Áhrifamaður teygði sig vestur um haf

Bæta mætti skil­yrði háskóla­fólks til þátt­töku í sam­fé­lags­um­ræð­unni með því að hækka laun þess og tryggja þannig betur að háskóla­kenn­arar þyrftu ekki í jafn miklum mæli að sinna auka­störfum – oft fyrir hags­muna­að­ila í sam­fé­lag­inu – til þess að bæta afkomu sína. Þetta segir Jón Steins­son, dós­ent í hag­fræði við Columbia-háskóla. Þrátt fyrir að starfa í Banda­ríkj­unum hefur Jón ekki farið var­hluta af hót­unum og gagn­rýni valda­mik­illa aðila í íslensku sam­félagi í kjöl­far skrifa í fjöl­miðla.

Í síð­ustu útgáfu Kjarnans var fjallað um könnun meðal háskóla­fólks á Íslandi sem sýndi m.a. að nær sjötti hver svar­andi hefði komið sér hjá því að tjá sig við fjöl­miðla vegna ótta við gagn­rýni frá valda­fólki úr stjórn­mála- og efna­hags­lífi. Könnunin sýndi einnig að rúm­lega fimmti hver svar­andi hefði sætt gagn­rýni af hálfu hags­muna­að­ila í atvinnu­lífi og sjötti hver gagn­rýni frá stjórn­mála­manni eftir að hafa tjáð sig sem vís­inda- eða fræði­maður við fjöl­miðla í til­teknu máli. Þá eru hót­anir frá þessum valda­hópum gagn­vart háskóla­fólki við sömu aðstæður ekki óþekktar.

Jón Steins­son, dós­ent í hag­fræði við Columbia-háskóla, hefur um all­langt skeið látið að sér kveða í þjóð­fé­lags­umræð­unni á Íslandi. Hann hefur bæði skrifað greinar í blöð og vef­miðla og rætt við fjöl­miðla um ýmis mál sem snerta sam­félagið og sér­þekk­ingu hans, þar á meðal fisk­veiði­stjórn­unar­kerfið, auð­linda­nýt­ingu og skatta­mál.

Lestu meira um málið í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár