Icelandair í hlutafjáraukningu í annað sinn á innan við ári

Icelandair Group ætlar að sækja sér átta millj­arða króna í við­bót með því að selja nýtt hlutafé til banda­rísks fjár­fest­inga­sjóðs. Félagið sótti sér síð­ast nýtt hlutafé í sept­em­ber í fyrra. Tap Icelandair á árinu 2020 var 51 millj­arður króna.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group Mynd: Skjáskot/RÚV

Icelandair Group hefur gert bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóð­inn Bain Capital um að hann kaupi nýtt hlutafé í flug­fé­lag­inu. Samkvæmt sam­komu­lag­inu, sem enn á eftir að sam­þykkja á hlut­hafa­fundi áður en það verður að veru­leika, mun Bain Capital greiða 8,1 millj­arð króna og eign­ast fyrir vikið 16,6 pró­sent hlut í Icelandair Group. Það þýðir að Bain Capital er að greiða aðeins lægra verð á hlut, 1,43 krónur, en virði bréfa í Icelandair Group var í lok dags í gær, þegar greiða þurfti 1,46 krónur á hlut fyrir bréf í félag­inu. Núver­andi hlut­hafar þurfa að falla frá for­gangs­kaup­rétti á nýju hlutafé eigi sam­komu­lagið að verða að veru­leika.

Verði þetta sam­komu­lag sam­þykkt á hlut­hafa­fundi mun Bain Capital verða stærsti ein­staki eig­andi Icelandair Group og fá full­trúa í stjórn Icelandair. Úlfar Stein­dórs­son, sem verið hefur stjórn­ar­for­maður Icelandair Group und­an­farin ár, mun stíga til hliðar sem slíkur ef hluta­fjár­aukn­ingin verður sam­þykkt af öðrum hlut­höfum.

Til við­bótar gerir sam­komu­lagið ráð fyrir því að Bain Capital, sem var meðal ann­ars stofnað af fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­anum og núver­andi öldund­ar­deild­ar­þing­mann­inum Mitt Romney, fá áskrift­ar­rétt­indi fyrir hlutum sem sam­svara 25 pró­sent af heild­ar­fjölda þeirra nýju hluta sem gefnir verða út. Bain Capital á eign­ar­safn sem er metið á 130 millj­arða Banda­ríkja­dala.

[adspot]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna þessa segir að heim­ildin gildi í tíu daga frá og með birt­ingu upp­gjörs Icelandair Group fyrir annan árs­fjórð­ung, en honum lýkur í enda yfir­stand­andi mán­aðar. „Áskrift­ar­rétt­indin veita Bain heim­ild, en ekki skyldu, til kaupa á nýjum almennum hlutum í félag­inu á sama gengi á hvern hlut að við­bættum 15 pró­sent árs­vöxtum.“

Sóttu síðast nýtt hlutafé í september í fyrra

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Icelandair Group fer í hluta­fjár­aukn­ingu. Félagið safn­aði alls 23 millj­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­em­ber í fyrra, en það hefur átt í miklum rekstr­ar­vanda um ára­bil sem jókst veru­lega þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í fyrra­vor. Fjöldi hlut­hafa fór yfir ell­efu þús­und eftir útboðið og því ljóst að fjöl­margir ein­stak­lingar keyptu fyrir litlar fjár­hæðir í því.

Alls nam tap sam­stæð­unnar um 45 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Stærstan hluta þess taps, sem nemur 245 millj­ónum króna á dag, má rekja beint til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Fyrir lá að félagið átti ekki nægt laust fé til að lifa mikið lengur við óbreyttar aðstæður. Tap Icelandair á árinu 2020 í heild var 51 millj­arður króna og á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2021 tap­aði félagið 3,9 millj­örðum króna.

Eigið fé Icelandair Group nam 29,7 millj­örðum króna í lok síð­asta árs árs og eig­in­fjár­hlut­fall lækk­aði úr 29 pró­sent í 25 pró­sent frá fyrra ári. Lausa­fjár­staða félags­ins nam 42,3 millj­örðum króna. Hún lækk­aði um 6,5 millj­arða króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2021 og eig­in­fjár­hlut­fallið var komið niður í 23 pró­sent í lok mars.

Hluthafar þynntir niður...aftur

Í aðdrag­anda hluta­fjár­út­boðs­ins sam­þykkti íslenska ríkið að gang­ast í ábyrgð fyrir 90 pró­sent af 16,5 millj­arða króna lána­línu til Icelandair Group. Sú rík­is­á­byrgð var sam­þykkt á Alþingi í ágúst.

Í útboð­inu í fyrra, þar sem hlutir voru seldir á eina krónu, var hlutafé aukið það mikið að þeir sem áttu hlutafé í Icelandair Group áður þynnt­ust niður í 15,3 pró­sent. Hluti þeirra tók aftur þátt í útboð­inu og varði eign sína að hluta eða öllu leyti.

Verði sam­komu­lagið við Bain Capital sam­þykkt munu núver­andi hlut­hafar þynn­ast niður í 83,4 pró­sent hlut, níu mán­uðum eftir að þeir keyptu nýtt hlutafé í félag­inu.

Tilkynnt ofan í útboð Play

Til­kynn­ing Icelandair Group um hluta­fjár­aukn­ing­una var send út kvöldið áður en að hluta­fjár­út­boð flug­fé­lags­ins Play hófst. Stefnt er að því að safna 4-4,4 millj­örðum króna og skrá félagið, sem verður helsti sam­keppn­is­að­ili Icelandair Group hér­lendis, í kjöl­farið á First North mark­að­inn.

Þess utan fer fyrsta flug­vél Play í loftið í dag og flýgur með far­þegar til London.

Í útboðs­lýs­ingu félags­ins kemur fram að þessi fjár­mögnun muni hjálpa lausa­fjár­stöðu þess enn frekar, en Play seg­ist nú þegar hafa náð að safna tæpum sjö millj­örðum króna í fjár­mögnun.

Búist er við að almenn við­skipti með hluti í Play hefj­ist föstu­dag­inn 9. júlí.

Í útboðs­lýs­ingu segir að Play búist við því að selja selja jafn­mörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjög­urra ára. Það stefnir á að hefja flug til Banda­ríkj­anna næsta vor, en mun halda starfs­manna­kostn­aði í lág­marki með því að láta starfs­menn sína vinna lengur en starfs­menn ann­arra flug­fé­laga og taka færri frí­daga en starfs­menn WOW air tóku.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um útboðið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár