Leggja til að refsingum sé ekki beint gegn neytendum vímuefna

Varsla fíkni­efna til einka­neyslu verður ekki lengur refsi­verð verði frum­varp níu þing­manna að lögum.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaðurPírata og formaður velferðarnefndar.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­mað­ur­P­írata og for­maður vel­ferð­ar­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, ásamt átta þing­mönnum úr þing­flokkum Pírata, Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins hafa lagt fram frum­varp þess efnis að fellt verði úr lögum bann við vörslu, kaupum og mót­töku ávana- og fíkni­efna. Verði frum­varpið sam­þykkt felur það í sér stórt skref í átt að afglæpa­væð­ingu neyslu vímu­efna.

Frumvarp um neyslurými ekki til þess fallið að ná markmiði sínu

[links]Á síð­asta þingi lagði Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, fram frum­varp um stofnun og rekstur neyslu­rýma. Að baki frum­varps­ins var ályktun Alþingis um mótun stefnu til að draga úr skað­legum afleið­ingum og hlið­ar­verk­unum neyslu ávana- og fíkni­efna til aðstoðar og verndar neyt­endum efn­anna og félags­legum rétt­indum, þeirra, aðstand­endum þeirra og sam­fé­lag­inu í heild.

Við með­ferð frum­varps­ins í vel­ferð­ar­nefnd kom hins vegar fram sú gagn­rýni að frum­varpið væri ekki til þess fallið að ná mark­miði sínu þar sem lög­reglu yrði áfram skylt að leggja hald á ólög­leg fíkni­efni og gera þau upp­tæk. Nefndin beindi því til heil­brigð­is­ráð­herra að vinna mark­visst að því að afnema refs­ingar fyrir vörslu á neyslu­skömmtum fíkni­efna.

Þing­menn­irnir níu sem leggja nú fram frum­varpið um afnám refs­ingar fyrir vörslu á neyslu­skömmtum telja það hins vegar rétt að lög­gjaf­inn hafi frum­kvæði að setn­ingu laga til að bregð­ast við því ástandi sem haml­aði fram­gangi frum­varps­ins um neyslu­rými.

Áfram bannað að selja fíkniefni

Frumvarp þing­mann­anna felur í sér að stað þess að for­taks­laust bann sé við vörslu efna þá er varsla efna ein­ungis bönnuð þegar magn þeirra er umfram það sem getur talist til eigin nota. Þannig er tryggt að áfram verði hægt að refsa þegar aug­ljóst er að efnin séu ekki ætluð til einka­nota.

Áfram verði hins vegar hægt að sak­fella fyrir það sem kann að telj­ast alvar­legra brot á lögum um ávana og fíkni­efni, þar á meðal inn­flutn­ingur, útflutn­ingur, sala, skipti, afhend­ing, fram­leiðsla og til­bún­ingur efna.

Mannúðleg nálgun gagnvart neytendum fíkniefna

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að und­an­farin ár hafi sam­fé­lagið sam­mælst um mik­il­vægi þess að aðstoða fólk með fíkni­vanda frekar en refsa því og að veita þeim sjálf­sagða heil­brigð­is­þjón­ustu. Þing­menn­irnir segja að sjá megi skýr merki um þessa nálgun í nýlegri laga- og reglu­gerð­ar­setn­ingu, til dæmis með því að smá­vægi­leg brot á lögum um ávana- og fíkni­efni komi ekki fram á saka­vott­orðs og með fram­lagn­ingu frum­varps heil­brigð­is­ráð­herra um neyslu­rými.

„Brott­hvarf frá refsi­stefnu sem gengur út á að jað­ar­setja neyt­and­ann víkur því nú um allan heim fyrir stefnu sem bygg­ist á því að veita neyt­endum sem á þurfa við­eig­andi þjón­ustu. Með sam­þykkt frum­varps þessa mundi Ísland skipa sér í fremstu röð hvað varðar heil­brigð­is­þjón­ustu og mann­úð­lega nálgun gagn­vart þeim neyt­endum vímu­efna,“ segir í grein­ar­gerð­inni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár