Eimskip lækkaði um tæp fimm prósent – Samherji stærsti hluthafinn

Félög í Kaup­höll­inni þar sem Samherji er stór hlut­hafi lækk­uðu í virði í dag.

Gengi bréfa í Eim­skipum lækk­aði um 4,6 pró­sent á aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands í dag. Samherji, sem í gær var umfjöll­un­ar­efni opin­ber­unar um mútu­greiðslur í Namibíu, er stærsti ein­staki eig­andi Eimskipa með 27,1 pró­sent eign­ar­hlut. Ekkert félag lækk­aði meira en Eimskip í við­skiptum dags­ins.

Bald­vin Þor­­­steins­­­son, sonur Þor­­­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, og fram­­kvæmda­­stjóri við­­skipta­­þró­unar hjá fyr­ir­tæk­inu, er stjórn­­­ar­­for­­maður Eim­­skips og í jan­úar í ár var Vil­helm Már Þor­­steins­­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­­stjóri skipa­­fé­lags­ins.

Sam­herji hf. keypti stóran hlut í Olís fyrir nokkrum árum. Það félag rann síðan saman við smá­söluris­ann Haga og í kjöl­farið eign­að­ist Sam­herji alls 9,26 pró­sent hlut í Hög­um. Fyrir skemmstu var greint frá því að Sam­herji hefði selt helm­ing hluta­bréfa sinna í Högum og að eftir við­skiptin standi eign­ar­hlutur sam­stæð­unnar í 4,22 pró­sent­u­m. Hluta­bréf í Högum lækk­uðu í dag um 2,36 pró­sent. Einungis Eimskip og Arion banki, sem lækk­aði um 2,43 pró­sent, lækk­uðu meira en Hagar í dag.

[adspot]Umfjöll­unin í gær, sem unnin var í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks sýndi fram á að hópur sem inn­i­heldur meðal ann­­ars sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og dóms­­mála­ráð­herra Namib­­íu, hefur fengið 1,4 millj­arð króna hið minnsta greiddan frá Sam­herja á und­an­­förnum árum. Auk þess hafi ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­­ur. Namibísku ráð­herr­arnir hafa báðir sagt af sér emb­ætti í dag.

Í umfjöll­un­inni kom einnig fram að rök­studdur grunur sé um stór­­fellda skatta­snið­­göngu Sam­herja við að koma ágóð­­anum af þeim við­­skiptum sem fyr­ir­tækið stund­aði þar undan og til skatta­­skjóla. Þá liggur fyrir að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­­is­ins, stöðv­­aði við­­skipti við félög tengd Sam­herja á Kýpur og Mar­s­hall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti voru ekki upp­­­fyllt. Þau mál eru til skoð­unar hjá norsku efna­hags­brota­­deild­inni og deildar emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara þar í landi, sam­­kvæmt Stund­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár