Björgólfur reiknar ekki með að sitja sem forstjóri Samherja lengi

Sitjandi for­stjóri Samherja kallar sjón­varps­þátt Kveiks um fyr­ir­tækið „ein­hliða“. Ýjað hafi verið að því að Samherji „hefði brotið gegn lögum og sýnt slæmt sið­ferði í við­skiptum.“

Björgólfur Jóhanns­son, sem tók tíma­bundið við sem for­stjóri Samherja í gær af Þor­steini Má Bald­vins­syni, reiknar ekki með því að sitja í stólnum lengi. „Verk­efnið er skýrt og ég vona að málin leys­ist á sem skemmstum tíma þannig að þessi tíma­bundna ráðn­ing vari ekki mjög lengi.“

Þetta segir Björgólfur í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. Þor­steinn Már steig tíma­bundið til hliðar í gær­morgun í sam­komu­lagi við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vegna ­yf­ir­stand­andi innri rann­sóknar á ætl­uðum brotum dótt­ur­fé­lags í Namib­íu. Í yfir­lýs­ingu frá Sam­herja sagði að ráð­stöf­unin gildi þar til að nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar Sam­herja á eigin ætl­uðum brotum liggja fyr­ir. Rann­sókn­in, sem er í höndum alþjóð­legu lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, mun heyra beint undir stjórn félags­ins.

Björgólfur segir í við­tal­inu að honum finn­ist ekki ólík­legt að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi farið yfir þau gögn sem hann geti kallað eftir frá Samherja áður, i fyrri rann­sókn sinni á fyr­ir­tæk­inu. Þar segir hann enn­fremur að „öllum sé ljóst að sjón­varps­þáttur Kveiks var mjög ein­hliða. Það er vilji allra að upp­lýsa um öll þessi atriði en ýjað var að því að félagið hefði brotið gegn lögum og sýnt slæmt sið­ferði í við­skiptum. Þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar liggja fyrir geta menn metið þetta en það er ekki hægt á þessu stigi.“

Umfjöll­unin á þriðju­dag, sem unnin var í sam­­­starfi Kveiks, Stund­­­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks sýndi fram á að hópur sem inn­­i­hélt meðal ann­­­ars sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs- og dóms­­­mála­ráð­herra Namib­­­íu, hefði fengið 1,4 millj­­arð króna hið minnsta greiddan frá Sam­herja á und­an­­­förnum árum. Auk þess hafi ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­­­ur. Namibísku ráð­herr­­arnir hafa báðir sagt af sér emb­ætti í dag.

Í umfjöll­un­inni kom einnig fram að rök­studdur grunur sé um stór­­­fellda skatta­snið­­­göngu Sam­herja við að koma ágóð­­­anum af þeim við­­­skiptum sem fyr­ir­tækið stund­aði þar undan og til skatta­­­skjóla. Þá liggur fyrir að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­­­is­ins, stöðv­­­aði við­­­skipti við félög tengd Sam­herja á Kýpur og Mar­s­hall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti voru ekki upp­­­­­fyllt.

Þau mál eru til skoð­unar hjá bank­anum sjálfum, norsku efna­hags­brota­­­deild­inni og deildar emb­ættis hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara þar í landi, sam­­­kvæmt Stund­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár