„Þetta lýsir gríðarlegum fordómum gagnvart innflytjendum á vinnumarkaði“

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, gagn­rýnir harð­lega ummæli ráðu­neyt­is­stjóra félags­mála­ráðu­neyt­is­ins í pall­borðsum­ræðum um stöðu erlends starfs­fólks hér á landi.

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar.
Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Fólk sem sat þennan fund var mjög slegið yfir yfir­lýs­ingum ráðu­neyt­is­stjóra ráðu­neytis vinnu­mark­aðar og mál­efna inn­flytj­enda. Þetta lýsir gríð­ar­legum for­dómum gagn­vart inn­flytj­endum á vinnu­mark­aði og gríð­ar­legu áhuga­leysi ráðu­neytis og ráðu­neyt­is­stjóra þess ráðu­neytis á að sinna mál­efnum þessa hóps.“

Þetta sagði Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag og vís­aði þar til ummæla ráðu­neyt­is­stjóra félags­mála­ráðu­neyt­is­ins í pall­borði um mál­efni erlends starfs­fólks á Íslandi á Þjóð­ar­spegli Háskóla Íslands í síð­ustu viku. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, átti að taka þátt í pall­borð­inu en for­fall­að­ist vegna anna en send­i í stað­inn ráðu­neyt­is­stjór­a sinn Gissur Pét­urs­son.

Ummæli ráðuneytisstjóra þvert á framkvæmdaáætlun stjórnvalda

Þor­steinn sagði að ummæli Gissurar í pall­borði hefðu verið ansi slá­andi. Hann sagði að Gissur hefði meðal ann­ars sagt að hann teldi ekki ástæðu til að fræða inn­flytj­endur um rétt­indi sín á vinnu­mark­aði heldur væri það á ábyrgð inn­flytj­enda að afla sér upp­lýs­inga. Auk þess hefði hann sagt að það þýddi ekk­ert að styrkja íslensku­kennsl­u þar sem inn­flytj­endur nenntu ekki að læra tungu­mál­ið og enn fremur hefði hann sagt hversu gott það væri að losna við fólk af íslenskum vinnu­mark­aði í þessu sam­hengi.

Þor­steinn sagði að þessi ummæli gengu þvert á fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum inn­flytj­enda sem sam­þykkt var á Alþingi fyrir þremur árum síðan. Hann spurði því ráð­herra hvort þetta væri stefna ráð­herra og stefna stjórn­valda í mál­efnum inn­flytj­enda.

[links]Ásmundur Einar svar­aði því næst Þor­steini og sagði að auð­vitað væri unnið eftir fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum inn­flytj­enda og að engin stefnu­breyt­ing hefði orðið þar á.

Hann sagð­ist jafn­framt hafa heyrt fregnir af þessum panel og þeim umræðum sem áttu sér stað þar. Auk þess hefði hann heyrt af pistli sem rit­aður var af Sabine Leskopf, borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, sem birtur var hér á Kjarn­anum í síð­ustu viku, en að hann hefði ekki haft tæki­færi til að setja sig ofan í þann pistil.

Ekki í stakk búinn til að svara fyrir ummælin

Ásmundur Einar sagði jafn­framt að rík­is­stjórnin hefði gert margt gott þegar kæmi að þessum mála­flokki og að auknar fjár­veit­ingar væru vænt­an­legar á næstu árum. Hann bað Þorstein um að benda á aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar þar sem skert hefði verið á rétt­indum inn­flytj­enda eða ekki gengið nógu langt í þjón­ustu við inn­flytj­endur.

Þá sagði Þor­steinn að það væri alveg rétt að aukið hefði verið fjár­magn til kvótaflótta­manna en að þetta mál varð­aði allan þann stóra hóp inn­flytj­enda sem vinnur hér á landi. Hann sagði að tryggja þyrfti rétt­ar­stöðu þessa hóps og sýna því raun­veru­legan áhuga að taka á kerf­is­bundnum brotum á þeim á vinnu­mark­aði.

Enn fremur spurði Þor­steinn ráð­herra hvort að honum hugð­ist að leið­rétti þessi ummæli ráðu­neyt­is­stjóra eða biðj­ast afsök­unar á þeim.

Ásmundur Einar sagði að hann væri ekki í stakk búinn til að svara fyrir þessi ummæli þar sem hann hefði ekki séð upp­tökur eða útprent­anir af þessum pall­borðsum­ræðum en ítrek­aði að stefna stjórn­valda í mál­efnum inn­flytj­enda væri algjör­lega óbreytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár