Kristján Vilhelmsson kvartaði yfir skrifum Jóns Steinssonar við Columbia

Kjarninn greindi frá því árið 2014 að íslenskur áhrifa­maður hefði sent bréf til Columbia-háskóla vegna skrifa Jóns Steins­sonar um íslenskan sjáv­ar­út­veg. Í bréf­inu var spurt hvort slíkur póli­tískur áróður sam­ræmd­ist siða­reglum Columbia-háskóla.

Kristján Vilhelmsson, stærsti eigandi Samherja.
Kristján Vil­helms­son, stærsti eig­andi Samherja. Mynd: Skjáskot

„Í krafti stöðu minnar sem for­maður stjórnar Útvegs­manna­fé­lags Norð­ur­lands beini ég þeirri spurn­ingu til þín hvort slíkur póli­tískur áróður sam­ræm­ist siða­reglum Columbia-háskóla.“ Þetta er meðal þess sem kom fram í bréfi sem Kristján Vil­helms­son, stærsti eig­andi og útgerð­ar­stjóri Samherja, sendi til banda­ríska háskól­ans Columbia vegna skrifa Jóns Steins­sonar, sem hag­fræð­ings sem starf­aði við skól­ann. Skrif Jóns höfðu verið um íslenskan sjáv­ar­út­veg og aðrar fjár­fest­ingar eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, höfðu birst á íslenskum miðlum ein­vörð­ungu og hann not­aði ekki nafn Columbia-háskóla vegna þeirra. Bréfa­send­ingin hafði engin áhrif á stöðu Jóns innan háskól­ans. 

Þetta kemur fram í bók­inni „Ekkert að fela – Á slóð Samherja í Afríku“, eftir Helga Seljan, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stéfán Aðal­stein Drengs­son, þar sem fjallað er ítar­lega um sögu og umsvif sjáv­ar­út­vegs­ris­ans Samherja, sem var nýverið afhjúp­aður í Kveiks­þætti sama teymis. Þar kom fram að Samherji hefði greitt ráða­mönnum í Namibíu 1,4 millj­arð króna í ætl­aðar mútu­greiðslur fyrir aðgengi að ódýrum kvóta, að grunur væri uppi um stór­fellda skatta­snið­göngu fyr­ir­tæk­is­ins og um að það hefði stundað pen­inga­þvætti.

Tilraun til að hefta þátttöku fræðimanna í umræðu

Í maí 2014 greindi Kjarn­inn frá könnun sem sýndi að sjött­i hver háskóla­maður á Íslandi hafði komið sér hjá því að tjá sig við fjöl­miðla ­vegna ótta við við­brögð valda­fólks úr stjórn­mála- og efna­hags­lífi. Þar kom einnig í ljós að meiri­hluti háskóla­manna taldi að akademísku frelsi fræði- og ­vís­inda­manna á Íslandi stafi ógn af gagn­rýni eða hót­unum frá valda­fólki í stjórn­mál­um, efna­hags- og atvinnu­lífi.

Skömmu síðar birti Kjarn­inn umfjöllun eftir Björn Gíslason þar sem sagt var frá­ því hvernig Jón Steins­son, þá dós­ent í hag­fræði við Col­umbi­a-há­skól­ann í New York sem flutti sig yfir til Berkeley-háskól­ans í fyrra, hefði fengið að finna fyrir því að ­skrifa reglu­lega um hita­mál sam­fé­lags­ins í íslenska fjöl­miðla, sér­stak­lega um ­fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­ið, auð­linda­nýt­ingu og skatta­mál.

[adspot]Í umfjöll­un­inni sagði Jón að hann liti á þátt­töku sína í opin­berri umræðu sem óað­skilj­an­legan hluta af starfi sínu sem háskóla­kenn­ara. „Ég tel það vera hluta af því að vera háskóla­maður, að ef maður hefur eitt­hvað fram að færa geti maður gert það með þessum hætti.“

Jón hóf að skrifa í blöð árið 1997 þegar hann var hag­fræði­nemi við Princeton-háskóla í Banda­ríkj­unum. Meðan á námi hans í Princeton- og síðar Harvard-háskóla stóð lét hann reglu­lega í sér heyra, bæði á síðum Morg­un­blaðs­ins og á vefrit­inu Deigl­unni. „Ég held að ég sé búinn að skrifa í kringum 300 greinar allt í allt. Ég skrif­aði alltaf nokkrar greinar á ári í Moggann en um það leyti sem Davíð tók við Mogganum þá byrj­aði ég að skrifa í Frétta­blaðið. Svo fór ég að skrifa á Pressuna og færði mig þaðan yfir á Eyjuna.“

Kvartað til yfirmanns hagfræðideildar Columbia-háskóla

Jón var nokkuð atkvæða­mik­ill í umræð­unni eftir banka­hrun en um það leyti var hann að hefja störf við Columbia-háskóla. Hann var óhræddur að taka þátt í umræðum um hita­mál sam­fé­lags­ins. „Það er aug­ljóst mál að það skiptir alveg rosa­lega miklu máli að ég er í útlöndum, að ég er í vinnu sem eng­inn getur rekið mig úr og ég er ekki upp á neinn kom­inn á Íslandi. Og ef ég segi eitt­hvað þá þýðir það ekki að ein­hverjir styrkir komi ekki hingað eða þangað.“

Hann sagð­ist hafa upp­lifað það, sér­stak­lega í tengslum við umræður um kosti og galla fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins, að margir þorðu ekki að tjá sig. „Stundum segir fólk við mig að ástæðan sé sú að það sé hrætt við við­brögðin sem það muni fá.“

Sjálfur sagð­ist Jón hafa fengið bæði sím­töl og tölvu­pósta frá valda­miklum aðilum í kjöl­far gagn­rýn­inna blaða­skrifa eða ummæla í fjöl­miðlum. Tvö mál hafi kallað fram sér­stak­lega sterk við­brögð, gagn­rýni ann­ars vegar á kvóta­kerfið og hins vegar á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og þá sér­stak­lega Davíð Oddsson.

Jón nefndi tvö dæmi. „Mér var einu sinni sagt að ég væri búinn að brenna allar brýr að baki mér og ég gæti aldrei fengið vinnu á Íslandi.“

Hitt dæmið hafi snúið að áhrifa­manni í íslensku atvinnu­lífi sem hafi nokkrum árum áður sent deild­ar­for­seta Columbia-háskóla bréf þar sem hann gerði athuga­semdir við skrif Jóns í íslenska miðla.

Umrædd skrif voru skoð­anapist­ill sem birt­ist á Press­unni 10. maí 2011 þar sem Jón gagn­rýndi orð útvegs­manna um að sér­stakt auð­linda­gjald væri í raun lands­byggð­ar­skattur. „Í dag fá eig­endur útgerð­ar­fyr­ir­tækja einka­af­nota­rétt af auð­lindum sjávar nán­ast án end­ur­gjalds,“ sagði í grein­inni eftir Jón. „Allur auð­lindaarð­ur­inn í sjáv­ar­út­vegi rennur því til eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tækja. Um þessar mundir er auð­lindaarð­ur­inn lík­lega í kringum 45 ma. kr. á ári. Stærstur hluti þessa fjár fer í lúx­uslíf og gælu­verk­efni útgerð­ar­manna, svo sem kampa­vín og kav­íar í útlöndum, þyrlur og bíla­um­boð og það að dekka tap­rekstur Morg­un­blaðs­ins. En vita­skuld eru ein­staka brauð­molar sem detta fyrir fæt­urna á venju­legu fólki á lands­byggð­inni. Útgerð­ar­menn styrkja til dæmis íþrótta­fé­lög víða á lands­byggð­inni.“

Jón vildi ekki greina frá því hver þessi maður væri við Kjarnann árið 2014 en sagði deild­ar­for­set­ann hafa sagt að aug­ljós­lega myndi hann ekki gera neitt í mál­inu enda nyti Jón frelsis sem háskóla­maður til þátt­töku í opin­berri umræðu. „Ef þessir menn reyna að hafa áhrif á yfir­mann hag­fræði­deildar í Columbia, sem þeir hafa aug­ljós­lega engin tök á, þá getur maður bara ímyndað sér hvernig það er þegar ein­hver í háskólum á Íslandi skrifar eitt­hvað svona.“

Jón sagð­ist ekki hafa upp­lifað við­líka hót­anir eða gagn­rýni eftir að hafa tjáð sig um önnur mál.

Opinberað í nýrri bók

Í bók­inni „Ekkert að fela – Á slóð Samherja í Afríku“, eftir Helga Seljan, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stéfán Aðal­stein Drengs­son, er greint frá því hver áhrifa­mað­ur­inn er í fyrsta sinn opin­ber­lega. Um var að ræða Kristján Vil­helms­son, stærsta eig­anda Samherja og útgerð­ar­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins.

Þar segir að í bréf­inu sem Kristján sendi hafi hann kynnt sig sem for­mann Útvegs­manna­fé­lags Norð­ur­lands og rakið þátt­töku Jóns í þjóð­mála­um­ræðu, einkum í tengslum við hrun íslenska banka­kerf­is­ins þremur árum fyrr. „Sumt af því sem hann hefur fjallað um þar hefur hann gert af hlut­leysi og fag­mennsku. Sumt annað hins vegar, hefur hann gert þannig að það skaðar orð­spor hans og Columbia-háskóla,“ sagði í bréfi Krist­jáns, sem óskaði svara við því hvaða rann­sóknir Columbia-háskóli hefði gert á íslenska kvóta­kerf­inu. Og hann vitn­aði orð­rétt í ummæli Jóns um Morg­un­blaðsvið­skiptin, þyrlu­kaup og lúx­uslíf og sagði þau alröng. „Í krafti stöðu minnar sem for­maður stjórnar Útvegs­manna­fé­lags Norð­ur­lands beini ég þeirri spurn­ingu til þín hvort slíkur póli­tískur áróður sam­ræm­ist siða­reglum Columbia-háskóla.“ í bréf­inu sagði enn fremur að Jón hefði „ítrekað notað sér titil sinn og nafn háskól­ans í íslenskum fjöl­miðlum und­an­farin tvö og hálft ár“. Bréf Krist­jáns Vil­helms­sonar vakti, sam­kvæmt bók­inni, nokkra furðu meðal yfir­manna og kollega Jóns við Columbia-háskóla og hafði engar afleið­ingar fyrir Jón. „Þar á bæ töldu menn að ekki bæri að skerða akademískt frelsi Jóns fremur en almennt tján­ing­ar­frelsi hans, þrátt fyrir gagn­rýna skoðun hans á við­skiptum íslenskra kvóta­eig­enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár