Félög tengd Samherja og þrír Íslendingar ákærðir í Namibíu

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu hefur lagt fram ákærur á hendur félögum tengdum Samherja í land­inu og þremur íslenskum stjórn­endum þeirra. Þetta kom fram við fyr­ir­töku í Sam­herj­a­mál­inu þar í landi í morgun.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu, þar sem fyrirtaka í Samherjamálinu fór fram í morgun.
Frá Windhoek, höf­uð­borg Namibíu, þar sem fyr­ir­taka í Sam­herj­a­mál­inu fór fram í morgun. Mynd: Pexels

Martha Imalwa, rík­is­sak­sókn­ari Namibíu hefur lagt fram ákæru á hendur namibískum félögum sem tengj­ast Samherja og stjórn­endum félag­anna, sem eru íslenskir rík­is­borg­arar.

Samkvæmt því sem fram kemur í ákæru­skjali sem lagt hefur verið fram af hálfu sak­sókn­ar­ans og Kjarninn hefur séð eru Íslend­ing­arnir þrír sem sæta ákæru per­sónu­lega þeir Ingvar Júl­í­us­son, Egill Helgi Árnason og Aðal­steinn Helgason.

Ingvar er fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, en þeir Egill Helgi og Aðal­steinn voru fram­kvæmda­stjórar á vegum Samherja í Namibíu. Allir þrír eru þeir í hópi þeirra sex ein­stak­linga sem greint hefur verið frá að hafi rétt­ar­stöðu sak­born­inga í rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara hér á landi.

Samherji segir ákærur ekki koma á óvart

Í yfir­lýs­ingu á vef Samherja í dag segir að ákæra á hendur fyr­ir­tækj­unum leiði sjálf­krafa til þess, sam­kvæmt namibískum lögum, að stjórn­endur þeirra sæti einnig per­sónu­lega ákæru.

Auk Íslend­ing­anna þriggja og fimm félaga með tengsl við Samherja bein­ist ákæra namibískra yfir­valda að sak­born­ingum sem flestir verið hafa í varð­haldi frá því skömmu eftir að Sam­herj­a­skjölin komu upp á yfir­borðið í lok árs 2019.

Þeirra á meðal eru tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar, Bern­hardt Esau fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra.

[adspot]

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið segir í yfir­lýs­ingu sinni að ákvörðun rík­is­sak­sókn­ara komi ekki á óvart í ljósi þeirra „ásak­ana sem sak­sókn­arar í Namibíu hafa áður sett fram og byggja meira og minna allar á stað­hæf­ingum Jóhann­esar Stef­áns­sonar sem stýrði útgerð­inni í Namibíu en var sagt upp störfum sum­arið 2016.“

Ákæran er alls í fjórtán liðum, en félögin sem tengj­ast Samherja og stjórn­endur þeirra eru meðal ann­ars sak­aðir um fjár­svik, pen­inga­þvætti og mútu­brot.

Ákæru verði „varist af fullum krafti“

Á vef Samherja er full­yrt að ásak­anir sem settar hafi verið fram á hendur umræddum fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum á þeirra vegum eigi „ekki við rök að styðj­ast nú frekar en fyrr.“

„Framhald þessa máls verður á næstu mán­uðum. Ef ákæra verður gefin út á hendur áður­nefndum fyr­ir­tækjum gefst Samherja þá fyrst kostur á að koma fram vörnum sínum en slíkri ákæru verður varist af fullum krafti,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja.

Samkvæmt því sem fram kemur í ákæru­skjali sak­sókn­ar­ans hefj­ast mála­ferlin fyrir dóm­stóli í Windhoek 22. apríl.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fyr­ir­sögn og inn­gangi frétt­ar­innar hefur verið breytt til þess að end­ur­spegla að ákærur hafa verið lagðar fram af hálfu rík­is­sak­sókn­ara Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár