Erlendum ríkisborgurum heldur áfram að fjölga þrátt fyrir væntan samdrátt

Erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi nálg­ast það að verða 50 þús­und. Þrátt fyrir efna­hags­á­föll þá hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Í ljósi þess að hag­vöxtur er framundan er ólík­legt að þeim fækki í bráð.

Mikið uppgrip í byggingaiðnaði hefur dregið fjölmarga erlenda ríkisborgara hingað til lands í vinnu.
Mikið upp­grip í bygg­inga­iðn­aði hefur dregið fjöl­marga erlenda rík­is­borg­ara hingað til lands í vinnu. Mynd: Bára Huld Beck

Erlendum rík­is­borg­urum sem eru búsettir á Íslandi fjölg­aði um 1.920 á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2019. Þeir voru alls 48.640 í lok sept­em­ber og hafa aldrei verið fleiri. Íbúum lands­ins fjölg­aði um 2.470 á árs­fjórð­ungnum og því var 78 pró­sent fjölg­unar á Íslandi frá júlí­byrjun og út sept­em­ber vegna komu erlendra rík­is­borg­ara hingað til lands.

[links]Þetta kemur fram í nýjum mann­fjölda­tölum Hagstofu Íslands.

Því virð­ist ekk­ert lát ætla að verða á fjölgun erlendra rík­is­borg­ara, en þeir eru nú 13,4 pró­sent íbúa lands­ins, þrátt fyrir áföll í efna­hags­líf­inu tengd gjald­þroti WOW air og væntan 0,2 pró­sent sam­drátt í þjóð­ar­fram­leiðslu á árinu. Í ljósi þess að ný þjóð­hags­spá Hag­stof­unnar gerir ráð fyrir hag­vexti strax á næsta ári, og að hann hald­ist árlega út árið 2025 hið minnsta.

Hægt á fjölgun en samt fjölgar

Það hefur hins vegar hægt á fjölgun erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis á þessu ári. Alls hefur þeim fjölgað um 2.970 á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019.

Á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem koma hingað til lands til að búa hér. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­sent.

[adspot]Ástæðan er sú að á Íslandi var mik­ill efna­hags­upp­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­gangi, sér­stak­lega í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu og í bygg­inga­iðn­aði. Nú þegar hag­kerfið er farið að kólna og spenna að losna þá hægist á fjölgun erlendra útlend­inga. En þeim heldur samt sem áður áfram að fjölga. 

Rúmlega fjórði hver í Reykjanesbæ útlendingur

Flestir erlendu rík­is­borgar­anna búa í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, eða 20. 570. Það þýðir að 15,7 pró­sent íbúa hennar eru erlendir rík­is­borg­arar. Til sam­an­burðar búa 800 erlendir rík­is­borg­arar í Garðabæ, sem þýðir að 4,7 pró­sent íbúa þess sveit­ar­fé­lags til­heyra þeim hópi.

Á meðal stærri sveit­ar­fé­laga er hlut­fall erlendra íbúa hæst í Reykja­nesbæ, vegna nábýl­is­ins við Kefla­vík­ur­flug­völl og alla þá ferða­þjón­ustu­tengdu starf­semi sem honum teng­ist. Þar búa nú 4.960 erlendir rík­is­borg­arar sem þýðir að 25,6 pró­sent þeirra 19.380 manns sem búa í Reykja­nesbæ eru erlendir rík­is­borg­arar.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.370 og 4.542 ein­stak­lingar eru með lit­háískt rík­is­fang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár