Heimilislausir handan Suðurlandsbrautar virðast ekki ætla að stöðva áform Reita

Sam­komu­lag hefur verið und­ir­ritað um upp­bygg­ingu 440 íbúða á Orku­reitnum. Reitir sögð­ust í fyrra áskilja sér rétt til þess að hætta við áformin ef smá­hýsi fyrir heim­il­is­lausa yrðu byggð í nágrenn­inu. For­stjór­inn segir oftúlkun að kalla það hótun.

Guðjón Auðunsson forstjóri Reita og Dagur B. Eggertson borgarstjóri undirrituðu samkomulag um uppbyggingu Orkureitsins í gær.
Guðjón Auð­uns­son for­stjóri Reita og Dagur B. Egg­ert­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu sam­komu­lag um upp­bygg­ingu Orku­reits­ins í gær. Mynd: Reitir

Reitir fast­eigna­fé­lag og Reykja­vík­ur­borg skrif­uðu í gær undir sam­komu­lag um upp­bygg­ingu 440 íbúða á svoköll­uðum Orkureit, sem er á horni Grens­ás­vegar og Suð­ur­lands­brautar. Gert er ráð fyrir því að upp­bygg­ing á reitnum geti haf­ist á fyrri hluta árs­ins 2022.

Kjarninn heyrði í Guðjóni Auð­uns­syni for­stjóra Reita og spurði hann út í fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu. Blaða­manni lék for­vitni á að vita hvers konar íbúðir stæði til að byggja á reitnum. Það segir Guðjón ekki alveg ljóst.

„Nú á eftir að hanna þær end­an­lega. Það er í sjálfu sér bara búið að magn­taka lóð­ina og draga upp ytri línur af byggð­inni eins og hún mun líta út en menn hafa í sjálfu sér dálítið frjálsar hendur ennþá með það hvernig hönn­unin á íbúð­unum end­an­lega er,“ segir Guðjón.

Hann bætir við að það sé ekk­ert víst að Reitir munum fylgja verk­efn­inu eftir alveg til enda og ákveða hvernig hönnun á ein­stökum íbúðum er. „Það getur vel verið að verk­efnið að hluta til eða öllu leyti verði selt og þeir sem halda á því áfram hafi hærri rödd en við um það hvernig þetta verði nákvæm­lega útfært,“ segir Guðjón.

[adspot]

Gamla Raf­veitu­húsið, sem oft er kallað Orku­húsið þrátt fyrir að heil­brigð­is­starf­semi undir nafni Orku­húss­ins sé fyrir all­nokkru komin á nýjan stað í Urð­ar­hvarfi í Kópavogi, mun áfram standa á lóð­inni innan um nýbygg­ing­arnar.

„Það er að hluta friðað, hafi menn haft áhuga á að fjar­lægja það er það hrein­lega ekki heim­ilt og það fær bara nýtt hlut­verk. Ég get ekki alveg sagt frá því hvað það er, því það er ekki búið að klára samn­inga, en húsið mun standa og fær nýtt hlut­verk,“ segir Guðjón.

Reitir hafa í COVID-19 far­aldr­inum lánað húsið til heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu undir sýna­tökur og bólu­setn­ingar. „Svo tekur það von­andi enda fyrr en seinna og síðan fer húsið bara í önnur not,“ segir Guðjón.

Deiliskipu­lag reits­ins, sem brátt verður aug­lýst form­lega af hálfu borg­ar­innar, byggir á vinn­ings­til­lögu Alark-arki­tekta. Tillagan gerir ráð fyrir þriggja til átta hæða hárri byggð með skjól­góðum og sól­ríkum inn­görðum sem eru að hluta til opnir og tengdir saman með göngu- og hjóla­stígum. Byggðin er hæst úti við Suð­ur­lands­braut og Grens­ás­veg en lægri út að Ármúl­anum. Hægt er að kynna sér skipu­lagið betur á vef­svæði sem hefur verið sett upp fyrir reit­inn.

Telur „oftúlkun“ að ræða um hótun af hálfu Reita

Reykja­vík­ur­borg hefur uppi áform um að setja upp nokkur smá­hýsi fyrir heim­il­is­lausa íbúa á van­nýttu borg­ar­landi handan Suð­ur­lands­braut­ar­innar og voru þau áform sam­þykkt í borg­ar­ráði í síð­ustu viku. Reitir settu sig upp á móti þessum skipu­lags­á­formum í fyrra.[links]

Í umsögn fast­eigna­fé­lags­ins sagði að upp­bygg­ing smá­hýsanna, fimm tals­ins, myndi setja göngu­teng­ingu Orku­reits­ins yfir í Laug­ar­dal „í upp­nám“ og að smá­hýsin gætu jafn­framt haft veru­lega nei­kvæð áhrif á ímynd og sölu­mögu­leika íbúð­anna sem Reitir ætla að byggja.

„Verði deiliskipu­lagið sam­þykkt með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrif­um, áskilur lóð­ar­hafi sér rétt til­ að end­ur­skoða upp­bygg­ing­ar­á­form á Orku­reitn­um. Rétt er að minna á að stefna borg­ar­yf­ir­valda í skipu­lags­málum er sú að þétta byggð með­fram svoköll­uðum þró­unarás og fyr­ir­hug­aðri leg­u ­borg­ar­línu. Að mati Reita væri borgin með umræddri skipu­lags­á­kvörðun að vinna gegn þeirri ­stefnu, verði nið­ur­staðan á þá leið að lóð­ar­hafi hætti alfarið við upp­bygg­ing­ar­á­form sín og hald­i á­fram fast­eigna­rekstri núver­andi bygg­inga á lóð­inni eins og verið hef­ur,“ sagði í umsögn Reita til skipu­lags­yf­ir­valda Reykja­víkur.

Spurður út í þetta seg­ist Guðjón telja að athuga­semdir Reita hafi „verið mál­efna­legar á alla kanta“ og að það sé „oftúlkun“ að lesa það sem svo að Reitir hafi verið að hóta því að hætta við upp­bygg­ing­una á Orku­reitnum ef borg­ar­yf­ir­völd héldu sig við að setja upp smá­hýsi fyrir skjól­stæð­inga vel­ferð­ar­sviðs í grennd­inni. For­stjór­inn telur að í umsögn Reita hafi verið „pent, diplómat­ískt orða­lag um að biðja menn að hugsa sig vel um.“

„Svo geta menn bara haft sína skoðun á því prí­vat og per­sónu­lega hvar þessu er best fyrir komið,“ segir Guðjón um smá­hýsin.

„Ein­hvers­staðar verður að koma þessu fyrir og mín per­sónu­lega skoðun er sú að kannski nálægðin við helsta leik­vang ungra barna og hús­dýra­garð­inn og þar sem mikið íþrótta­starf fer fram hjá Þrótti og Ármanni sé nú ekki alveg heppi­leg­asti stað­ur­inn, en við sjáum bara til hvernig þetta fer allt saman,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár