Þorsteinn Már stígur til hliðar sem forstjóri Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur ákveðið að stíga til hliðar sem for­stjóri Samherja á meðan að rann­sókn á við­skipta­háttum fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu og víðar stendur yfir. Björgólfur Jóhann­es­son tekur við.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn aðal­eig­enda Samherja, hefur ákveðið að stíga tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri. Þetta er gert í sam­komu­lagi við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vegna yfir­stand­andi innri rann­sóknar á ætl­uðum brotum dótt­ur­fé­lags í Namibíu. Í yfir­lýs­ingu frá Samherja segir að ráð­stöf­unin gildi þar til að nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar Samherja á eigin ætl­uðum brotum liggja fyrir. Rann­sóknin, sem er í höndum alþjóð­legu lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, mun heyra beint undir stjórn félags­ins.

Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair Group, hefur tekið tíma­bundið við stöðu for­stjóra Samherja.

Í yfir­lýs­ing­unni er haft eftir Eiríki S. Jóhann­essyni, stjórn­ar­for­manni Samherja, að þetta skref sé tekið til að tryggja sem best hlut­leysi rann­sókn­ar­innar. „Við viljum stunda heið­ar­leg við­skipti og leggjum okkur fram um að starfa í sam­ræmi við gild­andi lög og reglur.“

Þar segir enn fremur að til þessa hafi engin yfir­völd haft sam­band við Samherja en að fyr­ir­tækið muni „að sjálf­sögðu starfa með þeim stjórn­völdum sem kunna að sýna starf­semi Samherja á Íslandi, í Namibíu eða ann­ars staðar áhuga.“

Björgólfur Jóhanns­son segir Samherja gegna mik­il­vægu hlut­verki í sjáv­ar­út­vegi á alþjóða­vísu og beri við ábyrgð gagn­vart sínu fólki og við­skipta­vinum. „Ég er dapur yfir þessum kring­um­stæðum en ég mun gera mitt besta að gæta hags­muna Samherja og starfs­fólks­ins.“

Í yfir­lýs­ing­unni segir að ekki sé að vænta frek­ari umfjöll­unar af hálfu Samherja um málið „fyrr en stað­reyndir úr ofan­greindri rann­sókn taka á sig skýr­ari mynd.“

Þetta er þriðja yfir­lýs­ingin sem Samherji sendir frá sér í þess­ari viku vegna umfjöll­unar um ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætti fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu og víðar, sem opin­beruð var á þriðju­dag.

[links]Í frétta­skýr­inga­þætti Kveiks þá um kvöldið kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar væru um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­i­heldur meðal ann­­ars tvo ráð­herra í Namib­­íu, væru mút­u­greiðslur og að við­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­u­land­inu væri skýrt dæmi um spill­ing­u. Um­fjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks. Báðir ráð­herr­arnir sögðu af sér emb­ætti í gær.

Í yfir­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í kjöl­far þátt­ar­ins segir að svo virð­ist sem að Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri Sam­herja í land­inu, hafi „hugs­an­lega flækt Sam­herja í við­skipti sem kunni að vera ólög­mæt.“ Það séu mikil von­brigði að sögn Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, for­stjóra og ann­ars aðal­eig­anda Sam­herj­a. Jóhannes steig fram sem upp­ljóstr­ari í þætt­inum og greindi frá því að hann hefði framið marg­háttuð lög­brot í starfi sínu fyrir Samherja, þegar hann vann að því að tryggja fyr­ir­tæk­inu verð­mætan kvóta í Namibíu ódýrt. Hann sagði að allt sem hann gerði hefði verið gert að fyr­ir­skipan Þor­steins Más og Aðal­steins Helga­sonar, sem var yfir starf­semi Samherja í Namibíu á árum áður. Jóhannes hætti störfum hjá Samherja í júlí 2016.

Jóhannes hefur um nokk­urt skeið unnið með yfir­völdum í Namibíu við rann­sókn á ætl­uðum brotum Samherja þar og hefur þegar gefið skýrslu hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara á Íslandi.

Þor­steinn Már sagði í yfir­lýs­ing­unni á þriðju­dag að stjórn­endum Sam­herja væri illa brugð­ið eftir umfjöll­un­ina. „Ekki ein­ungis við það að Jóhannes stað­hæfi að hann hafi tekið þátt í starf­semi af því tagi sem hann lýsir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásök­unum sínum að fyrrum sam­starfs­fólki sínu hjá Sam­herja. Þetta eru ekki vinnu­brögð sem við könn­umst við.“

Ef rann­sókn fari fram á við­skipt­unum í Namibíu hafi „Sam­herji ekk­ert að fela.“

Jóhannes var líka sér­­stak­­lega nefndur á nafn í yfir­­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í dag­inn fyrir umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar og þar sagt að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Sam­herja árið 2016 vegna „óá­­­sætt­an­­legrar fram­­göngu hans og hegð­un­­ar.“ Það hafi gerst í kjöl­far þess að Sam­herji hefði orðið „þess áskynja í árs­­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namib­­íu“ og sent íslenskan fyrr­ver­andi rann­­sókn­­ar­lög­­reglu­­mann til lands­ins til að rann­saka mál­ið.

Í fyrri yfir­lýs­ingum hefur Samherji sagt að Jóhannes beri einn ábyrgð á lög­brot­unum. Í umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar kom fram að ætl­aðar mútu­greiðslur til ráða­manna í Namibíu fá Samherja hefðu haldið áfram í nokkur ár eftir að Jóhannes lét af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu. Sú síð­asta sem miðl­arnir eru með upp­lýs­ingar um var greidd í jan­úar 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár