinnu­mark­aði sem vanda­málin blasi við. Ekki hafi verið lögð áhersla á að efla greinar sem búa til vel launuð störf. „Sú stefna var tekin á Norð­ur­löndum upp úr árinu 1990 að skapa umhverfi sem hjálp­aði þekk­ing­ar­fyr­ir­tækjum að vaxa. En af ein­hverjum ástæðum var það ekki gert hér heldur ráð­ist í einka­væð­ingu banka og svo ósjálf­bæran vöxt ferða­þjón­ustu. Ofan á þetta bæt­ist að far­sóttin þurrkar út lág­launa­störfin í ferða­þjón­ustu og tækni­væð­ing skapar enn aðra ógn með því að gera sífellt fleiri störf úrelt.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár