Vill að litið verði á fíkniefnaneytendur sem sjúklinga en ekki afbrotamenn

Svandís Svav­ars­dóttir hefur kynnt áform um laga­setn­ingu sem felur í sér afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta af fíkni­efnum. Verði frum­varpið að lögum mun stórt skref verða stigið í átt frá refsi­stefnu í mála­flokknum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur kynnt áform um laga­setn­ingu í sam­ráðs­gátt stjórn­valda um að heim­ila vörslu tak­mark­aðs magns ávana- og fíkni­efna. Með frum­varp­inu er stigið skref í átt að frá refsi­stefnu í fíkni­efna­málum. Í rök­stuðn­ingi fyrir áformunum segir að mik­il­vægt sé að leggja áherslu á skaða­minnkun og að draga úr neyslu- og fíkni­vanda. „Einn liður í því er að líta á neyt­endur ávana- og fíkni­efna sem sjúk­linga fremur en afbrota­menn.“

Samkvæmt gild­andi lög­gjöf er varsla hvers kyns skammta af ávana- og fíkni­efnum óheimil og refsi­verð. Ekki er til­greint í áformum ráð­herra hvað mörkin verði dregin um hversu mikið magn ávana- og fíkni­efna ein­stak­lingur megi hafa undir höndum án þess að það sé refsi­vert, verði breyt­ing­arnar að veru­leika.

Í fylgi­skjali sem birt hefur verið í sam­ráðs­gátt segir að frum­varpið muni byggja á hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar, sem miði fyrst og fremst að því að draga úr heilsu­fars­legum, félags­legum og efna­hags­legum afleið­ingu, notk­unar lög­legra og ólög­legra vímu­efna, án þess að meg­in­mark­miðið sé að draga úr vímu­efna­notkun. „Skaða­minnkun gagn­ast fólki sem notar vímu­efni, fjöl­skyldum þeirra, nær­sam­fé­lagi not­and­ans og sam­fé­lag­inu í heild. Með því að afnema mögu­lega refs­ingu vegna vörslu skammta ólög­legra vímu­efna ætl­aða til einka­nota væri stigið stórt skref í átt að við­horfs­breyt­ingu í íslensku sam­fé­lagi gagn­vart fólki sem notar vímu­efni, lög­leg sem ólög­leg.“

[adspot]Bent er á að vís­inda­rann­sóknir hafi ítrekað sýnt fram á að refs­ingar hafi lítil sem engin áhrif til breyt­ingar á hegðun ein­stak­linga heldur séu margir aðrir sam­verk­andi per­sónu­bundnir þættir sem hafa áhrif á áhuga­hvöt ein­stak­lings til breyt­inga.

Til stendur að leggja fram frum­varp um málið á yfir­stand­andi þingi.

Frumvarp fjögurra stjórnarandstöðuflokka fékk ekki brautargengi

Líklegt er að þverpóli­tísk sátt verði um að sam­þykkja frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra, þótt átök geti orðið um hversu langt eigi að ganga. Haustið 2019 lagði Hall­dóra Mogensen, þing­maður Pírata, ásamt átta þing­mönn­um úr þing­flokk­um P­írata, Sam­fylk­ing­ar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins fram frum­varp þess efnis að fellt verði úr lögum bann við vörslu, kaupum og mót­töku ávana- og fíkni­efna.

Frum­varp þing­mann­anna fól í sér að stað þess að for­taks­laust bann væri við vörslu efna þá sé varsla efna ein­ungis bönnuð þegar magn þeirra er umfram það sem getur talist til eigin nota. Þannig er tryggt að áfram verði hægt að refsa þegar aug­ljóst er að efnin séu ekki ætluð til einka­nota.

Áfram yrði hins ­vegar hægt að sak­fella ­fyrir það sem kann að telj­ast alvar­legra brot á lögum um ávana og fíkni­efni, þar á meðal inn­flutn­ing­ur, útflutn­ing­ur, sala, skipti, afhend­ing, fram­leiðsla og til­bún­ingur efna.

[links]Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sagði að „brott­hvarf frá refsi­stefnu sem gengur út á að jað­ar­setja neyt­and­ann víkur því nú um allan heim fyrir stefnu sem bygg­ist á því að veita neyt­endum sem á þurfa við­eig­andi þjón­ustu. Með sam­þykkt frum­varps þessa mundi Ísland skipa sér í fremstu röð hvað varðar heil­brigð­is­þjón­ustu og mann­úð­lega nálgun gagn­vart þeim neyt­endum vímu­efna.“

Frumvarp stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fjög­urra, sem var efn­is­lega á nán­ast sömu slóðum og hug­myndir heil­brigð­is­ráð­herra, hlaut ekki braut­ar­gengi. Í fylgi­skjali í sam­ráðs­gátt stjórn­valda segir þó að höfð verði hlið­sjón af efni þing­manna­frum­varps­ins frá haustinu 2019 „og þeim athuga­semdum sem bár­ust vegna þess við þing­lega með­ferð“ við gerð nýs frum­varps.

Sex af hverjum tíu föngum áttu við vímuefnavanda að stríða

Umræða um afglæpa­væð­ingu fíkni­efna­neyslu hefur staðið yfir hér­lendis árum saman. Árið 2014 gerði Kjarninn röð frétta um fang­els­is­mál. Við gerð þeirra fékk hann aðgang að miklu magni af töl­fræði hjá Fang­els­is­mála­stofn­un. Á meðal þess sem fram kom var að 30 pró­sent þeirra sem sátu inni (42 af 139) í íslenskum fang­elsum í nóv­em­ber 2014 sátu inni fyrir fíkni­efna­brot. Það voru nán­ast jafn margir og sátu inni fyrir kyn­ferð­is­brot (25) og ofbeld­is­brot (22) til sam­ans. Þegar horft var til allra fanga í afplán­un, líka þeirra sem voru að afplána utan fang­elsa, voru 55 að afplána dóm vegna fíkni­efna­brota.

Þann 22. júní 2015 svar­aði Ólöf Nordal, þáver­andi inn­­an­­rík­­is­ráð­herra, fyr­ir­­spurn á Alþingi um afplánun fanga í fang­elsi. Í svari hennar kom fram að tæp­­lega 60 pró­­sent þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum eigi við vímu­efna­­vanda að etja. Þar sagði einnig að rúm­­lega 70 pró­­sent þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum ættu sér sögu um slíkan vanda. Svarið byggði á óbirtri rann­­sókn sér­­fræð­inga.

Þegar umfjöll­unin Kjarnans um fang­els­is­mál var end­ur­tekin 2018 kom í ljós að flestir þeirra sem þá afplán­uðu dóma eða höfðu hlotið óskil­orðs­bund­inn dóm gerðu það fyrir fíkni­efna­brot, eða 28 pró­sent fanga. Alls afplán­uðu 16 pró­sent fanga dóma vegna auðg­un­ar­brota og sama hlut­fall vegna umferð­ar­laga­brota. Ell­efu pró­sent fanga afplán­uðu dóma vegna mann­dráps eða til­raunar til mann­dráps, 13 pró­sent vegna ofbeld­is­brota og 14 pró­sent vegna kyn­ferð­is­brota.

Í skýrslu starfs­hóps sem dóms­mála­ráð­herra fól að skila til­lögum um leiðir til að stytta boð­un­ar­lista til afplán­unar refs­ingar, sem birti nið­ur­stöður sínar í fyrra, sagði meðal ann­ars að „hlut­fall fanga fyrir fíkni­efna­brot hefur vaxið mjög í fang­elsum lands­ins á síð­ustu árum. Árið 2019 var hlut­fallið komið í 40 pró­sent allra fanga og vel á annað hund­rað afplán­aði dóm fyrir brot af því tagi. Í lok síð­ustu aldar sátu ein­ungis innan við tíu pró­sent fanga í fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár