Guðlaugur Þór: Ekki gott fyrir orðspor Íslands erlendis

Afhjúp­andi umfjöllun Kveiks á RÚV, sem byggir á 30 þús­und skjölum sem Wikileaks hefur birt, hefur dregið mik­inn dilk á eftir sér.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir að þær ásak­anir sem komu fram í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveiki á RÚV í gær, varð­andi mútu­greiðslur Samherja í Namibíu, séu grafal­var­legar og hafi nei­kvæð áhrif á ímynd og orð­spor Íslands.

Þetta kemur fram í við­tali við Guðlaug á vef mbl.is, en hann var einnig til við­tals í Kast­ljósi RÚV í kvöld. Hann sagði þar, að mik­il­vægt væri að Ísland sendi út þau skila­boð, að það væri verið að rann­saka þessi mál af fullum þunga.

Guð­laugur Þór segir, að ef það reyn­ist rétt sem fram komi í þætt­inum, þá sé það veru­legt áfall og hátt­semin for­kast­an­leg. „Ef að rétt reyn­ist þá eru þess­ar frétt­ir auð­vitað áfall og hátt­sem­in sem þarna er lýst auð­vitað for­kast­an­leg. En núna er nátt­úru­lega mik­il­vægt að þetta mál verði rann­sakað ofan í kjöl­inn af þar til bær­um yf­ir­völd­um,“ seg­ir Guðlaug­ur Þór.

Bæði dóms­mála­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu hafa sagt af sér vegna máls­ins, en þeir voru á meðal þriggja manna, sem nátengdir voru sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins, sem fengu yfir millj­arðs króna greiðslur frá Samherja í skiptum fyrir fisk­veiði­kvóta.

Guð­laugur Þór segir jafn­framt að það sé mik­il­vægt núna, að Ísland sé aðili að alþjóða­samn­ingum sem tryggi að yfir­völd geti unnið að rann­sókn og leitt það til lykta, í alþjóð­legu sam­starfi.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, lét hafa eftir sér í morgun, að nú væri mik­il­vægt að velta við hverjum steini til að rann­saka þessi mál, og leiða málin til lykta.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, SFS, hafa einnig sagt að nú sé mik­il­vægt að rann­saka ásak­anir vel, sem komi fram í þætt­inum. Það sé skil­yrð­is­laus krafa til allra fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi að farið sé að lögum bæði inn­an­lands og utan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár