Atvinnuleysið hætt að minnka

Atvinnu­leysi á fyrri árs­helm­ingi hefur auk­ist lít­il­lega frá því í fyrra. Þetta er í fyrsta skiptið sem slíkt ger­ist frá árinu 2011.

Málari að störfum.
Málari að störfum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Atvinnu­leysi á fyrsta og öðrum árs­fjórð­ungi hefur ekki minnkað frá því á sama tíma­bili í fyrra. Þetta er í fyrsta skiptið sem atvinnu­leysið minnkar ekki milli ára frá árinu 2011, auk þess sem hlut­fall starf­andi minnkar á báðum árs­fjórð­ungum í fyrsta skipti frá 2011. Þetta kemur fram í nýbirtum vinnu­mark­aðs­tölum Hagstofu.

Samkvæmt töl­unum voru að jafn­aði 205.400 manns á aldr­inum 16-74 ára á vinnu­mark­aði á öðrum árs­fjórð­ungi. Af þeim voru 198.100 starf­andi og 7.300 án vinnu og í atvinnu­leit. Atvinnu­þátt­taka var 83%, hlut­fall starf­andi 80% og atvinnu­leysi var 3,6%. Ef borið er saman við sama tíma­bil í fyrra fjölg­aði starf­andi fólki um 2.900 en hlut­fall starf­andi af mann­fjölda lækk­aði hins vegar um 1,5 pró­sentu­stig. Atvinnu­leysi jókst um 0,2 pró­sentu­stig, en um 300 fleiri voru atvinnu­lausir á vor­mán­uðum í ár miðað við í fyrra. [adspot]

Ef litið er til þró­unar síð­ustu ára á vinnu­mark­aði sést að atvinnu­leysi á öðrum árs­fjórð­ungi hefur minnkað hratt frá árinu 2011 þegar það náði met­hæðum í tæpum 9 pró­sentum. í ár hefur atvinnu­leysið hins vegar auk­ist lít­il­lega, en það er í fyrsta sinn sem slíkt ger­ist frá 2011. Tölur Hagstofu frá fyrsta árs­fjórð­ungi benda einnig á sömu þróun, en þar var atvinnu­leysi nær óbreytt frá því á sama tíma­bili í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár