Háskólamenn hræddir við valdafólk

Sjötti hver háskóla­maður seg­ist hafa komið sér hjá því að tjá sig við fjöl­miðla vegna ótta við við­brögð valda­fólks úr stjórn­mála- og efna­hags­lífi. Þá telur meiri­hluti aðspurðra háskóla­manna að akademísku frelsi fræði- og vís­inda­manna á Íslandi stafi ógn af gagn­rýni eða hót­unum frá valda­fólki í stjórn­málum og efna­hags- og atvinnu­lífi. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar um við­horf háskóla­fólks til þátt­töku í opin­berri umræðu á vett­vangi fjöl­miðla.

Ádrepa í rannsóknarskýrslu


Skýrsla Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis hefur að geyma ádrepu á störf háskóla­sam­fé­lags­ins í aðdrag­anda falls íslenska banka­kerf­is­ins. Þar er háskóla­fólki legið á hálsi að hafa ekki haft uppi næga gagn­rýni á ástand mála en jafn­framt er þó bent á að aðstæður til gagn­rýn­innar umræðu í sam­fé­lag­inu hafi verið bág­bornar.

Sérstök þing­manna­nefnd, sem skipuð var full­trúum allra flokka sem áttu sæti á Alþingi á síð­asta kjör­tíma­bili, vann sjálf skýrslu um rann­sókn­ar­skýrsl­una. Í meg­in­nið­ur­stöðum og álykt­unum þing­nefnd­ar­innar er sér­stak­lega vikið að sam­fé­lags­umræðu á Íslandi og bent á að góð stjórn­mála­um­ræða náist fram „með því að láta and­stæð sjón­ar­mið mæt­ast þar sem byggt er á stað­reyndum og málin eru krufin til mergjar. Íslensk stjórn­mál hafa ekki náð að þroskast nægi­lega í sam­ræmi við það“. Í skýrsl­unni er jafn­framt að finna hvatn­ingu til háskóla­fólks „af ólíkum fræða­sviðum til að taka þátt í opin­berri umræðu og styrkja með því tengsl fræða­sam­fé­lags­ins, atvinnu­lífs­ins og hins almenna borg­ara“.

Hvatn­ingin til háskóla­fólks bygg­ist á þeirri hug­mynd að þessi hópur hafi fram að færa ein­hverja þekk­ingu eða reynslu, umfram aðra borg­ara, sem nýst geti í hinni lýð­ræðis­legu umræðu. Sú þekk­ing eða reynsla getur jafn­vel varpað nýju ljósi á ýmis mál­efni í sam­fé­lag­inu og stuðlað að því að rök­studdar og yfir­veg­aðar ákvarð­anir séu teknar í mikil­vægum sam­fé­lags­málum. Hvatn­ingin hvílir líka á þeirri hug­mynd að innan háskól­anna starfi fólk sem hafi það að mark­miði að afla nýrrar þekk­ingar eða leita „sann­leik­ans“, eins og það er stundum nefnt, með aðferðum vís­ind­anna sem byggj­ast á gagn­rýn­inni hugsun.

Þetta er örstutt útgáfa af ítar­legri úttekt um rann­sókn Björns Gísla­sonar. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár