Þorsteinn Már með alla þræði í hendi sér

Sér­fræð­ingar á vegum KPMG í Hollandi unnu úttekt á starf­semi Samherja og sögðu for­stjór­ann nær ein­ráðan í fyr­ir­tæk­inu, í úttekt sinni. Ef fyr­ir­tæki er með raun­veru­lega fram­kvæmda­stjórn á Íslandi á það að greiða skatta þar.

Engin hefð­bundin fram­kvæmda­stjórn var hjá Samherja heldur liggja allir þræð­irnir við stjórnun þess, um stór og smá mál, til for­stjór­ans og stórs eig­anda, Þor­steins Más Bald­vins­sonar.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í bók­inni „Ekk­ert að fela – Á slóð Sam­herja í Afr­ík­u“, eftir Helga Selj­an, Aðal­stein Kjart­ans­son og Sté­fán Aðal­stein Drengs­son, þar sem fjallað er ítar­lega um sögu og umsvif sjáv­ar­út­vegs­ris­ans Sam­herja, sem var nýverið afhjúp­aður í Kveiks­þætti sama teym­is. Bókin kemur út í dag.

Bókin byggir á rann­sókn­ar­vinnu þeirra á Sam­herj­a­skjöl­unum svo­nefndu, sem Kveikur, Stundin, og Al Jazeera hafa unnið úr, en Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja, kom gögn­unum til Wikileaks. Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, hafði svo sam­band við Helga Seljan, og hófst vinnan eftir það, en ítar­lega er farið yfir upp­haf þess­arar rann­sókn­ar­vinnu í fyrr­nefndri bók.

Yfirlit yfir heildarstarfsemi

Í bók­inni er fjallað um úttekt sem sér­fræð­ingar á vegum KPMG í Hollandi unnu á starf­semi Samherja. Til­gangur skýrslu sér­fræð­ing­ana frá Hollandi var að gefa yfir­lit af starf­semi Samherja, og ekki síst „flókið inn­an­húss hag­kerfi stór­fyr­ir­tækis sem starfar víða um heim,“eins og orð­rétt segir í bók­inni. Það var mat sér­fræð­ing­ana að í grund­vallar atriðum væri skipu­rit félags­ins ein­falt: Þor­steinn Már ræður.

[adspot]Orðrétt segir um þetta í bók­inni (síður 76 til 82):

„Og Mái, eins og Þor­steinn Már er gjarnan kall­aður af vinum sínum og fjöl­skyldu, hefur ekki slegið slöku við þótt kom­inn sé fast að sjö­tugu og vill enn hafa putt­ana í stórum sem smáum við­fangs­efnum fyr­ir­tæk­is­ins um allan heim. Því hefur verið haldið fram að í raun sé engin hefð­bundin fram­kvæmda­stjórn í Samherja. Þetta birt­ist til dæmis í skýrslu sem KPMG og skatta­sér­fræð­ingar þess í Hollandi unnu fyrir fyr­ir­tækið í jan­úar árið 2014. Skýrslan byggð­ist á tveggja mán­aða skoðun sér­fræð­ing­anna á starf­semi Samherja og átti þannig að gefa mynd af því hvernig fyr­ir­tækið stýrði starf­semi sinni víða um heim, með inn­byrðis við­skiptum og skipu­lagi. Til­gangur skýrsl­unnar er að því er virð­ist að fá nokk­urs konar yfir­lit yfir starf­semi Samherja og ekki síst flókið inn­an­húss hag­kerfi stór­fyr­ir­tækis sem starfar víða um heim. Ekki er langt síðan hert var á reglum hér á landi um að fyr­ir­tæki sem selja vörur úr landi, til eigin fyr­ir­tækja erlendis, eða eiga í ann­ars konar við­skiptum við tengd félög erlendis, geri skil­merki­lega grein fyrir þeim. Allt til að hægt sé að tryggja að við­skiptin hafi ekki þann eina til­gang að færa til hagnað milli landa og kom­ast þannig hjá sköttum.

Árið 2014 kom það sem sagt í hlut end­ur­skoð­un­arris­ans KPMG að draga upp mynd af Samherja og starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Samherji kom þá, ýmist beint eða óbeint, að útgerð í yfir tíu löndum í þremur heims­álfum. Eign­ar­halds­fé­lög Samherja í kringum útgerð og fisk­vinnslur er að finna mun víðar um heim­inn, oft fjarri allri starf­semi félags­ins. Sú var tíðin að Þor­steinn Már Bald­vins­son rak einn og sjálfur fyr­ir­tækið Samherja þegar það sam­an­stóð af einum frysti­tog­ara, Akur­eyr­inni. Þá sögu þekktu allir. Sér­fræð­ingum KPMG kom hins vegar all­mjög á óvart þegar þeir sáu ekki betur en að nákvæm­lega sama skipu­rit væri enn við lýði í fyr­ir­tæk­inu. Skipa­stóll Samherja var nú hátt í 60 skip og heild­ar­veiði þeirra var nærri hálf milljón tonna upp úr sjó á ári. Árs­veltan nálg­að­ist 70 millj­arða króna. Vissu­lega höfðu bæst við starfs­menn á skrif­stof­una, en hið eig­in­lega skipu­rit var þó áfram eins. Þor­steinn Már ræður. „For­stjór­inn er eini fram­kvæmda­stjóri Samherja,“ sagði í skýrslu KPMG. „Engin form­leg fram­kvæmda­stjórn er innan Samherja hf.“ 

Í skýrsl­unni var einnig að finna aðrar upp­lýs­ingar sem vekja óneit­an­lega athygli: „Aðrir lyk­il­stjórn­endur, sem ekki eru starfs­menn Samherja beint, en stýra mis­mun­andi sviðum innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, eru í beinu sam­bandi við for­stjóra Samherja dag­lega. For­stjóri Samherja er lyk­il­maður í öllum við­skiptum fyr­ir­tæk­is­ins og hefur bein afskipti af skipu­lagi veiða.“

[adspot]Þessi sýn KPMG vakti eðli­lega við­brögð innan Samherja, og áhyggjur hjá und­ir­mönnum Þor­steins Más af því að verið væri að færa dag­lega stjórn allrar starf­semi Samherja úti í heimi til Íslands. Til Þor­steins. Þetta sést glögg­lega á breyt­ingum sem gerðar hafa verið á skjal­inu, merktar „Fund­ar­her­bergi“, að því er virð­ist af Örnu McClure, inn­an­hússlög­manni Samherja.

For­svars­menn Samherja hafa ítrekað haldið því fram að fram­kvæmda­stjórn hinna erlendu félaga fyr­ir­tæk­is­ins sé ekki hér á landi. Þau séu öll undir erlendri stjórn. Samkvæmt því sem KPMG sá við skoðun á fyr­ir­tæk­inu var því þver­öf­ugt farið. Þor­steinn Már reynd­ist í raun dag­legur stjórn­andi allra fyr­ir­tækj­anna sem heyra undir Sam­herj­a­sam­stæð­una. Hann sá um dag­lega fram­kvæmda­stjórn og allar fjár­fest­inga­á­kvarð­anir. Og hann fékkst meira að segja við að ráða hvern ein­asta skip­stjóra, allt frá Græn­lands­miðum og alla leið suður fyrir Góðr­ar­von­ar­höfða, auk þess sem hann ákvað hvar þessir skip­stjórar veiddu. Og allt þar á milli. Fyr­ir­tækjum sem eiga að vera undir stjórn heima­manna í hverju landi fyrir sig er í raun fjar­stýrt frá Íslandi, sam­kvæmt því sem end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki Samherja segir í þess­ari skýrslu.

For­stjór­inn fer með dag­lega stjórn á hinni svoköll­uðu fisk­veiði­stefnu. Hann er í tengslum við mark­aðs- og sölu­fyr­ir­tæki sem fylgj­ast með mark­aðs­verði og mark­aðs­þróun. Með upp­lýs­ingar þaðan að vopni ákveður for­stjór­inn kúr­s­inn með fisk­veiði­stefn­unni og skipar fyrir bæði fram­kvæmda­stjórn útgerð­anna og vinnslu­stöðv­anna […] for­stjór­inn er í sam­bandi við lyk­il­stjórn­endur frá degi til dags og leggur grunn að ákvörð­unum um fisk­veiði­stefn­una. Lyk­il­starfs­menn eru meðal ann­ars skip­stjórar fiski­skip­anna sem eru mjög mik­il­vægir svo útgerð­ar­fé­lag nái árangri. Sérhver skip­stjóri og lyk­il­stjórn­andi er val­inn af for­stjór­anum sjálfum.

Þetta gæti mörgum þótt eðli­leg­asti hlutur í heimi.

[adspot]Þor­steinn Már er jú for­stjóri Samherja og á þessi fyr­ir­tæki. En málið er aðeins flókn­ara og snýst ekki síst um hvar greiða eigi skatta af starf­sem­inni. Ástæðan er ein­föld. Samkvæmt íslenskum lögum á fyr­ir­tæki, jafn­vel þótt það sé stað­sett í útlöndum, að greiða skatta hér á landi ef raun­veru­leg fram­kvæmda­stjórn þess er hér. Í lögum segir ein­fald­lega að skylda til að greiða tekju­skatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað, hvíli á öllum þeim fyr­ir­tækjum sem eigi hér heim­il­is­festi. Fyr­ir­tæki telj­ist eiga hér heim­il­is­festi „ef raun­veru­leg fram­kvæmda­stjórn er hér á landi“.

Rétt eins og KPMG virð­ist hafa kom­ist að nið­ur­stöðu um að væri raunin hjá Samherja og dótt­ur­fé­lögum þess í útlönd um. Þess vegna kemur ekki á óvart að í athuga­semdum sem settar hafa verið inn í skýrslu KPMG er fingur jafnan fettur út í þessar ábend­ingar end­ur­skoð­end­anna. Ekki út frá því að þær séu rangar, heldur að þær eigi ekki erindi í skýrsl­una. Þær skuli því ýmist „fjar­lægja“ eða „taka út“. Neð­an­greind athuga­semd fylgir til dæmis text­anum sem vitnað er til hér að ofan:

Gengur ekki. Velur ÞMB skip­stjór­ana sem gera svo samn­ing við fyr­ir­tæki sem aðrir eiga að stjórna? Jafnvel fyr­ir­tæki mjög neð­ar­lega í strúkt­úrnum?!

Og litlu síðar er athuga­semd um þá lýs­ingu KPMG að Þor­steinn Már stýri í raun starfs­manna­málum félags­ins um allan heim: 

Vafasamt ef þetta á við um dótt­ur­fé­lög, sér­stak­lega erlendis […] Er vinna Seagold, Mercury, Icefresh Ltd. o.fl. öll ákveðin í höf­uð­stöðvum Samherja á Akureyri??? […] Local í lagi – dótt­ur­fé­lög ekki í lagi.

Og:

Vafasamt ef þetta á líka við um dótt­ur­fé­lögin, mjög spes varð­andi skip­stjór­ana […] Er Þor­steinn Már Bald­vins­son starfs­manna­stjóri/mannauðs­stjóri eða er Anna María [mann auðs­stjóri Samherja] það […] Ekki í lagi erlendis […] Hér þarf að vera á hreinu skilin milli erlendu dótt­ur­fé­lag­anna og Íslands. Erfitt að pikka út ann­ars.“

Við full­yrð­ingu KPMG þess efnis að fjár­málum allrar sam­stæð­unnar, og þannig erlendu félag­anna, sé stýrt frá Íslandi birt­ist athuga­semdin:

ATH er í lagi að SI [fjár­mála­stjóri Samherja á Íslandi] sjái um fjár­stýr­ingu ein­stakra dótt­ur­fé­laga?

Þessar áhyggjur „Fund­ar­her­berg­is­ins“ hjá Samherja af því hvernig hinir hol­lensku skatta­sér­fræð­ingar KPMG sjá stöð­una eru reyndar skilj­an­legar. Deilur um hvaðan Sam­herj­a­fé­lögum í útlöndum væri stjórnað var hluti af rann­sókn Seðla­bank­ans á hendur Samherja vegna gruns um brot á gjald­eyr­is­lögum sem hófst árið 2012. Seðla­bank­inn taldi þá að yfir­stjórn allra erlendu félag­anna væri hér á landi og því ætti að skila hingað gjald­eyri þeirra, hagn­aði og sköttum. Samherji þvertók fyrir að svo væri. Fyr­ir­tækin væru öll sjálf­stæð hvert í sínu landi og undir þar­lendri fram­kvæmda­stjórn. Þó virð­ist skipta máli við hvern Sam­herj­a­menn eru að ræða þegar kemur að því að lýsa með hvaða hætti fyr­ir­tækjum Samherja erlendis er stýrt.

Í kynn­ingu á starf­semi félags­ins í Afríku, sem dag­sett er í mars­mán­uði 2010 og kyrfi­lega merkt sem trún­að­ar­mál, er til dæmis ítrekað talað um að starf­sem­inni sé stýrt frá Íslandi. Í kynn­ing­unni segir bein­línis að höf­uð­stöðvar Afr­íku­starf­sem­innar, sem rekin var undir nafn­inu Katla Seafood, séu á Íslandi en þjón­usta við skip Kötlu Seafood sé á Kanarí­eyjum. Sérstök er líka við­kvæmni Samherja fyrir því að félagið sé í skýrslu KPMG sagt vera eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Íslands. Flestir kynnu að halda að vart þyrfti að taka það fram, en þó er athuga­semd gerð við þessa full­yrð­ingu í upp­hafs­setn­ingu skýrsl­unnar og spurt:

„Er Sam­herj­a­sam­stæðan eitt stærsta fyr­ir­tækið?““

Bókin Ekkert að fela, kemur út hjá For­lag­inu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár