Héraðssaksóknari fékk bókhald Samherjasamstæðunnar með dómsúrskurði

Í byrjun des­em­ber féllst Hér­aðs­dómur Reykja­víkur á kröfur emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara um að fá afhent bók­halds­gögn Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og fleira frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG. Þagn­ar­skyldu end­ur­skoð­and­ans var aflétt.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG hefur verið gert að láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Samherja á árunum 2013 og 2014.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð sinn um þetta í byrjun des­em­ber. Dómurinn féllst á kröfur hér­aðs­sak­sókn­ara um að KPMG yrði skyldað til að láta gögnin af hendi og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum félags­ins yrði sömu­leiðis gert skylt að veita emb­ætt­inu þær upp­lýs­ingar sem þeir búa yfir.

KPMG, sem sá um bók­hald Samherja árum saman og þar til í fyrra, hefur þannig verið skyldað til þess að aflétta þeim trún­aði sem ríkir milli end­ur­skoð­enda og við­skipta­vina þeirra, en kveðið er á um þagn­ar­skyldu end­ur­skoð­enda í lögum.

Reynt að komast að því hver tók ákvarðanir hjá Samherja

Fram kemur í úrskurð­inum, sem varð opin­ber í þess­ari viku í kjöl­far þess að Lands­réttur tók málið fyrir og vís­aði kæru Samherja frá, að rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara bein­ist að ætl­uðum brotum starfs­manna eða fyr­ir­svars­manna Samherja. Þau séu talin kunna að varða við greinar almennra hegn­ing­ar­laga sem fjalla um mútu­brot og pen­inga­þvætti, og eftir atvikum auðg­un­ar­brotakafla lag­anna.

Lesa má í úrskurði hér­aðs­dóms að hér­aðs­sak­sókn­ari telji nauð­syn­legt að upp­lýsa um atriði sem varði fjár­hag- og rekstr­ar­af­komu félaga innan sam­stæðu Samherja vegna rann­sóknar máls­ins. Sömu­leiðis að það hafi þýð­ingu fyrir rann­sókn emb­ætt­is­ins að upp­lýsa eins og hægt er hvernig töku ákvarð­ana var háttað innan sam­stæðu Samherja.

Þar kemur þessi skýrsla við sögu. Umrædd skýrsla KPMG fyrir Samherja, eða öllu heldur drög að henni, hafa verið til umfjöll­unar áður. Um þau var meðal ann­ars fjallað í bók­inni Ekkert að fela eftir Helga Seljan, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stefán A. Drengs­son sem kom út í nóv­em­ber 2019. Skýrslan er eins konar grein­ing á því hvernig skipu­lag Sam­herj­a­sam­stæð­unnar var á þessum tíma.[links]

Samkvæmt mati sér­fræð­inga KPMG, sem byggði m.a. á við­tölum við starfs­fólk Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, var for­stjór­inn og stjórn­ar­for­mað­ur­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son nær ein­ráður í fyr­ir­tæk­inu og með alla þræði í hendi sér. Engin form­leg fram­kvæmda­stjórn var sögð innan Samherja hf., sam­kvæmt þessum drögum sér­fræð­inga KPMG.

Athuga­semdir voru gerðar við ýmis­legt af því sem fram kom í mati KPMG af hálfu Samherja og í síð­ari drögum að skýrsl­unni var búið að draga úr umfjöllun um hlut­verk og áhrif stjórn­ar­for­manns­ins. Hér­aðs­sak­sókn­ari telur vert að skoða þessa skýrslu­gerð sér­stak­lega.

Úrskurður sóttur til dómara án vitneskju KPMG

Þegar emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara lagði kröf­una fram til hér­aðs­dóms bað emb­ættið um að úrskurður yrði kveð­inn upp án þess að full­trúar KPMG yrðu kvaddir fyrir dóm.

Á það féllst dóm­ari, en lesa má í úrskurði hér­aðs­dóms að það hafi verið mat emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara að vit­neskja um rann­sókn­ar­að­gerð­ina fyr­ir­fram innan end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins gæti spillt fyrir rann­sókn máls­ins.

[adspot]

Fram kemur að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hafi meðal ann­ars lagt fram þann rök­stuðn­ing að þrátt fyrir að eng­inn starfs­maður end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins væri sak­born­ingur í mál­inu væri ekki vissa um hvort eitt­hvað við­skipta- eða hags­muna­sam­band væri enn á milli KPMG og Samherja. Í því sam­hengi þyrfti að hafa í huga stærð Samherja og víð­tækar eignir og yfir­ráð félags­ins í öðrum félögum í íslensku atvinnu­lífi og sömu­leiðis til­tölu­lega fyr­ir­ferð KPMG sem þjón­ustu­veit­anda.

Einnig væri ekki unnt að úti­loka að gögn og upp­lýs­ingar sem aflað yrði frá KPMG gætu leitt í ljós atriði sem beina myndu rann­sókn að KPMG eða starfs­mönnum þess síðar meiri. Rétt væri að gæta var­úðar, vegna hags­muna rann­sókn­ar­innar.

Aðfinnslur í Landsrétti

Samherji reyndi að fá þessum úrskurði hér­aðs­dóms hnekkt í Lands­rétti, en það gekk ekki. Í úrskurði Lands­réttar frá 28. jan­úar segir að ekki sé hægt að líta svo á að félög Samherja hafi verið aðilar að mál­inu í hér­aðs­dómi. Því væri þeim ekki heim­ilt að kæra úrskurð hér­aðs­dóms til Lands­réttar.

Í nið­ur­stöðu Lands­réttar segir að varn­ar­að­ilar njóti víð­tæks réttar til þess að leggja fyrir dóm ágrein­ing um lög­mæti yfir­stand­andi rann­sókn­ar­at­hafna lög­reglu eða ákærenda. Þessi leið sé hins vegar ekki fær, þar sem félög Samherja voru ekki aðilar máls­ins í hér­aðs­dómi.

Dómarar í Lands­rétti komu á fram­færi athuga­semdum við verk­lag hér­aðs­dóm­ara í nið­ur­stöðu sinni og segja „aðfinnslu­vert“ að hér­aðs­dóm­ari hafi ekki krafið hér­aðs­sak­sókn­ara um rann­sókn­ar­gögn máls­ins og gengið úr skugga um hvort laga­skil­yrði væru upp­fyllt áður en krafan var tekin til úrskurðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár