Viðreisn vill sjá aukinn einkarekstur í Reykjavík og þéttari byggð

Viðreisn vill nagla­dekkja­skatt sem renni til sveit­ar­fé­laga, halla­lausan borg­ar­sjóð árið 2024, gjald­frjálsan sex tíma leik­skóla fyrir 5 ára börn, þétt­ari byggð í Reykja­vík og skoða sölu á ein­ingum Orku­veitu Reykja­víkur sem eru í sam­keppn­is­rekstri.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík. Mynd: Aðsend

Viðreisn hefur kynnt stefnu sína fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, sem sett er fram undir slag­orð­inu „Skýr sýn fyrir Reykja­vík“.

Eftir að hafa fengið 8,2 pró­sent atkvæða og tvo borg­ar­full­trúa kjörna í kosn­ing­unum árið 2018 hefur Viðreisn nú verið að mæl­ast ögn minni í nýlegum skoð­ana­könn­unum, eftir fjög­urra ára setu í meiri­hluta borg­ar­stjórnar. Í síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar var flokk­ur­inn með 6,7 pró­senta fylgi en mæld­ist svo reyndar öllu spræk­ari og með 9 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Maskínu, sem birt var í gær.

Kjarninn kynnti sér heild­ar­stefnu Við­reisnar í Reykja­vík, um tutt­ugu blað­síðna plagg sem sam­þykkt var á mál­efna­þingi flokks­ins í Reykja­vík 2. apríl og tók saman það sem flokk­ur­inn setur á odd­inn fyrir kom­andi kosn­ingar.

Þéttari borg og stærra Kjalarnes

Hvað þróun byggð­ar­innar í borg­inni varðar vill Viðreisn horfa inn á við. Flokk­ur­inn vill hefja upp­bygg­ingu nýja hverf­is­ins við Ártúns­höfða og ljúka skipu­lagi vegna fyrstu áfanga Keldna­lands að und­an­geng­inni hug­mynda­sam­keppni.

Viðreisn vill einnig að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýri og að þar rísi þétt, blönduð byggð. Flokk­ur­inn segir að hefja eigi upp­bygg­ingu í Skerja­firði og öðrum svæðum í Vatns­mýri sem fyrst.

Í stefnu flokks­ins er einnig talað um að skoða megi stækkun núver­andi hverfa til þess að nýta betur þá inn­viði sem fyrir eru. Dæmi um þetta segir Viðreisn að geti verið „upp­bygg­ing á Skeifu­svæð­inu, við Kringl­una og í Úlf­arsár­dal“ og svo segir einnig í í stefnu flokks­ins að þétt­býlið á Kjal­ar­nesi megi stækka „til að það geti verið sjálf­bært og borið verslun og öfl­uga nær­þjón­ustu“.

Í hús­næð­is­málum segir flokk­ur­inn að lóða­út­hlut­anir skuli tryggja fram­boð og jafna sveiflu á hús­næð­is­mark­aði og að á næstu árum verði tryggðar lóðir fyrir minnst 2.000 íbúðir á ári. Viðreisn segir að huga skuli að „þörfum ungs fólks og fyrstu kaup­enda“ og lækka kostnað við nýbygg­ingar „með ein­földun reglu­verks og með því að minnka þörf fyrir dýr bíla­stæði.“

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja „end­ur­skoða“ samn­ings­mark­mið borg­ar­innar um fjölda leigu­í­búða á hverri lóð og segir að sam­eina ætti inn­viða­gjöld gatna­gerð­ar­gjöldum og auka gagn­sæi við inn­heimtu þeirra.

Nagladekkjaskattur til sveitarfélaga

Í sam­göngu­málum styður Viðreisn Borg­ar­línu og vill að hún verði í „hæsta gæða­flokki“. Flokk­ur­inn telur að leggja skuli áherslu á hátt þjón­ustu­stig almenn­ings­sam­gangna fremur en að gera þær ókeypis.

[adspot]

Einnig styður Viðreisn stækkun gjald­skyldra bíla­stæða­svæða og leng­ingu gjald­skyldu­tíma. Á hinn bog­inn segir Viðreisn að liðka þurfi fyrir fjölgun deili­bíla með tíma­bundnum bíla­stæða­fríð­indum.

Í mál­efna­skrá Við­reisnar segir einnig að Mikla­braut skuli setja í stokk upp að Grens­ás­vegi, að leggja skuli Sunda­braut fyrir alla sam­göngu­máta og draga úr notkun nagla­dekkja, með því að ríkið inn­heimti af þeim skatt og útdeili tekj­unum til sveit­ar­fé­laga. Flokk­ur­inn vill einnig að frítt verði í strætó á svoköll­uðum gráum dögum, þegar útlit er fyrir slæm loft­gæði í borg­inni.

Skoða megi sölu á samkeppniseiningum Orkuveitunnar

Viðreisn fjallar nokkuð um einka­væð­ingu og útvistun verk­efna hjá fyr­ir­tækjum í eigu borg­ar­innar í stefnu sinni í Reykja­vík.

Flokk­ur­inn segir að ljúka skuli við sölu Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða og jafn­framt að skoða megi „sölu á þeim ein­ingum Orku­veit­unnar sem starfa á sam­keppn­is­mark­aði“ en á meðal dótt­ur­fyr­ir­tækja Orku­veit­unnar sem starfa á sam­keppn­is­mark­aði er raf­orku­sal­inn Orka nátt­úr­unnar og Ljós­leið­ar­inn, sem áður hét Gagna­veita Reykja­víkur.[links]

Þá segir flokk­ur­inn að það ætti að skoða „að selja eða bjóða út valda þætti í rekstri Sorpu“ og að nýja sorp­brennslu­stöð ætti að reisa í sam­starfi við einka­að­ila. Viðreisn vill einnig „bjóða ætti út stærri hlut í akstri Strætó“ og telur flokk­ur­inn að borgin ætti að selja bíla­stæða­hús eða þá bjóða rekstur þeirra út „til að tryggja sam­keppni og stuðla að eðli­legri verð­myndum“. Viðreisn telur einnig að færa mætti inn­heimtu bíla­stæða­gjalda alfarið í hendur einka­að­ila.

Viðreisn vill einnig að mat­ar­þjón­usta hjá borg­inni verði boðin út í skrefum og segir einnig „mikil tæki­færi fel­ast í auknu sam­starfi við einka­að­ila sem starfa að vel­ferð­ar­málum,“ til dæmis hjúkr­un­ar­heim­ili, vinnu­staði fatl­aðs fólks og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í vel­ferð­ar­tækni.

Starfsfólki fjölgi ekki nema í grunnþjónustu

Í stefnu Við­reisnar segir að stefna skuli að halla­lausum rekstri borg­ar­sjóðs frá árinu 2024. Þá segir Viðreisn að skulda­við­mið sam­stæðu borg­ar­innar, að með­tal­inni Orku­veitu Reykja­víkur, skuli fara undir 150 pró­sent frá og með árinu 2027.

Til þess að ná þessu fram segir Viðreisn að halda skuli áfram hag­ræð­ing­ar­körfu upp á 1-2 pró­sent á næsta kjör­tíma­bili, meðal ann­ars með hjálp staf­rænnar umbreyt­ingar borg­ar­innar. Viðreisn segir einnig að það ætti ekki að fjölga starfs­fólki borg­ar­innar nema í grunn­þjón­ustu, og þá í takt við fólks­fjölgun.

Flokk­ur­inn vill einnig stefna að því að lækka fast­eigna­skatt á atvinnu­hús­næði í borg­inni, niður í 1,55 pró­sent. Á kjör­tíma­bil­inu hefur skatt­ur­inn verið lækk­aður í skrefum úr 1,65 pró­senti niður í 1,60 pró­sent.

Gjaldfrjálsan sex tíma á leikskóla fyrir 5 ára börn

Í skóla­málum seg­ist Viðreisn styðja „val­frelsi í mennta­kerf­inu og fjöl­breytt rekstr­ar­form mennta­stofn­ana“. Flokk­ur­inn leggur áherslu á að sjálf­stætt starf­andi grunn­skólar fái sama fram­lag og borg­ar­reknir skólar með hverjum nem­anda, gegn því að sjálf­stætt starf­andi skól­arnir inn­heimti ekki skóla­gjöld.

Hvað varðar leik­skóla seg­ist Viðreisn stefna að því að öll börn fái pláss á leik­skóla við 12 mán­aða aldur. Viðreisn seg­ist einnig vilja „hefja sam­tal við ríkið og sam­band sveit­ar­fé­laga“ um að 5 ára börn fái 6 klukku­stundir á dag á leik­skóla end­ur­gjalds­laust. Þetta segir Viðreisn styðja við jafna þátt­töku á vinnu­mark­aði, treysta skóla leik­skól­ans sem fyrsta skóla­stigs­ins og ýta undir félags­lega blöndun með því að fækka börnum sem ekki sækja leik­skóla.

Viðreisn segir að hlúa þurfi að sjálf­stætt starf­andi leik­skólum og vill flokk­ur­inn einnig að „vinnu­staðir geti rekið eigin leik­skóla“. Flokk­ur­inn vill styðja við alla leik­skóla sem gera til­raunir með sveigj­an­legri opn­un­ar­tíma og sum­ar­opnun, „án þess að það bitni á fag­legu starfi með börn­unum“.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um fram­lögð stefnu­mál flokka í Reykja­vík á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár