Vilja ráðningarstopp og mögulega rukka nágrannasveitarfélög fyrir félagsþjónustu

Mið­flokk­ur­inn í Reykja­vík vill hraða upp­bygg­ingu í Úlf­arsár­dal, Gufunesi, Geld­inga­nesi, Keldna­landi, Kjal­ar­nesi og víðar, fjölga mis­lægum gatna­mótum, fækka göngu­ljósum og end­ur­skoða allan rekstur borg­ar­innar út frá umhverf­is­málum.

Ómar Már Jónsson stendur í stafni fyrir lista Miðflokksins í Reykjavík.
Ómar Már Jónsson stendur í stafni fyrir lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn í Reykja­vík setti á dög­unum fram áherslur flokks­ins á kosn­inga­vef sínum í Reykja­vík. Flokk­ur­inn hefur átt einn borg­ar­full­trúa á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, en mætir nú til leiks með nýjan odd­vita, Ómar Má Jónsson, sem er fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóri á Súðavík.

Rúm 6 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingnum féllu Mið­flokknum í skaut, en sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar mælist flokk­ur­inn nú með 1,8 pró­senta fylgi, sem myndi ekki duga til að fá mann kjör­inn.

Mál­efna­skrá flokks­ins í borg­inni er sett fram undir slag­orð­inu „Meiri borg fyrir alla“ sem einnig hefur verið útfært sem „X-Meiri borg“ í aug­lýs­ingum. Það er ekki úr lausu lofti gripið, enda vill Mið­flokk­ur­inn að flat­ar­mál borg­ar­innar stækki og segir Reykja­vík ekki skorta land­rými.

Flokk­ur­inn ætli því í hús­næð­is­málum að leggja áherslu á það byggja á óbyggðu landi og „draga úr „þétt­ingu byggðar“ áherslum“. Flokk­ur­inn horfir á það að „hraða upp­bygg­ingu í Úlf­arsár­dal, Gufunesi, Geld­inga­nesi, Keldna­landi, Kjal­ar­nesi og víðar“ og vill fjöl­breyttar húsa­teg­undir, „þ.m.t. úthlutun á ein­býl­is­húsa­lóðum sem skortur er á“.

Mið­flokk­ur­inn seg­ist borg­ina ekki hafa sinnt sumum hverfum borg­ar­innar sem skyldi. „Við ætlum að tryggja jafnan til­veru­rétt og upp­bygg­ingu allra hverfa þannig að hvert og eitt þeirra geti blómstrað,“ segir í mál­efna­skrá flokks­ins.

Ráðningarstopp og áætlun um lækkun skulda

Mið­flokk­ur­inn seg­ist ætla sér að stöðva skulda­söfnun og ein­falda rekstur borg­ar­innar og setja „aðhald í rekstri í for­gang“. Í því skyni ætlar flokk­ur­inn meðal ann­ars að beita sér fyrir því að „ráðn­ing­ar­stopp“ taki gildi hjá borg­inni sem eigi að leiða af sér nátt­úru­lega fækkun starfs­manna.

„Fara þarf í heild­ar­end­ur­skoðun á starfs­manna­stefnu borg­ar­innar með það að mark­miði að lækka launa­kostnað m.a. með fækkun starfs­manna í stjórn­sýsl­unni en án þess þó að skerða lög­bundna þjón­ustu borg­ar­innar,“ segir í mál­efna­skrá Mið­flokks­ins.

Flokk­ur­inn vill selja fyr­ir­tæki í sam­keppn­is­rekstri eins og mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða og ætlar sér að gera aðgerða­á­ætlun sem miði að því að ná heild­ar­skuld­bind­ingum sam­stæðu borg­ar­innar niður fyrir 150 pró­sent fyrir lok kom­andi kjör­tíma­bils.

Nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lög greiði borg­inni fyrir félags­þjón­ustu

Í mál­efna­skrá Mið­flokks­ins segir að höf­uð­borgin sé „að standa sig betur en mörg nágranna­sveit­ar­fé­lögin“ þegar komi að úrræðum fyrir þau sem standa höllum fæti og m.a. er vísað til þess að það megi sjá í sam­an­burði á fjölda félags­legra íbúða á milli sveit­ar­fé­laga, sem Kjarninn réð­ist í á liðnu hausti.

Mið­flokk­ur­inn segir að ef nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lög séu ekki að sinna sína lög­bundna þjón­ustu­hlut­verki handa þeim sem þurfi á félags­legu hús­næði að halda eða annarri félags­legri þjón­ustu þurfi að „jafna þá stöðu meðal sveit­ar­fé­laga þannig að nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lög greiði þá borg­inni fyrir að taka þungan af þeim mála­flokki.“ Bendir Mið­flokk­ur­inn á for­dæmi frá Danmörku í þessum efnum.

Hafna „þungri“ Borgarlínu og vilja fleiri mislæg gatnamót

Í sam­göngu­málum má lesa í mál­efna­skrá Mið­flokks­ins að hann hafni „þungri“ Borg­ar­línu, en flokk­ur­inn segir að leiðin til að „breyta umferð­ar­háttum“ sé „ekki fólgin í meiri háttar skipu­lags­breyt­ingum sem tekur a.m.k. 15 ár að fram­kvæma.“

Þess í stað seg­ist flokk­ur­inn vilja mun betri ljósa­stýr­ingar, setja göngu­brýr yfir stofnæðar eða und­ir­göng undir þær og fækka þannig ljósa­bún­aði fyrir gang­andi veg­far­endur. Auk þess vill flokk­ur­inn „koma fyrir mis­lægum gatna­mótum á umferða­mestu gatna­mót­un­unum og tryggja þannig óhindrað flæði umferðar án tafa“.

[adspot]

„Tryggjum áfram­hald­andi opnun Lauga­vegs, Skóla­vörðu­stígar og Banka­strætis í sam­vinnu við atvinnu­líf þess svæðis,“ segir einnig í mál­efna­skrá Mið­flokks­ins og er þar vænt­an­lega átt við „opnun“ gatn­anna fyrir bíla­um­ferð. Flokk­ur­inn seg­ist svo ætla að „standa vörð um flug­völl­inn í Vatns­mýri“.

Reykjavík nái loftslagsmarkmiðum

Mið­flokk­ur­inn segir miklar sam­fé­lags­breyt­ingar vera að eiga sér stað í umhverf­is­málum og að það hafi „aldrei verið eins mik­il­vægt fyrir stjórn­völd, sveit­ar­fé­lög, íbúa og fyr­ir­tæki að taka þátt í þeirri þróun sem er að eiga sér stað.“[links]

Í mál­efna­skrá flokks­ins er rakið að rík­is­stjórnin hafi skuld­bundið sig til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, ná mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins og ein­sett sér að Ísland verði kolefn­is­hlut­laust árið 2040.

„Reykja­vík­ur­borg á að sýna fyr­ir­hyggju og vera í far­ar­broddi til að ná þeim mark­miðum sem henni ber í umhverf­is­málum og einnig í átt að sjálf­bærni, hvort sem það er fjár­hags­leg- eða umhverfis sjálf­bærni,“ segir í mál­efna­skrá flokks­ins.

Þar segir einnig að það þurfi að „end­ur­skoða allan rekstur borg­ar­innar með umhverf­is­mál að leið­ar­ljósi“ og „leggja mun meiri áherslu á umhverf­is­vænni húsa­bygg­ingar þar sem mark­miðið á að vera að kolefn­is­spor hverrar hús­ein­ingar sé sem minnst í sam­an­burði við það besta sem þekk­ist.“

Einnig segir flokk­ur­inn að til að ná mark­miðum stjórn­valda í lofts­lags­málum þurfi að stór­efla skóg­rækt í borg­ar­land­inu og að það sé for­gangs­mál að hraða orku­skiptum í sam­göngum með áherslu á bíla­flota borg­ar­innar og raf­væð­ingu hafna.

Mið­flokk­ur­inn seg­ist einnig ætla að „beita sér fyrir því að standa vörð um græn og opin svæði borg­ar­innar og fjölga göngu­stígum og brautum fyrir hjól­reiða­fólk“.

Kjarninn mun halda áfram að segja frá stefnu­málum fram­boða sem bjóða fram til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík næstu daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár