Komnir með stöðu grunaðra í rannsókn héraðssaksóknara á Samherjamáli

Nokkrir ein­stak­lingar hafa verið kall­aðir til yfir­heyrslu hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og þeir fengið rétt­ar­stöðu grun­aðra. Samkvæmt máls­gögnum sem lögð voru fyrir dóm­stóla í Namibíu telja rann­sak­endur fimm Íslend­inga vera tengda mál­inu.

Nokkrir ein­stak­lingar hafa rétt­ar­stöðu grun­aðra og hafa þeir verið kall­aðir til yfir­heyrslu hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rann­sóknar emb­ætt­is­ins á starf­semi Samherja, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Í hópi grun­aðra er upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son en hann er fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja. Þetta stað­festir Jóhannes í skrif­legu svari til Kjarnans. Hann seg­ist hafa fengið það stað­fest frá sínum lög­manni að hann hafi haft rétt­ar­stöðu grun­aðs í mál­inu síðan í nóv­em­ber á síð­asta ári. Hann hafi mætti í skýrslu­töku 12. nóv­em­ber, sama dag og þáttur Kveiks hafi verið sendur í loftið.

Ekki hefur náðst í Björgólf Jóhanns­son, starf­andi for­stjóra Samherja vegna vinnslu frétt­ar­innar, hvorki í dag né í gær.

Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um málið hjá Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara. Hann sagði rann­sókn standa yfir en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið eins og sakir standa.

Samkvæmt máls­gögnum sem lögð voru fram fyrir dóm­stóla í Namibíu telja rann­sak­endur þar í landi fimm Íslend­inga vera tengda mál­inu. Auk Jóhann­esar eru í máls­gögnum nefndir þeir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn aðal­eig­enda Samherja, Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur og í Afríku, Aðal­steinn Helgason, fyrrum starfs­maður Samherja, og Egill Helgi Árnason, fram­kvæmda­stjóri Mermaria Seafood Namibia.

[links]Sam­herj­a­málið komst í hámæli eftir að áður­nefndur þáttur Kveiks fór í loftið í nóv­em­ber á síð­asta ári en umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks. Margra mán­aða rann­sókn­ar­vinna þeirra sýndi fram á meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namibíu.

Í þætti Kveiks gekkst Jóhannes við því að hafa brotið lög fyrir hönd Samherja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namibíu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namibíu og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Samherja.

Hér á landi eru bæði hér­aðs­sak­sókn­ari og emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra með mál tengd starf­semi Samherja í Namibíu til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár