Spurt hvað fólki finnist um viðbrögð Samherja við Namibíumálinu

Gallup spurði við­horfa­hóp sinn í vik­unni um álit á aðgerðum Samherja „í kjöl­far ásak­ana um mútur í Namibíu“. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið virð­ist vera að taka stöð­una á almenn­ings­á­lit­inu, áður en það ræð­ist í að svara ásök­unum í auknum mæli opin­ber­lega.

Mótmælendur komu saman á Austurvelli skömmu eftir að fjölmiðlar greindu frá innihaldi Samherjaskjalanna í nóvember síðastliðnum. Nú virðist sjávarútvegsfyrirtækið vera að mæla almenningsálitið.
Mót­mæl­endur komu saman á Aust­ur­velli skömmu eftir að fjöl­miðlar greindu frá inni­haldi Sam­herj­a­skjal­anna í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Nú virð­ist sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið vera að mæla almenn­ings­á­litið. Mynd: Bára Huld Beck

Í lið­inni viku sendi Gallup út net­könnun á við­horfa­hóp sinn, þar sem meðal ann­ars var spurt hversu mikið traust fólk bæri til sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja og hvort fólk væri ánægt eða óánægt með „aðgerðir Samherja í kjöl­far ásak­ana um mútur í Namibíu“.[links]

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið virð­ist þannig vera að mæla álit almenn­ings á sjálfu sér og við­brögð­unum við upp­ljóstr­unum um starf­semi félags­ins í Namibíu, en síð­asta mið­viku­dag var einmitt til­kynnt að rann­sókn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein á mál­inu væri lokið.

Samherji gaf það þá út að fyr­ir­tækið ætl­aði á næstu vikum að taka „skýr­ari afstöðu opin­ber­lega“ til þeirra ásak­ana sem fyr­ir­tækið hefur staðið frammi fyrir og eru til rann­sóknar bæði hér heima og í Namibíu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gallup tekur púls­inn á því hver ímynd fyr­ir­tæk­is­ins í hugum lands­manna frá því að Sam­herj­a­skjölin komu upp á yfir­borðið í nóv­em­ber í fyrra. Snemma í des­em­ber voru þeir sem eru í við­horfa­hópi Gallup meðal ann­ars spurðir út í það hvort þeir bæru traust til Björg­ólfs Jóhanns­sonar, sem þá hafði nýlega tekið við stjórn­ar­taumunum hjá félag­inu eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri steig til hliðar.

Nokkrir með stöðu grunaðra manna hér á landi

Kjarninn greindi frá því fyrr í mán­uð­inum að Jóhannes Stef­áns­son fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja í Namibíu og fleiri ótil­greindir aðilar væru með rétt­ar­stöðu grun­aðra manna vegna rann­sóknar emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­inu hér­lendis.

Samherji sagði í til­kynn­ingu sinni á mið­viku­dag að búið væri að kom­ast að sam­komu­lagi um að full­trúar frá Wikborg Rein myndu funda með emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara „með haustinu“. Þar sagði einnig að starfs­menn lög­manns­stof­unnar hefðu farið yfir og greint meira en milljón skjöl á þeim átta mán­uðum sem þeir hafa skoðað mál­efni Samherja í Namibíu.

„Við höfum varið miklum tíma og fjár­munum í þetta ferli,“ var haft eftir Eiríki S. Jóhanns­syni stjórn­ar­for­manni Samherja, sem einnig sagði að ásak­an­irnar sem komið hafa fram hefðu dregið upp „afbak­aða mynd af starf­semi Samherja“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár