Þorsteinn Már vonar að tímabundið brotthvarf rói umræðu um Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son segir í við­tali við Vísi að Samherji sé ekki sál­ar­laust fyr­ir­tæki. Honum blöskrar umræða um fyr­ir­tækið í kjöl­far afhjúp­andi þáttar Kveiks um starf­semi Samherja í Namibíu.

Þor­steinn Már Bald­vins­son segir að hann von­ist til þess að tíma­bundið brott­hvarf sitt úr for­stjóra­stóli muni róa umræðu um fyr­ir­tækið. Þetta kemur fram í við­tali við Þorstein Má á frétta­vefnum Vísi.is, en við­talið var tekið á Dalvík, þar sem hjartað í starf­semi Samherja á Íslandi er.

Björgólfur Jóhanns­son hefur tekið við sem for­stjóri Samherja, eftir að Þor­steinn Már ákvað að stíga tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri.

Samherji á fund með skatt­rann­sókn­ar­stjóra á mánu­dag, þar sem fara á yfir mál, sem meðal ann­ars var fjallað um í Kveiki og Stund­inni. Í þætt­inum kom fram að Samherji hefði mútað ráða­mönnum í Namibíu í skiptum fyrir kvóta, og hafa bæði dóms­mála­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu sagt af sér.

Í við­tal­inu segir Þor­steinn Már að margt sem hafi fram komið í umræðum um fyr­ir­tækið, frá því að umfjöllun starf­semi Samherja í Namibíu kom fram í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveiki á RÚV, hafi verið rangt, en sagði að innri rann­sókn Samherja væri nú hafin og hún myndi leiða í ljós ef eitt­hvað væri athuga­vert í starf­sem­inni.

„Mér bara blöskrar orðið umræðan. Samherji er ekki sál­ar­laust fyr­ir­tæki, það eru meðal ann­ars 800 starfs­menn á Íslandi og annað eins, meira, erlendis. Þessar árásir hér á Íslandi, á starfs­fólk og fjöl­skyldur þeirra, mér finnst þetta orðið full langt gengið og með því að stíga til hliðar er ég að vona að sú umræða geti róast eitt­hvað,“ sagði Þor­steinn Már meðal ann­ars.

Hann sagði það auk þess ekki rétt að fyr­ir­tækið hefði flutt pen­inga frá Afríku, og stundað skatt­svik eða pen­inga­þvætti. Hann neit­aði því alfarið, en játti því að ákveðnar greiðslur þyrfti að skoða. Þá sagði hann að Samherji hefði ekki skellt skuld­inni á fyrr­ver­andi starfs­manna Samherja, og upp­ljóstra Kveiks, Jóhannes Stef­áns­son. „Við skelltum ekk­ert allri skuld á Jóhannes, við vorum bara að segja það að við vékum honum úr starfi vegna þess að það voru gerðir hlutir sem við vorum ekki sam­mála,“ sagði Þor­steinn Már í við­tal­inu.

Þá sagð­ist hann ekki ótt­ast fang­elsi, og að starf­semi Samherja hefði verið í takt við lög og reglur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár