Rannsókn Wikborg Rein á starfsemi Samherja í Namibíu er lokið

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji greinir frá því á vef sínum í dag að rann­sókn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein sé lokið og að hún hafi verið kynnt fyrir stjórn félags­ins.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji greinir frá því á vef sínum í dag að rann­sókn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein á starf­semi félags­ins í Namibíu, sem unnin var að beiðni Samherja, sé lokið. Nið­ur­stöð­urnar hafi verið kynnt fyrir stjórn félags­ins.

Á vef Samherja er haft eftir Eiríki S. Jóhanns­syni stjórn­ar­for­manni félags­ins að á næstu dögum muni Samherji „fjalla nánar um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar og hrekja þær ásak­anir sem vöktu hörð við­brögð hjá okkur strax þegar þær voru settar fram í fyrra.“

Samkomulag um fund Wikborg Rein og héraðssaksóknara

Í til­kynn­ingu félags­ins segir að Samherji muni áfram eiga sam­skipti við þar til bær stjórn­völd sem sýnt hafi vilja til sam­vinnu, auk þess sem fyr­ir­tækið hafi boðið fram aðstoð sína vegna rann­sókna á ásök­unum tengdum starf­sem­inni í Namibíu, sem fram komu í umfjöll­unum Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera í nóv­em­ber í fyrra.

Að sögn Samherja liggur fyrir fyrir sam­komu­lag um að lög­menn Wikborg Rein eigi fund með emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara með haustinu. Þá hafi nokkrir fundir verið haldnir með full­trúum namibískra stjórn­valda til að kanna grund­völl fyrir svip­uðu sam­starfi við þau.[links]

Greint var frá því í Kjarn­anum í síð­ustu viku að nokkrir ein­stak­lingar, þeirra á meðal Jóhannes Stef­áns­son fyrr­ver­andi starfs­maður hjá Sam­herj­a­sam­stæð­unni í Namibíu og síðar upp­ljóstr­ari, væru með rétt­ar­stöðu grun­aðra hér á landi vegna rann­sóknar emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara.

Hafna því að stjórnendur hafi hlutast til um vafasama viðskiptahætti

„Við höfum virt allt þetta ferli og leyft rann­sókn­inni að hafa sinn gang. Af þessum sökum höfum við ekki brugð­ist opin­ber­lega við öllum ásök­unum þrátt fyrir að full ástæða hafi verið til þess frá upp­hafi. Að sama skapi viljum við að rann­sóknir opin­berra aðila gangi eðli­lega fyrir sig. Engu að síður munum við á næstu vikum taka skýr­ari afstöðu opin­ber­lega til ein­stakra mála og fjalla nánar um ein­stök atriði en við höfum gert hingað til.

Þá ber að und­ir­strika að Samherji hafnar því alfarið að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi nokkru sinni hlut­ast til um að nokk­urt dótt­ur­fyr­ir­tækja þess stund­aði vafa­sama við­skipta­hætti, þar á meðal mútu­greiðslur eða pen­inga­þvætti, í því skyni að ná fram fjár­hags­legum ávinn­ingi og mun and­mæla kröft­ug­lega frek­ari ásök­unum í þá veru,“ er haft eftir Eiríki á vef Samherja.

Birting niðurstaðna Wikborg Rein ýmsu háð

Á vef Samherja segir að þegar Wikborg Rein hafi fundað með full­trúum við­eig­andi stjórn­valda þurfi að taka afstöðu til fjöl­margra atriða, meðal ann­ars þess „hvaða nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar er hægt að birta opin­ber­lega og hvernig.“

„Í því sam­bandi þarf að meta hvort birt­ing kunni að hafa áhrif á rann­sóknir í öðrum ríkjum. Þá þarf að meta hvort birt­ing á upp­lýs­ingum gangi í ber­högg við lög og reglur vegna þeirra ein­stak­linga sem kunna að koma við sögu. Ýmis fleiri atriði þarf að taka til skoð­unar í þessu sam­bandi,“ segir í til­kynn­ingu Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár