Samherji sagður hafa mútað ráðherrum til að komast yfir kvóta í Afríku

Í Kveiki í kvöld sagð­ist fyrr­ver­andi yfir­maður hjá Samherja í Namibíu hafa tekið þátt í að greiða mútur til hátt­settra ráða­manna í land­inu til að tryggja Samherja kvóta. Það hafi verið gert með aðkomu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru helstu stjórnendur og eigendur Samherja.
Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son eru helstu stjórn­endur og eig­endur Samherja. Mynd: Samherji

Hópur sem inni­heldur meðal ann­ars sjáv­ar­út­vegs- og dóms­mála­ráð­herra Namibíu, hefur fengið á annan millj­arð króna greiddan frá Samherja á und­an­förnum árum. Auk þess hafi ráð­herra í Angóla fengið greiðslur. Í sér­stökum tvö­földum Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV í kvöld kom fram að vís­bend­ingar séu um að þarna sé um mútu­greiðslur að ræða til að kom­ast yfir kvóta í land­inu á sem ódýrastan hátt. Allir hlut­að­eig­andi sem svör­uðu fyr­ir­spurnum Kveiks neit­uðu að um mútur væri að ræða þótt að hluti við­tak­end­anna hafi geng­ist við því að taka við fé frá Samherja. Umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks.

Þar sagði einnig að starfs­hættir Samherja í Namibíu, og þeirra sem fyr­ir­tækið á að hafa greitt mútur til, hafi verið til rann­sóknar hjá þremur eft­ir­lits­stofn­unum í land­inu, meðal ann­ars spill­ing­ar­lög­regl­unni þar. Auk þess eru yfir­völd á Íslandi og í Noregi með­vituð um málið.

Umfjöll­unin er byggð á þús­undum skjala og tölvu­póst­sam­skipta starfs­manna Samherja þar sem starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, eins þess stærsta á Íslandi, í Namibíu síð­ast­lið­inn tæpan ára­tug er til umræðu. Gögnunum var lekið til Wikileaks og Kveikur hefur, ásamt Stund­inni, unnið ítar­lega umfjöllun úr þeim.

[adspot]Auk þess var í Kveik birt við­tal við Jóhannes Stef­áns­son, sem var verk­efna­stjóri Samherja í Namibíu fram á árið 2016, þar sem hann gengst við því að hafa brotið lög fyrir hönd Samherja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í land­inu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namibíu, hefði fengið laga­lega stöðu upp­ljóstr­ara og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Samherja.

Jóhannes var sér­stak­lega nefndur á nafn í yfir­lýs­ingu sem Samherji sendi frá sér í gær vegna yfir­vof­andi umfjöll­unar um starfs­hætti fyr­ir­tæk­is­ins og sagt að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Samherja árið 2016 vegna „óásætt­an­legrar fram­göngu hans og hegð­unar“. Það hafi gerst í kjöl­far þess að Samherji hefði orðið „þess áskynja í árs­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namibíu“ og sent íslenskan fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mann til lands­ins til að rann­saka málið.

Ekkert gert nema með aðkomu Þorsteins

Jóhannes sagði í Kveik í kvöld að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja. Þar kall­aði hann starf­semi Samherja í Namibíu „skipu­lagða glæp­a­starf­semi“ þar sem fyr­ir­tækið græði á auð­lindum lands­ins en hafi svo fært alla pen­ing­anna sem það græddi út úr því til að fjár­festa ann­ars staðar í heim­inum.

Jóhannes sagði í þætt­inum að hann hefði meðal ann­ars greitt 60 þús­und Banda­ríkja­dali í reiðufé með því að setja þá í íþrótta­tösku sem milli­liður hafi síðan komið til sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu. Síðar hafi greiðsl­urnar orðið fag­legri og farið fram í formi milli­færslna vegna m.a. ráð­gjafar og húsa­leigu, en endað á banka­reikn­ingum í Namibíu og Dubaí. Alls hafi Bernhard Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, tengda­sonur hans, frændi tengda­son­ar­ins og dóms­mála­ráð­herra þess lands fengið að minnsta kosti um 1,4 millj­arð króna frá Samherja á síð­ustu fimm árum í greiðslur vegna aðstoðar við að kom­ast yfir kvóta í land­inu.

Samkvæmt íslenskum lögum varðar það allt að fimm ára fang­elsi ef íslenskur rík­is­borg­ari mútar eða gerir til­raunir til að múta full­trúa erlends ríkis eða ein­hverjum sem seg­ist geta haft áhrif á slíkan full­trúa.

Settu „svart andlit“ á eignarhald

Í þætt­inum er því lýst að Sam­herj­a­menn hafi kom­ist í kynni við mann sem heitir Tamson Hatukulipi, kall­aður Fitty, sem er tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, Bernhard Esau, og samið við hann um að hann ætti að tryggja Samherja kvóta til að veiða. Fitty kynnti lyk­il­stjórn­endur Samherja svo fyrir tengda­föður sínum.

Í umfjöllun Kveiks kom fram að tveir aðrir menn, náfrændi Fittys sem heitir James og maður sem heitir Sacky Shangala, nú dóms­mála­ráð­herra Namibíu, myndi kjarn­ann í þeim hópi sem hjálp­aði Samherja gegn greiðslu að kom­ast yfir kvóta í land­inu. Þar kom einnig fram að Þor­steinn Már og Aðal­steinn hefðu hitt Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á leyni­fundi 2012 í Namibíu.

Í Kveik var því lýst hvernig kom­ist hafi verið fram­hjá kröfum um namibískt eign­ar­hald á kvóta með því að setja það sem kallað var „svart and­lit“ á eign­ar­hald þeirra fyr­ir­tækja sem sett voru upp. Bak­samn­ingar áttu svo að tryggja Samherja 75 pró­sent eig­in­legt eign­ar­hald á ávinn­ingi sem yrði til. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann og hans fólk yrðu líka faldir hlut­hafar.

Komist yfir þriðjung kvótans

Ísland sinnti þró­un­ar­að­stoð, í sam­starfi við Sam­ein­uðu þjóð­irnar, í Namibíu frá 1990 og þar henni lauk árið 2010. Það þró­un­ar­sam­starf beind­ist einkum að sjáv­ar­út­vegi. Þ.e. Ísland var að hjálpa Namibíu við að byggju upp kerfi utan um sjálf­bæra þróun við nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Framlag Íslands til þessa verk­efnis var marg­þætt, og fólst meðal ann­ars í því að leggja til tækni- og fjár­hags­að­stoð auk sér­þekk­ingar við upp­bygg­ingu kerf­anna. Alls fóru vel á annan millj­arð króna í þessi verk­efni á þeim 20 árum sem þau stóðu yfir, sam­kvæmt því sem kom fram í Kveik í kvöld.

Vilji stóð til þess að Namibía gæti hagn­ast sem mest á nýt­ingu sjáv­ar­auð­linda sinna með því að kvóta­leiga færi til þjóð­ar­innar, að störf myndu skap­ast í landi og á láði og að skatt­greiðslur vegna starf­semi í land­inu myndu styrkja efna­hag þess.

Í Kveik var greint frá því að þegar þró­un­ar­að­stoð­inni lauk hafi Samherji birst í stað­inn. Nú, tæpum ára­tug síðar, hafi fyr­ir­tæk­inu tek­ist að kom­ast yfir um þriðj­ung af hrossa­makríl­kvóta lands­ins. Um er að ræða um fimmt­ung alls þess afla sem Samherji veiðir í starf­semi sinni í heild.

Jóhannes sagði í þætt­inum í kvöld að það hafi verið skýr stefna Samherja að kom­ast hjá því að greiða skatta í Namibíu af þeim hagn­aði sem skap­að­ist þar, meðal ann­ars með því að færa hagn­að­inn til landa þar sem skattar voru litlir eða engir, meðal ann­ars á Kýpur, með við­komu á eyj­unni Máritíus. Allir pen­ingar Samherja voru hins vegar sagðir enda í Noregi, inni á reikn­ingum í norska bank­anum DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár