Uppsagnarfrestur um 700 flugfreyja og -þjóna klárast um mánaðamótin

Um 170 flug­freyjur og -þjónar fá end­ur­ráðn­ingu hjá Icelandair og verða um 200 í stétt­inni að störfum fyrir félagið í ágúst og sept­em­ber. Vegna mik­illar óvissu er ekki hægt að segja til um hvort fleiri verða ráðin á næstu vikum.

Um 700 flug­freyjur og flug­þjónar munu klára upp­sagn­ar­frest sinn nú um mán­aða­mótin og ekki fá end­ur­ráðn­ingu hjá Icelandair að svo stöddu. Í apríl sagði félagið upp um 900 flug­freyjum og flug­þjónum af um 940 sem þá störf­uðu hjá félag­inu.

Í sam­tali við Kjarnann segir Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands, að lang­sam­lega flestir af þeim sem sagt var upp í apríl hafi verið með þriggja mán­aða upp­sagn­ar­frest. Þó séu ein­hverjir sem hafi lengri upp­sagn­ar­frest vegna starfs­ald­urs.

170 flugfreyjur og -þjónar endurráðin

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Icelandair verður end­ur­ráðið í stöður um 170 flug­freyja og -þjóna hjá félag­inu. Tekið verður mið af „starfs­aldri og frammi­stöðu­tengdum þáttum“ við end­ur­ráðn­ing­arnar. Samtals verða því um 200 flug­freyjur og -þjónar að störfum fyrir félagið í ágúst og sept­em­ber, en líkt og áður kom fram var lít­ill hluti flug­freyja og -þjóna félags­ins ekki sagt upp í hóp­upp­sögn­inni í apríl.

Spurð að því hvort til greina komi að ráða fleiri á næstu vikum segir Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, að ekki sé hægt að segja til um það. Sökum óvissu í milli­landa­flugi sé bara horft til ágúst og sept­em­ber.

Einskiptiskostnaður vegna kórónuveiru nam 30 milljörðum

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur sem kunn­ugt er haft lam­andi áhrif á flug­sam­göngur. Samkvæmt árs­hluta­upp­gjöri Icelandair sem birt var í gær fækk­aði far­þegum félags­ins um 98 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Í reikn­ingnum er ein­skiptis­kostn­aður félags­ins vegna kór­ónu­veirunnar það sem af er ári met­inn á 30 millj­arða króna. Heild­ar­tap félags­ins það sem af er ári er tæpir 45 millj­arðar miðað við gengi dags­ins í dag.

Félagið á nú í við­ræðum við fimmtán lán­ar­drottna félags­ins vegna hluta­fjár­út­boðs. Stefnt er að því að samn­ingum við lán­ar­drottna ljúki fyrir lok vik­unnar og að hluta­fjár­út­boð verði haldið í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár