Icelandair tapaði 12,3 milljörðum á öðrum ársfjórðungi

Kostn­aður vegna kór­ónu­veirunnar er met­inn á 30 millj­arða króna í bókum Icelandair.

Alls tap­aði Icelandair 331 milljón dala á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem sam­svarar tæpum 45 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Tapið er að stórum hluta af völdum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en ein­skipti­kostn­aður vegna veirunnar nam rétt rúm­lega 30 millj­örðum króna á fyrstu tveimur árs­fjórð­ungum árs­ins.

Uppgjör Icelandair fyrir annan árs­fjórð­ung var birt í dag. Á fjórð­ungnum nam tap félags­ins 12,3 millj­örðum króna eða 90,8 millj­ónum dala.

Á fjórð­ungnum dróst fram­boð á far­þega­flugi saman um 97 pró­sent og far­þegum fækk­aði um 98 pró­sent. Eigið fé félags­ins nam 151,2 millj­örðum króna í lok júní og er eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins ell­efu pró­sent. Þá nam lausa­fjár­staða félags­ins 21,3 millj­örðum króna í lok júní eða 152,5 millj­ónum dala.

„Eins og í flug­heim­inum öllum, hafði COVID-19 heims­far­ald­ur­inn gríð­ar­leg áhrif á rekstr­ar­nið­ur­stöðu ann­ars árs­fjórð­ungs hjá Icelandair Group. Þrátt fyrir að flug hafi legið nán­ast alveg niðri, eða ein­ungis þrjú pró­sent flug­á­ætl­unar okkar verið starf­rækt, lögðum við höf­uð­á­herslu á að tryggja lág­marks­flug­sam­göngur til og frá land­inu fyrir far­þega og frakt, bæði til Evrópu og Norður Ameríku,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóra, í til­kynn­ingu frá félag­inu til Kaup­hallar Íslands.

Þar segir einnig: „Við þurftum að grípa til erf­iðra en nauð­syn­legra aðgerða í fjórð­ungnum til að draga úr kostn­aði og útflæði fjár­magns sem meðal ann­ars fólu í sér veru­legar upp­sagnir og breyt­ingar á skipu­lagi félags­ins. Vinna við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins hefur staðið yfir und­an­farnar vikur og stefnum við að því að ljúka sam­komu­lagi við helstu hag­að­ila fyrir lok júlí­mán­aðar og hefja hluta­fjár­út­boð í ágúst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár