Nýskráðum bílaleigubílum hríðfækkar á milli ára

Sam­dráttur var í skráðum bílum í maí og júní í ár miðað við sama tíma­bil í fyrra. Mest munar um þriðj­ungs­fækkun í nýskráðum bíla­leigu­bílum.

Í maí og júní 2108 voru 5.455 fólks­bílum nýskráðar á Íslandi. Það eru 1.522 færri en í sömu mán­uðum árið áður, eða 22 pró­sent sam­dráttur. Mest munar um nýskráða bíla­leigu­bíla, en þeir voru 3.630 í umræddum tveimur mán­uðum á þessu ári. Það eru 1.893 færri en á sama tíma­bili í fyrra og því fækk­aði nýskráðum bíla­leigu­bílum í maí og júní um 34 pró­sent. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Vert er að hafa í huga að fjöldi nýskráðra bíla hefur auk­ist gríð­ar­lega hratt á und­an­förnum árum og árið 2017 var algjört met ár. Ástæðan er auð­vitað fyrst og síð­ast aukin fjöldi ferða­manna, enda eru lang­flestar nýskrán­ingar á bílum til­komnar vegna bíla­leigu­bíla sem leigðir eru út til þeirra.

Það ár var heild­ar­fjöldi nýskráðra fólks­bíla á land­inu 21.346 sem var 16 pró­sent aukn­ing frá fyrr ári. Bíla­leigu­bílar voru tæpur helm­ingur allra nýskráðra bíla á því ári, eða 10.362 tals­ins. Þeim fjölg­aði um nálægt þús­und milli ára.

Í lok síð­asta árs var heild­ar­fjöldi skráðra öku­tækja af öllum stærðum og gerðum hér­lendis 366.888. Þar af voru 294.482 öku­tæki í umferð. Að með­al­tali voru því fleiri en eitt öku­tæki skrá á hvern Íslend­ing í lok árs 2017, en Íslend­ingar voru þá 348.450 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár