Skuldir íslenskra heimila og fyrirtækja þær 7. hæstu í heimi

Skuldir ein­stak­linga og fyr­ir­tækja hér­lendis eru með þeim hæstu í heim­inum. Þær hafa hins vegar lækkað hratt frá hruni þar sem þær náðu sögu­legu hámarki.

Skuldahlutfall einstaklinga og fyrirtækja var sögulega hátt á árunum 2007-2011.
Skulda­hlut­fall ein­stak­linga og fyr­ir­tækja var sögu­lega hátt á árunum 2007-2011. Mynd: Úr safni

Íslend­ingar eru meðal skuld­sett­ustu þjóða heims­ins ef ein­ungis er litið til skulda þegar litið er til heim­ila og fyr­ir­tækja. Þær hafa þó lækkað tölu­vert frá hruni, en árið 2009 setti Ísland sögu­legt heims­met í skulda­söfnun heim­ila.

Samkvæmt nýbirtum tölum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins námu skuldir íslenskra einka­að­ila, ásamt lánum og skulda­bréfum, 259% af lands­fram­leiðslu árið 2016. Þetta hlut­fall er það sjö­unda hæsta í heimi, en aðeins smá­ríki og skatta­skjól eru ofar á list­anum. Íslenska skulda­hlut­fallið er það þriðja hæsta í Evrópu, en það er ein­ungis hærri í Lúx­em­borg og á Írlandi. Til sam­an­burðar við Ísland eru skulda­hlut­fall ein­stak­linga í Þýska­landi um 105% af lands­fram­leiðslu, eða tveir fimmt­ungar íslenska hlut­falls­ins.[adspot]

Frábrugðið Norðurlöndum

Skuld­setn­ing Íslend­inga er hæst allra Norð­ur­landa og hefur verið það síð­ustu tvo ára­tugi en hefur þó lækkað umtals­vert frá hruni. Árið 2016 var hlut­fallið á Íslandi svipað því norska, en sú staða hefur ekki komið upp síðan 1998.

Að með­al­tali hefur hlut­fall ein­stak­lings­skulda í Skand­in­avíu hald­ist á bil­inu 120-250% af lands­fram­leiðslu frá alda­mótum, en Ísland hefur á sama tíma skorið sig nokkuð úr þeirri þróun á sama tíma. Á upp­gangs­tím­anum fyrir hrun 2002-2008 tóku skuldir íslenskra heim­ila að aukast hratt, ólíkt hinum, og náði hámarki árið 2009 þegar skuldir heim­ila námu 640%, eins og sést á mynd hér að neðan.

Sögulegt heimsmet

Hlut­fallið á Íslandi árið 2009 sker sig reyndar líka úr þegar litið er til ann­arra landa, en þetta er lang­hæstu tölur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um skuld­setn­ingu heim­ila frá því mæl­ingar sjóðs­ins hófust árið 1950. Mæl­ing­arnar eru tæp­lega 3600 tals­ins og ná til 158 landa, en efstu fimm mæl­ing­arnar eru allar frá Íslandi á tíma­bil­inu 2008-2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár