Fjármagnstekjur lækkuðu milli ára – Voru 138 milljarðar króna

Fjár­magnstekjur Íslend­inga dróg­ust saman í fyrra frá árinu 2017, þegar þær náðu síðan hæsta punkti frá banka­hruni. Á árinu 2018 voru þær um helm­ingur þess sem þær voru á toppi gamla góð­ær­is­ins 2007.

Hluti þjóðarinnar hefur tekjur af fjármagni.
Hluti þjóð­ar­innar hefur tekjur af fjár­magni. Mynd: Bára Huld Beck

Alls námu fjár­magnstekjur lands­manna 137,8 millj­örðum króna á síð­asta ári. Það er umtals­vert lægri heild­ar­fjár­hæð en lands­menn höfðu í slíkar tekjur árið á undan, þegar þær námu 166 millj­örðum króna. Alls nam sam­drátt­ur­inn í fjár­magnstekjum 17 pró­sentum á milli áranna 2017 og 2018.

[links]Tekj­urnar í fyrra voru einnig lægri í krónum talið en á árinu 2016, þegar þær námu sam­tals 141,9 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands um eignir og skuldir lands­manna sem birtar voru í síð­ustu viku.

Lands­menn eiga enn langt í land með að ná þeim met­hæðum í upp­gefnum fjár­magnstekjum sam­kvæmt skatt­fram­tölum sem voru við lýði fyrir banka­hrun. Árið 2006 var heild­ar­um­fang slíkra tekna 172 millj­arðar króna og árið 2007, sem enn er metár yfir upp­gefnar fjár­magnstekjur í Íslands­sög­unni, voru þær 262,7 millj­arðar króna. Það ár rataði um 82 pró­sent fjár­magnstekna til þeirra tíu pró­sent lands­manna sem höfðu hæstu tekj­urnar. Í fyrra var hlut­falls­skipt­ingin ekki jafn afger­andi, en þá fóru 70 pró­sent allra fjár­magnstekna til þeirra rúm­lega 22 þús­und fjöl­skyldna sem höfðu hæstu tekj­urnar á Íslandi. Árið áður hafði hlut­fall þess hóps í tekj­unum verið tæp­lega 75 pró­sent.

[adspot]Fjár­magnstekjur eru allar vaxta­tekjur auk sölu­hagn­aðar, arðs og tekna af atvinnu­rekstri. Skattur á fjár­magnstekjur er umtals­vert lægri en á launa­tekjur. Stað­greiðsla skatta á launa­tekjur í fyrra var á á bil­inu 36,94 til 46,24 pró­sent að útsvari með­töldu en fjár­magnstekju­skattur hækk­aður upp í 22 pró­sent í byrjun árs 2018.

Eigið fé hækkaði mikið

Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að eigið fé Íslend­inga hefði hækkað um 641 millj­arð króna á síð­asta ári sam­kvæmt sömu tölum. Það er næst mesta hækkun sem átt hefur stað í vexti á eigin fé milli ára frá því að Hagstofa Íslands hóf að halda utan um þær tölur.

Upp­gangur síð­ustu ára hefur skilað því að eigið fé lands­manna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 í að vera 4.744 millj­arðar krókna um síð­ustu ára­mót. Hann hefur aldrei verið meiri.

Til hafa orðið 3.179 millj­arðar króna í nýju eigin fé í íslensku sam­fé­lagi á þessum örfáu árum. Það hefur rúm­lega þre­fald­ast. Af þessum millj­örðum króna sem orðið hafa til frá árinu 2010 hafa 1.379 millj­arðar króna farið til efstu tíu pró­sent lands­manna, sem telur 22.213 fjöl­skyldur. Það þýðir að 43 pró­sent alls nýs auðs hefur endað hjá þessum hópi.

Í fyrra jókst auður þessa hóps um 304 millj­arða króna á á síð­ustu tveimur árum hefur hann vaxið um 667 millj­arða króna. Tæplega önnur hver króna sem verður til í auði í íslensku efna­hags­lífi ratar því til rík­ustu tíu pró­sent lands­manna.

[adspot]Sá hópur átti því 58 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna um síð­ustu ára­mót, eða alls 2.729 millj­arða króna. Þar á meðal er helm­ingur alls eigin fjár í fast­eignum sem til er í land­inu og rúm­lega helm­ingur allra inn­lána. Efsti fimmt­ung­ur­inn átti sam­tals 3.796 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að 80 pró­sent lands­manna átti 20 pró­sent eig­in­fjár og rík­ustu 20 pró­sentin 80 pró­sent þess.

Efsta tíundin greiddi 25 prósent allra skatta

Í töl­unum kemur einni fram að ein­stak­lingar hafi alls greitt 433,1 millj­arð króna í skatta á árinu 2018. Um er að ræða tekju­skatt, útsvar, eign­ar­skatta, fjár­magnstekju­skatt og aðra skattaliði sem koma fram á skatt­fram­tali, að frá­dregnum vaxta- og barna­bótum. Fast­eigna­gjöld, bif­reiða­gjöld og þess háttar gjald­heimta er ekki talin með í heild­ar­upp­hæð­inni.

Þar af greiddi efsta tíundin mest eða 109,2 millj­arða króna í skatta eða 25 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. Sá helm­ingur lands­manna sem er með lægstar tekjur greiddi 101,2 millj­arða króna í skatta á árinu 2018.

Vert er að taka fram að sama fólkið sem hafði hæstu fjár­magnstekj­urnar eða átti mest eigið fé þarf ekki að vera hluti af þeim tíu pró­sentum sem greiddu hæstu skatt­anna þar sem miðað er við efstu tíund í hverjum flokki fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár