Sjö af tíu hafa verra álit á Samherja og 92 prósent telja að mútur hafi verið greiddar

Íbúar á Akureyri og Dalvík trúa því síður að Samherji hafi greitt mútur fyrir aðgang að kvóta en aðrir lands­menn. Samherji hefur líka látið kanna við­horf almenn­ings en ekki birt þær nið­ur­stöður.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Mark­tækur munur er á því hvort fólk trúi því að Samherji hafi greitt mútur til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu eftir því hvort fólk býr ann­ars vegar á Akureyri eða Dalvík eða hins vegar ann­ars­staðar á land­inu. Á Akureyri og Dalvík, þar sem starf­semi Samherja er umfangs­mikil og áhrif fyr­ir­tæk­is­ins á nær­sam­fé­lag sömu­leiðis, segj­ast 71 pró­sent íbúa trúa því að Samherji hafi greitt mútur til að fá kvóta í Namibíu. Á lands­vísu er það hlut­fall hins vegar 92 pró­sent.

Þetta kemur fram í könnun sem Stundin fékk MMR til að gera vegna umfjöll­unar blaðs­ins um heima­vígi Samherja, sem birt var í dag. Alls svör­uðu 1.127 manns könn­un­inni og þar af voru 908 búsettir utan Akur­eyrar og Dalvíkur.

Í könn­un­inni voru þátt­tak­endur líka spurðir hvort álit þeirra á útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja hefði verið óbreytt síð­ast­lið­inn tvö ár eða hvort það hefði breyst til hins betra eða verra. Alls sögð­ust 69 pró­sent aðspurðra á lands­vísu að álit þeirra á Samherja hefði versnað og ein­ungis fjögur pró­sent að það hefði batnað. Á Eyja­fjarð­ar­svæð­inu var nið­ur­staðan önnur. Alls 36 pró­sent aðspurðra á Akureyri og Dalvík sögðu að álit þeirra á Samherja hefði versnað en tíu pró­sent að það hefði batnað. Tæpur helm­ingur svar­enda þar, 47 pró­sent, sögðu að við­horfið væri óbreytt. Á lands­vísu var það hlut­fall 28 pró­sent.

Líkt og Kjarninn greindi frá í ágúst í fyrra þá hefur Samherji sjálfur einnig mælt traust fólks til sín. Í net­könnun sem Gallup sendi út á við­horfs­hóp sinn í lok júlí 2020 var fólk meðal ann­ars spurt hvort það væri ánægt eða óánægt með „að­gerðir Sam­herja í kjöl­far ásak­ana um mútur í Namib­íu“. Þetta er ekki eina skiptið sem Gallup hefur mælt hver ímynd fyr­ir­tæk­is­ins er í hugum lands­manna und­an­farið rúmt ár. Nið­ur­stöður þess­ara mæl­inga hafa ekki verið gerðar opin­berar.

Vilja vita hvernig ákvarðanir voru teknar

Samherji hefur verið mikið til umfjöll­unar síð­ast­liðið rúmt ár. Þann 12. nóv­­em­ber 2019 birt­ist umfjöllun Kveiks, Stund­­­­­­ar­inn­­­­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um meintar mút­­­­­u­greiðsl­­­­­­ur, pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­­­­þús­undum gagna og upp­­­­­­­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­­­­son­­­­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­­­­manns Sam­herja í Namib­­­­­­íu.

Angar af því máli eru nú til rann­sóknar í Namibíu, á Íslandi og hjá fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Noregi. Þegar hafa verið lagðar fram ákærur í Namibíu á hendur félögum tengdum Samherja og þremur íslenskum stjórn­endum þeirra. Á Íslandi eru sex manns með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­málum. Um er að ræða núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn og stjórn­endur Samherja. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

[adspot]Í mál­inu er grunur er að um mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Kjarninn greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG, sem vann lengi fyrir Samherja, hafi verið gert að láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Sam­herja á árunum 2013 og 2014 í tengslum við rann­sókn­ina.

Lesa má í úrskurði hér­aðs­dóms vegna þessa að hér­aðs­sak­sókn­ari telji nauð­syn­legt að upp­lýsa um atriði sem varði fjár­hag- og rekstr­ar­af­komu félaga innan sam­stæðu Sam­herja vegna rann­sóknar máls­ins. Sömu­leiðis að það hafi þýð­ingu fyrir rann­sókn emb­ætt­is­ins að upp­lýsa eins og hægt er hvernig töku ákvarð­ana var háttað innan sam­stæðu Sam­herja.

Athyglin beinist að Kýpur

Kveikur, frétta­skýr­inga­þáttur RÚV sem ásamt Stund­inni, Wikileaks og Al Jazeera stóð að upp­runa­legu umfjöll­un­inni um Sam­herj­a­skjölin í nóv­em­ber 2019, birti fram­halds­um­fjöllun um málið í gær­kvöldi.

Þar kom meðal ann­ars fram að grunur sé um frek­ari mútu­greiðslur til stjórn­mála­manns í Namibíu en áður hefur verið greint frá hér­lendis og kafað ofan í Kýp­ur­starf­semi Samherja.

[links]Kýpur hefur verið nokk­urs konar heima­höfn alþjóð­legrar starf­semi Samherja um margra ára skeið. Í umfjöllun Kveiks var vitnað til tölvu­pósts frá árinu 2009 sem Stundin birti fyrir nokkrum árum síðan, frá Baldvini Þor­steins­syni, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Afr­íku­út­gerðar Samherja og núver­andi for­stjóra Samherja í Evrópu, þar sem stóð: „„Til­gang­ur­inn er eft­ir­far­andi: Að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins þar sem eng­inn skattur er á hagnað fyr­ir­tæk­is­ins. Við teljum Kýpur vera rétta landið. Með því að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Kötlu Seafood getum við lækkað skipta­hlut sjó­manna og stjórnað betur á hvaða verðum við myndum gera upp. […] Með því að draga úr hagn­aði þar og láta hagn­að­inn mynd­ast hjá sölu­fyr­ir­tæk­inu þá tæk­ist okkur að auka hagnað heild­ar­innar. Þetta teljum við nokkuð snyrti­lega leið til að draga úr skatt­greiðslum.“

Ári síðar færði Samherji umfangs­mikla fisk­sölu til Kýpur og hefur haft mikla starf­semi þar alla tíð síðan, en skattar á fyr­ir­tæki þar í landi eru mun lægri en t.d. á Íslandi.

Í Kveik voru umsvif Kýp­ur­fé­laga Samherja, Esju Seafood og Esju Shipping, og fjöl­margra dótt­ur­fé­laga þeirra rakin. Félögin tvö eru með umsvif og tuga millj­arða króna eignir út um allan heim. Þegar Kveikur bank­aði upp á skrif­stofu þeirra í Limassol á Kýpur var hins vegar eng­inn þar. Og skrif­stofan, sem líkt­ist frekar her­bergi, virð­ist að mestu vera til mála­mynda sam­kvæmt því sem fram kom í Kveik. Grunur rann­sókn­ar­að­ila á Íslandi bein­ist að því að raun­veru­leg stjórnun Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hafi öll verið á Íslandi.

Þá kom einnig fram í Kveik að í skýrslu rann­sókn­ar­end­ur­skoð­enda sem ráðnir voru af sam­starfs­fólki Samherja í Namibíu komi fram að þeir telji útgerð­ina hafa svikið fé af fólk­inu. Í rann­sókn­ar­skýrslu þeirra er lagt til að málið verði kært til lög­reglu og krafa gerð á Samherja um að greiða fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk­inu millj­arða króna. 

Í viðtali í Morgunblaðinu

Samherji vildi ekki svara spurn­ingum Kveiks vegna umfjöll­un­ar­innar og óskum um við­tal við þá starfs­menn og stjórn­endur sem tengd­ust umfjöll­un­inni var hafnað. Þess í stað birti fyr­ir­tækið efni á heima­síðu sinni sem bar fyr­ir­sögn­ina „Óljósar aðdrótt­anir Rík­is­út­varps­ins“. Í því efni birti fyr­ir­tækið mynd af þremur blaða­mönnum Kveiks og sagði að svo virt­ist „sem frétta­menn Rík­is­út­varps­ins ætli að freista þess enn á ný að end­ur­vinna gamlar upp­lýs­ingar um útgerð­ina í Namibíu í þeim til­gangi að koma höggi á Samherja.“ Engin til­raun er gerð í efn­inu til að svara efn­is­lega því sem fram kom í umfjöllun Kveiks í gær.

Þor­steinn Már, sem var einn þeirra sem Kveikur óskaði eftir við­tali við, var svo til við­tals í Morg­un­blað­inu á síðu 2 í morgun. Í þeirri frétt er haft eftir honum að hann muni ekki missa svefn yfir umfjöllun Kveiks. Hún sé áfram­hald­andi aðför Rík­is­út­varps­ins að Samherja og starfs­mönnum hans. „»Þarna kemur ekk­ert fram sem ekki er hægt að hrekja. Veru­legar skatt­greiðslur voru greiddar til Íslands vegna skipa sem aldrei komu til Íslands,“ er haft eftir Þor­steini Má. Ekki kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins hvernig það sem sett var fram í Kveik verði hrakið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár