Norskum stjórnvöldum kunnugt um Samherjamálið

Þátt­ur norska ­bank­ans DNB í banka­við­skipt­um Sam­herja í Namib­íu er til skoð­unar innan bank­ans. Norsk stjórn­völd hafa jafn­framt verið látin vita af mál­inu.

Þátt­ur norska ­bank­ans DNB, sem er í hluta til í eigu norska rík­is­ins, í banka­við­skipt­um Sam­herja í Namib­íu er til rann­sóknar innan bank­ans. Efna­hags­brota­deild norsku lög­regl­unnar, Økokrim, er jafn­framt kunn­ugt um málið en getur ekki tjáð sig frekar um málið að svo stöddu. Þetta kemur fram í frétt norska dag­blaðs­ins Dagens Nær­ingsliv (DN).

[links]Frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kveikur og Stundin hafa greint frá því að Sam­herji hafi kom­ist hjá því að greiða skatta í Namibíu af þeim hagn­aði sem skap­að­ist af mak­ríl­veiðum fyr­ir­tæk­is­ins þar, meðal ann­ars með því að færa hagn­að­inn til landa þar sem skattar voru litlir eða engir, meðal ann­ars á Kýp­ur, með við­komu á eyj­unni Mári­tí­us. Allir pen­ingar Sam­herja voru hins vegar sagðir enda í Nor­egi, inni á reikn­ingum í DNB.

Í umfjöllun Stund­ar­innar um málið segir að DNB hafi látið loka banka­reikn­ingum félags­ins Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í fyrra. Samkvæmt Stund­inni fóru 9,1 millj­arður í gegn án þess að DNB vissi nokkurn tím­ann hver ætti fyr­ir­tækið.

DNB segir í svari við fyr­ir­spurn DN að bank­anum hafi verð greint frá umfjöllun Stund­ar­innar og Kveiks og að innan bank­ans verði ásak­an­irnar að sjálf­sögðu rann­sak­aðar. Bankinn seg­ist jafn­framt hafa lagt mikla áherslu á að koma í veg fyrir pen­inga­þvætti og aðra ólög­lega fjár­mála­starf­semi und­an­farin ár. Árlega sendi bank­inn norsku lög­regl­unni yfir þús­und ábend­ingar um grun­sam­legar milli­færslur.

„Það er á ábyrgð lög­reglu að rann­saka og þá upp­götva hvort við­skipti, sem hafa átt sér stað í gegn­um bank­ann, feli í sér lög­brot. DNB get­ur því miður ekki gefið upp­lýs­ing­ar um ein­staka við­skipta­vini,“ segir í svar­inu.

Trude Stang­helle tals­maður Økokrim, segir í sam­tali við DN að deild­inni sé kunn­ugt um Sam­herj­a­málið en getur ekki tjáð sig um hvenær deild­inni var kunn­ugt um málið. Jafn­framt segir hún að deildin geti ekki gefið upp­lýs­ingar um hvort að þau hafi mót­tekið við­var­anir frá DNB um félagið eða ekki.

DNB hefur jafn­framt gert atvinnu- og sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyti Noregs við­vart um að fjallað sé um þátt DNB í Sam­herj­a­mál­inu í íslenskum fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár