Vilja enga útvistun starfa hjá borginni og 3.000 nýjar félagslegar íbúðir

Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill að Reykja­vík­ur­borg byggi þrjú þús­und félags­legar íbúðir, sér­stak­lega í hverfum þar sem lítið er af félags­legu hús­næði. Borgin ætti að mati flokks­ins ekki að útvista einu ein­asta starfi.

Sanna Magdalena Mörtudóttir er oddviti Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Arnar Þór

Sós­í­alista­flokk­ur­inn rekur fram­boðs­bar­áttu sína í Reykja­vík undir slag­orð­inu „Sanna Reykja­vík“ og snýr þannig upp á nafn odd­vit­ans Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, sem verið hefur eini borg­ar­full­trúi flokks­ins und­an­farin fjögur ár og raunar eini kjörni full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins á lands­vísu.

Flokk­ur­inn fékk 6,4 pró­sent atkvæða í Reykja­vík í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og er á svip­uðu reki í skoð­ana­könn­unum nú. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar frá 3. maí er flokk­ur­inn með 6,7 pró­sent fylgi og fengi einn borg­ar­full­trúa kjör­inn, en þó þyrfti fylgið ekki að verða mikið hærra til þess að annar maður á lista flokks­ins næði kjöri, ásamt odd­vit­anum Sönnu.

Á vef­síðu flokks­ins má sjá ýmsar áætl­anir og stefnur sem flokk­ur­inn vill hrinda í fram­kvæmd í Reykja­vík í kom­andi kosn­inga og tók Kjarninn það helsta sem þar má finna saman.

Vilja byggja 3.000 félagslegar íbúðir um alla borg

Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill að borgin sjálf ráð­ist í stór­á­tak í því að byggja hús­næði fyrir lág­tekju­fólk og vilja að borgin byggi 3.000 félags­legar íbúðir, einkum á þeim svæðum þar sem lítið er af félags­legu hús­næði í dag. Í því sam­hengi nefnir flokk­ur­inn Melana og Hagana í Vest­ur­bænum, Foss­vog­inn og Laug­arás­inn.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill að sveit­ar­fé­lögum verði tryggðir sterk­ari tekju­stofnar og vilja beita sér fyrir því að sam­staða náist á milli sveit­ar­fé­laga lands­ins um að stór­auka tekjur sveit­ar­fé­laga með því að leggja útsvar ofan á fjár­magnstekjur. Flokk­ur­inn segir að með þessu móti hefðu útsvars­tekjur Reykja­vík­ur­borgar verið um 7 millj­örðum meiri árið 2020.

[adspot]

Einnig vill flokk­ur­inn end­ur­vekja aðstöðu­gjald á fyr­ir­tæki, veltu­tengdan fyr­ir­tækja­skatt sem rann til sveit­ar­fé­laga, en hann var aflagður í upp­hafi tíunda ára­tugar síð­ustu aldar. Þessu máli vill Sós­í­alista­flokk­ur­inn að sveit­ar­fé­lög lands­ins beiti sér sam­eig­in­lega fyrir gegn rík­is­vald­inu. Þá vill flokk­ur­inn sömu­leiðis að sveit­ar­fé­lög hefji við­ræður við ríkið um að 10 pró­sent af áfeng­is­gjaldi renni til sveit­ar­fé­laga, fyrir nauð­syn­lega þjón­ustu við þau sem glíma við áfengis- og vímu­efna­vanda.

Í mennta- og barna­málum segir Sós­í­alista­flokk­ur­inn að þar sem börn hafi engar tekjur eigi þau ekki að greiða nein gjöld og vill flokk­ur­inn að menntun á öllum skóla­stigum verði gjald­frjáls og skóla­mál­tíðir verði ókeypis. Flokk­ur­inn vill einnig að börnum af erlendum upp­runa verði tryggð bæði íslensku­kennsla og móð­ur­máls­kennsla.

Allri útvistun verði hætt

Sós­í­alista­flokk­ur­inn er með það í stefnu­skrá sinni að „lág­launa­stefna verði lögð af í rekstri sveit­ar­fé­laga“ og allri útvistun verk­efna til einka­að­ila hætt, „starfs­fólk vinni beint fyrir sveit­ar­fé­lagið“. „Útvist­anir leiða ein­göngu til lægri launa, verra starfs­um­hverfis og verri þjón­ustu við íbú­ana,“ segir um þetta í mál­efna­skrá flokks­ins.

Sós­í­alista­lista­flokk­ur­inn vill bæta kjör og starfs­að­stæður starfs­fólks í skólum og við umönnun, auk þess sem flokk­ur­inn vill hækka fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga, þannig að fjár­hags­að­stoðin „dugi til að lifa mann­sæm­andi lífi“.[links]

Flokk­ur­inn vill einnig að öll þjón­usta á vegum sveit­ar­fé­laga sem snýr að heilsu og vel­ferð fólks skuli vera „gjald­frjáls og rekin af opin­berum aðilum eða af óhagn­að­ar­drif­inum félags­legum sam­tökum ef það á við“.

Almenn­ings­sam­göngur eiga einnig að vera gjald­frjálsar að mati flokks­ins, auk þess sem ekki ætti að inn­heimta vega­tolla á þjóð­vegum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill líka að aðgangur að opin­berum söfnum verði gjald­frjáls og að bóka­söfn, menn­ing­ar­stofn­anir og almenn­ings­garðar verði „efld sem opin rými þar sem allir mega koma saman óháð efna­hags­legri stöðu“.

Þriðja stjórnsýslustigið?

Í stefnu­á­herslum Sós­í­alista­flokks­ins segir einnig að flokk­ur­inn vilji kanna mögu­leik­ann á því að koma á þriðja stjórn­sýslu­stig­inu, „til þess að sam­eina kosti stærð­ar­innar og nær­sam­fé­lags­ins“ og því lýst að slíkt stjórn­sýslu­stig myndi taka yfir verk­efni sem nú eru á höndum rík­is­ins og í sumum til­fellum sveit­ar­fé­laga.

Notendur þjónustu fái að hafa meiri áhrif

Sós­í­alistar segj­ast einnig vilja auka lýð­ræði með því að „not­endur þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna og starfs­menn í almanna­þjón­ustu fái meira vald til ákvarð­ana­töku innan kerf­is­ins“.

Dæmi um þetta eru væru að starfs­menn og íbúar á hjúkr­un­ar­heim­ilum fengju að taka þátt í stefnu­mótun í þeim mála­flokki, not­endur almenn­ings­sam­gangna að þeirra málum og starfs­fólk líkt og kenn­arar og skóla­liðar, nem­endur og for­eldrar kæmu að ákvarð­ana­töku í skóla­málum – og svo mætti áfram telja.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um fram­lögð stefnu­mál fram­boða í Reykja­vík á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár