Gefa út bókina „Ekkert að fela“ um Samherjamálið á morgun

Teymið sem vann Kveiks-þátt­inn um Samherja og við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku hefur skrifað bók um málið. Hún kemur út á morgun.

Á morgun, mánu­dag, kemur út bókin „Ekkert að fela –Á slóð Samherja í Afríku“ eftir Helga Seljan, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stefán Aðal­stein Drengs­son, teymið sem vann umfjöllun Kveiks um Samherja og við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku sem sýnd var á RÚV á þriðju­dags­kvöld.

Bókin er gefin út af Vöku Helga­felli, er 356 síður að lengd og er ítar­leg umfjöllun um Sam­herj­a­málið. Hún byggir meðal ann­ars á gögnum sem höf­und­arnir fengu aðganga að í gegnum sam­starf sitt við Wikileaks, Al Jazeera og Stundina.

Í henni er sagan sem upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, sagan sem gögnin og tölvu­póst­arnir sem Wikileaks hefur nú birt að hluta til á net­inu og hlaupa á tugum þús­unda og sagan sem öll hin púslin sem teymið fann við margra mán­aða vinnu sína sögð á heild­rænan og ítar­legan hátt og sett í mun víð­ara sam­hengi.

[adspot]Á þriðju­dag opin­ber­uðu Kveikur og Stundin hvernig við­skipta­hættir Samherja í Afríku, nánar til­tekið í Namibíu, á síð­ustu árum á meðan að fyr­ir­tækið náði undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­skvóta í land­inu. Það var gert með mútu­greiðslum til tveggja ráð­herra í land­inu og ann­arra manna úr þeirra nán­asta hring. Þær námu 1,4 millj­arði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþrótta­töskum en tóku svo á sig fag­legri mynd og fóru fram í gegnum milli­færslur á reikn­inga í Dúbaí.

Frá því að þátt­ur­inn fór í loftið hafa ráð­herr­arnir tveir, Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, og Sacky Shang­hala, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, sagt af sér emb­ætt­i. Á fimmtu­dag steig Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár