Framsókn vill skoða yfirbyggt Austurstræti, byggja meira og fá „skilvirka“ Borgarlínu

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Reykja­vík seg­ist vilja flýta Sunda­braut, end­ur­vekja næt­ur­strætó, byggja meira og hraðar í borg­inni, skoða yfir­bygg­ingu Aust­ur­strætis, tryggja að næt­ur­líf raski ekki lífs­gæðum mið­borg­ar­búa og efla staf­ræna hæfni eldri borg­ara.

Einar Þorsteinsson er oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Einar Þor­steins­son er odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem á engan full­trú í borg­ar­stjórn Reykja­víkur í dag eftir að hafa fengið 3,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum, býður fram í Reykja­vík undir slag­orð­inu „Er ekki kom­inn tími á breyt­ingar í borg­inni?“.

Öruggt má telja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni eign­ast borg­ar­full­trúa í Reykja­vík eftir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Spurn­ingin er öllu fremur hversu margir þeir verða, en sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fengi flokk­ur­inn þrjá full­trúa kjörna og 12,3 pró­sent atkvæða.

Flokk­ur­inn beið fremur lengi með að kynna kosn­inga­á­herslur sínar í Reykja­vík, en rúll­aði þeim út í síð­ustu viku. Kjarninn tók saman það helsta úr áherslum Fram­sóknar í Reykja­vík, sem finna má á vef fram­boðs­ins.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn seg­ist vilja „hús­næð­isátt­mála“ til að ná jafn­vægi í hús­næð­is­málum og segir að mæta verði eft­ir­spurn með því að „byggja meira, hraðar og fjöl­breytt­ara hús­næði“, en mark­miðið segir flokk­ur­inn að ætti að vera upp­bygg­ing 3.000 íbúða á ári.

Flokk­ur­inn seg­ist vilja „þétta byggð þar sem inn­viðir leyfa og í auk­inni sátt við íbúa“ en nefnir enga sér­staka staði innan borg­ar­innar í því sam­hengi. Flokk­ur­inn seg­ist þó vilja „öfl­uga upp­bygg­ingu í öllum hverfum borg­ar­innar“ og reisa nýtt hverfi á Keldna­land­inu.

Í hús­næð­is­málum seg­ist flokk­ur­inn einnig styðja upp­bygg­ingu leigu­mark­aðar í gegnum óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög, „eyða biðlistum eftir búsetu­úr­ræðum fyrir fólk með fötlun“, byggja fleiri þjón­ustu­kjarna fyrir eldra fólk og „auka skil­virkni og gagn­sæi“ í stjórn­sýsl­unni til að hraða fram­kvæmdum.

Vilja „skilvirka Borgarlínu“ og endurvekja næturstrætó

Í sam­göngu­málum seg­ist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vilja „tryggja fram­gang Sam­göngusátt­mál­ans“, öfl­uga upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna og „skil­virka Borg­ar­línu“.

Þá seg­ist flokk­ur­inn vilja öfl­uga upp­bygg­ingu hjóla- og göngu­stíga, hraða gerð Sunda­brautar og end­ur­vekja næt­ur­strætó, sem lagð­ist af í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum ásamt næt­ur­líf­inu í mið­borg­inni. Flokk­ur­inn vill einnig að börn í grunn- og fram­halds­skólum fái ókeypis í strætó og sömu­leiðis að „skipu­lags­mál styðji við minnkun kolefn­is­fótspors“ og að 15 mín­útna hverfi verði þunga­miðja skipu­lags í borg­inni.

[adspot]

Framsókn seg­ist vilja hækka frí­stunda­styrk barna upp í 75 þús­und krónur á ári og að öll börn undir 18 ára aldri fái ókeypis í sund. Þá seg­ist Framsókn vilja „eyða biðlistum eftir leik­skóla­plássum og auka sveigj­an­leika í opn­un­ar­tíma án þess að lengja skóla­dag barna.“ Flokk­ur­inn vill líka efla dag­for­eldra­kerfið og bjóða svo­kall­aðar „heim­greiðslur“ með börnum sem bíða eftir plássi á leik­skóla.

Framsókn seg­ist einnig vilja „inn­leiða far­sæld­ar­lögin í allt starf borg­ar­innar“ og tryggja að börn hafi aðgang að snemmtækri íhlutun, auk þess að „gera sam­skipti barna­fjöl­skyldna við stjórn­sýslu borg­ar­innar skil­virk­ari“. Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja öfl­uga upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virkja í öllum hverfum borg­ar­innar og efla félags­mið­stöðvar og starf­semi ung­menna­húsa. Þjóð­ar­höll og -leik­vangar eiga að rísa í borg­inni, að mati Fram­sóknar.[links]

Í kosn­inga­á­herslum Fram­sóknar er margt fremur almennt orðað, en flokk­ur­inn vill til dæmis „auka sam­vinnu í borg­ar­stjórn“ til að efla traust meðal borg­ar­búa, „efla sam­vinnu og vellíðan í borg­inni“, að for­ysta innan borg­ar­innar verði efld, efla menn­ing­ar­starf, hlúa að fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag­inu, tryggja jafn­rétti allra kynja, stuðla að hinseg­in­vænni borg, tryggja rétt fatl­aðra til sjálf­stæðs lífs án aðgrein­ingar, taka vel á móti flótta­fólki og tryggja úrræði fyrir heim­il­is­laust fólk, svo eitt­hvað sé nefnt.

Framsókn seg­ist vilja lækka fast­eigna­gjöld á fyr­ir­tæki, en til­tekur þó ekki hve mikið þau ættu að lækka, en flokk­ur­inn segir að Reykja­vík ætti að vera „höf­uð­borg atvinnu­lífs í land­inu“ og „tryggja fyr­ir­tækjum góð skil­yrði til að þríf­ast“.

Yfirbyggt Austurstræti?

Það kennir ýmissa grasa í mál­efna­skrá fram­boðs­ins, en Framsókn seg­ist vilja „skoða það að byggja yfir Aust­ur­stræti og skapa skemmti­lega borg­ar­stemn­ingu allt árið þar sem veit­inga­staðir geta fært þjón­ustu sína út á götu“.

Einnig seg­ist Framsókn vilja „auka öryggi íbúa með auknu sam­starfi við lög­reglu innan hverfa“ og tryggja að mið­bær­inn sé „öruggur staður að degi sem nóttu“ og að skemmt­ana­lífið í mið­borg­inni „raski ekki lífs­gæðum íbúa þar“.

Í mál­efnum eldra fólks seg­ist Framsókn vilja bæta akst­urs­þjón­ustu eldri borg­ara, fjölga val­kostum í mat­ar­þjón­ustu og einnig vilja að borgin hvetji hjúkr­un­ar­heim­ili borg­ar­innar til að „til­einka sér hug­mynda­fræði Eden-stefn­unnar“ sem hefur verið á meðal bar­áttu­mála Kol­brúnar Bald­urs­dóttur borg­ar­full­trúa Flokks fólks­ins á síð­ustu miss­erum.

Framsókn seg­ist líka vilja stór­efla heilsu­efl­ingu fyrir eldri borg­ara og sömu­leiðis efla „staf­ræna hæfni eldra fólks með áherslu á notkun raf­rænna skil­ríkja“.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um fram­lögð stefnu­mál fram­boða í Reykja­vík á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár